Heimilistíminn - 07.03.1974, Blaðsíða 22
AAaría virðist
fertug en er
26 ára
Hún á þrjú börn, sem lifa
á 1600 kr. á mánuði
Maria er 26ára og býr i fátækrahverfi i
Santiago i Chile. Hún á þrjú börn, það
fjórða er á leiðinni, og eiginmanninn sér
hún ekki, nema þegar hann er drukkinn
eða vantar peninga. Á hún nokkra framtið
fyrir sér?
Maria er ekki ein um þetta. Milljónir
kvenna i S-Ameriku deila þessum kjörum
með henni. Maria treysti á Salvador Al-
lende forseta, að hann mundi hjálpa henni
og börnum hennar til betri framtiðar.
En eftir byltinguna blóðugu er hún hætt
að vona. Hún býr i miðborg Santiago.
Húsið er langt og mjótt, úr tigulsteini og
er komið að falii. Þarna búa þrjátiu aðrar
fjölskyldur. Engir gluggar, ekkert vatn og
ekkert rafmagn. A mddargólfinu er eitt
rúm og borð.
Drykkjuskapur
— Það er bezt að við förum út. Hann er
fullur rétt einu sinni, segir Maria. A rúm-
inu liggur eiginmaðurinn endilangur og
hrýtur. Hann á fimm eða sex fjölskyldur
annars staðar. Það er Maria, sem hann
kemur tii, þegar hann vantar peninga eða
þarf að sofa úr sér.
Maria sér fyrir sér og börnunum upp á
eigin spýtur sem húshjálp. Hún hefur um
það bil 1600 isl. krónur á mánuði. Það
nægir fyrr þvi nauðsynlegasta.
Börnin eru sjö, fjögurra og tveggja ára.
Maria tekur það yngsta með sér i vinn-
una, en hin eru ein heima. Þegar sjö ára
drengurinn var fimm ára, lærði hann að
fara heim og fá sér að horða og gefa hin-
um tveggja ára, þegar verksmiðjuklukk-
an sló tvö högg.
Maria fluttist utan úr sveit til höfuð-
22
borgarinnar, þegar hún var 14 ára. Áður
en hún fór að eiga börnin, lifði hún á hús-
hjálparlaununum. En siðustu fimm árin
hefur hún ekkert keypt handa sjálfri sér.
— Hvað á ég að gera við sápu, þegar ekk-
ert vatn er? segir hún.
ólæs
Maria kann hvorki að lesa né skrifa —
Maria Fuentes býr með þremur börnum
slnum — það fjórða er á leiöinni — I
gluggalausu húsi, sem komið er að falli.1
Þar er hvorki vatn né rafmagn, og allir
vindar leika um stofurnar.
Meðan Allende lifði, var örlitil von til þess
að Maria og hennar likar eignuðust bjart-
ari framtið. Nú býzt hún ekki við.að börn
bennar geti nokkurn tima lifað mann-
sæmandi lifi.
aðeins að hripa nafnið sitt. — Ég skamm-
ast min fyrir að kunna ekki að lesa, segir
hún. — Það er leiðinlegt að lenda i röng-
um strætisvagni, bara vegna þess að ég
get ekki lesið skiltin. Eða að þurfa að
spyrja i búðinni um verð á vöru, þegar
það stendur á vörunni. Hvenær ég hef
tima til að læra að lesa? Aldrei með þrjú
börn á framfæri.
Hvaö gerir samfélagið fyrir fólk eins og
Mariu? Fullorðinnafræðsla, já að visu. En
hún hefur bara ekki efni á að hætta að
vinna á meðan. Láta eiginmanninn sjá
fyrir sér. En hvar á hann þá að taka pen-
inga? Hann vinnur ekkert. Átta stunda
vinnudagur? Hver þorir að krefjast þess,
þegar þúsundir biða eftir starfinu? Þægi-
legra húsnæði? Hvernig er það hægt, þeg-
ar aldrei verður lát á straumi fólks til
borgarinnar og fjöldinn allur á hvergi
höfði sinu að halla.
Þrældómur
Hjn erfiðu kjör hafa sett mark sitt á
Mariu. Hún er aðeins 26 ára, en litur út
fyrir að vera miklu eldri. Hegniö á götun-
um rennur gegn um skóna hennar, og á
handleggjum og fótleggjum er hún þakin
marblettum. Eiginrnaðurinn lemur hana,
þegar hann er drukkinn.
Hvað verður um barnið, sem Maria
fæðir brátt? Vatn er ekkert og iveran
þannig, að vindurinn næðir upp milli gólf-
fjalanna og regnið á veturna myndar
stundum stöðuvatn sem nær hálfa leið upp
i rúm?
Mariu dreymir um það eitt að eignast
þvottavél og að geta verið heima hjá
börnunum sinum.