Heimilistíminn - 07.03.1974, Side 23
Teygjuteikningar
Hér kemur nokkuð sniðugt, sem
heldur er hreint enginn vandi að búa
til. Ef þið getið það ekki sjálf, geta
mamma eða pabbi hjálpað. Þið dragið
strik langs og þvers á plötu eða spýtu,
með blýanti eftir reglustiku, þannig að
platan verður rúðustrikuð. Siðan rekið
þið litla nagla alls staðar, þar sem
strikin skerast. Þá er hægt að fara að
„teikna” með teygjum með þvi að
teygja þær milli naglanna. Á myndinni
hér með sézt, hvernig hægt er að
teikna skip, en vafalaust finnið þið
sjálf upp á einhverju öðru. I skipið
fara sex teygjur. Teygjurnar fást i
bókabúðum i litlum pokum og eru
gjarnan marglitar.
o o o
Kunningi okkar einn, með afbrigð-
um sjóhræddur, neyddist til að fara
með Akraborginni upp á Skaga, þótt
hann hætti sér annars aidrei á sjó.
Hann fikraði sig um borð og stóð sem
næst landganginum, ef honum kynni
að snúast hugur, en kom þá auga á
borðaklæddan mann rétt hjá sér og
gaf sig á tal við hann. Hinn kvað litia
hættu á, að skiptið steytti á skeri og
strandaði, þvi að það væri bezta veð-
ur.
— En ef ég yrði nú sjóveikur? spurði
vinur vor.
llinn leit vorkunnsamlega á hann og
brosti við:
— Þú þarft ekkert að spyrja um það.
Það kemur allt af sjálfu sér.
23