Heimilistíminn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Heimilistíminn - 07.03.1974, Qupperneq 31

Heimilistíminn - 07.03.1974, Qupperneq 31
Er sambandið við tengdamömmu ,,háspenna — lífshætta"? Ef svo er, skaltu lesa þessar fjörugu og at- hyglisveröu umferðarreglur fyrir tengdamæð- ur og tengdadætur. í rauninni er tengdamútter alls ekki eins slæm og skrýtlumyndirnar vilja vera láta — og öfugt. Á ekki tengdadóttirin annars að vera spegilmynd af yður sjálfri? I æsilegum umræöum fyrir ekki ýkja löngu hrópaði tengdamóðirin: — Mér finnst nú bara, að þú sért a!ls ekki rétta stúlkan fyrir drenginn minn. Og tengdadóttirin svaraöi með kæli- skápsrödd: — Það getur vel verið, en það veit ég þó, að þú ert það ekki heldur! Það var ég undirrituð, sem var tengda- dóttirin, og án þess að gera mér það ljóst (ég var þá 19 ára), komst ég anzi nærri kjarna málsins. Þetta finnst mér nú. mörgum árum seinna er ég sjálf er næstum orðin tengdamóðir og ungar stúlkur með hár niöur á lendar og rjóöa vanga sitja i sófanum og stara á mig með totu á vörunum — á mig, mömmu kærast- ans. Undir slikum kringumstæðum hættir manni nefnilega til að lita á son sinn sem fyrirpiynd af ungum manni og vitanlega hæfir slikum fyrirmyndarmanni ekkert nema nákvæm fyrirmyndar-eftirmynd af manni sjálfum. Svona einföld er nú ástæð- an oft á tiðum til þessarar háspennu, sem skapast á milli tengdamæðra og tengda- dætra. Hvað er við þessu að gera? Við höfðum þann háttinn á að safna saman nokkrum kynslóðum til hring- borbsumræðna yfir ostbita og rauðvini, og þegar umræðunum lauk, höfðum við búiö til nokkrar umferðarreglur fyrir tengda- mæður og tengdadætur. Það er bezt að láta þessar reglur ganga. Það er aldrei að vita, nema þær megni að byggja ei'tthvað upp i stað þess að rifa niður. TII. TENGDADÓTTURINNAIl: Fyrstu kynnin Það er blátt áfram undursamlegt að geta haft hitt og þetta á tilfinningunni. Þú skalt laumast til að spyrja kærastann i Sherlock Holmes-stil. Ef tengdamútter er sú manngerð, sem gengur á rosabullum, er með skátakinnar og hefur gönguferðir upp um fjöll og firnindi á heilanum. þá er alveg óþarfi að stofna til illinda með þvi ab ganga fyrir hana á hælaháum pinnum,' 31

x

Heimilistíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.