Heimilistíminn - 07.03.1974, Qupperneq 32
sem striðsmálningu á andlitinu og svæla
tuttugu sigarettur á klukkutima. Það hef-
ur afskaplega litið upp á sig til lengdar að
segja: Annað hvort verður hún að taka
mig eins og ég er, eða hún má bita i beinið
á sér. Það er nefnilega lika til svolitið
sem heitir að venjast: fyrst klossarnir,
siðan málning og sigarettur. Gefðu henni
tækifæri til að skilja, að maður geti vel
verið ágætisindælisstelpa, þótt maður
reyki, gangi i furðufötum og hafi yndi af
augnskuggum. Og — hnussaðu ekki yfir
postulinshundunum og myndinni af
kærastanum á gæruskinninu með bossann
upp i loftið. Mundu, að þetta er heimili
hans, og þarna hefur hann kannski lifað
dásamleg bernskuár. Fáðu tengda-
mömmu til að segja þér frá honum, þegar
hann var litill, og hlæðu, þegar það á við.
Þér finnst þú vera að spinna blekkinga-
vef, en þetta ernú lika nokkuð, sem heitir
samhugur. Segðu sjálf frá þvi, að þið
skemmtið ykkur vel saman. Segðu eitt-
hvað af sjálfri þér, starfi þinu og áhuga-
málum. Reyndu að hlera áhugamál henn-
ar og leggðu þá við eyrun. Milli setning-
anna getur þú gert þér mynd af þvi,
hvernig heimili kærastans er og hefur
verið. Það getur sannarlega komið sér vel
fyrir þig siðar.
Iljálpaðu til
Enda þótt tengdamamma segi þér að
sitja kyrri, þegar þú býður hjálp við eitt
og annað, láttu það ekkert á þig fá, og
taktu til höndunum. Hjálpaðu til við upp
þvottinn. Ef tengdamútter er af leiðin-
legri gerðinni, þá hlakkar hún til þess
dags. þegar þú gleymir þessu atriði, til
þess að geta látið þessi alkunnu orð falla:
— Ja, hún er ekkert gefin fyrir húsverkin,
ha? Hitt er annað mál, að margar af
þessari kynslóð eru ekki vanar þvi, að
þeim sé rétt hjálparhönd, svo að þær taka
þessu með þökkum. Þú skalt lika sýna
heimili hennar áhuga, eins og með þvi að
segja frá þvf, að þú hafir nú séð hitt og
þetta i búð i bænum o.s.frv. Smáatriði,
sem kannski skipta máli fyrir hana sjálfa
og heimili hennar. Mundu að sá dagur get
ur runnið upp, aö þú liggir i flensu og þrir
rollingar ólmist til fóta! Þá getur það
komið sér vel, að tengdamamma komi og
rétti þér hjálparhönd, og einn greiðinn
býður öðrum heim.
Tengdapabbi góði
Það er til urmull af góðum tengda-
mæðrum og þvi fer viðs fjarri að skrfpa-
myndateiknararnir hafi rétt fyrir sér, en
hagfræðilegar tölur sýna, aö góðir
tengdafeður eru samt fleiri. Þetta liggur i
hiutarins eðii. Tengdamamma er sama
kyns og tengdadóttirin, hún sér sam-
keppnina I tengdadótturinni, alveg sama,
hversu góð hún kann að vera. Tengda-
pabbi sér hins vegar bara fallega stúlku,
sem stóri strákurinn hans er skotinn i, og
þá er hann ánægður. En engu, að siður
þarf maður að passa sig svoiitið á tengda-
32
pabba. Ef það sýnir sig, að tengdapabbi
og tengdadóttir eru til dæmis bæði yfir sig
hrifin af teiknimyndum i bfó og saltkjöti
og baunum, að ekki sé minnzt á fótbolta,
þá skaltu fara varlega i sakirnar með að
láta mikið á þessari hrifningu þinni bera,
sérstaklega ef tengdapabbi eyðir öllum
sínum aurum i getraunirnar, eða borðar
ekkert nema saltkjöt og baunir, hvar sem
þær er að hafa á matsölustöðunum. Það
kann nefnilega að vera ástæða til þess, að
tengdamamma hafi ekki þessi sömu
ábugamál.
Maturinn hennar mömmu
Hrósaðu matnum hennar mömmu
svolitið framyfir það mátulega. Leggðu
það á þig að læra uppskriftirnar, sem
gilda á heimilinu, þótt þú sért ekkert
ógurlega hrifin af heimatilbúinni rúllu-
pylsu. Það þarf nefnilega alltaf svolitið
nostur við að ná uppskriftinni hennar
tengdamömmu alveg nákvæmlega. Sér-
hver fjölskylda hefur lika sinar venjur,
sem þú skalt læra, svo sem að syngja Nú
árið er liðið... á gamlárskvöld, tvö-þrjú
erindi, og helztu afrek KR, Fram eða
Keflvikinga, eftir þvi, sem við á.
Barnabörn
Með tilliti til þess, sem kalla má kredd-
ur eða venjur i barnauppeldi, þá skaltu
hafa vit á þvi að ræða timanlega um
barnauppeldi við tengdamóður þina, þvi
að þá má komast hjá ýmsum hugsanleg-
um erfiðleikum. Ef þessi elska er ein af
þessum með kandis i svuntuvasanum, þá
skaltu gefa henni bókina um Karius og
Baktus eða áróðursbækling frá tann-
læknafélaginu. Ef tengdamútter er fyrir
það að láta börn hlýða með likamlegri ög-
un, skaltu fá henni leibeiningar barna-
lækna, sem harðbanna slikt.
Það er alveg nauðsynlegt að geta haldið
uppi samræðum og deilum án þess að
eitraðar athugasemdir og banvæn orð
fylli loftið. Það skiptir mestu, að börnin
finni öryggi og ást á báðum heimilum, en
sjái sér ekki hag i þvi að æsa mömmu og
ömmu hvora upp á móti annarri. Það
kann að vera börnunum i hag að hafa
ibúrð i jólagjöfum og geta farið i bió i tima
og ótima, en það er ekki heimilisandan-
um i hag, nema siður sé.
Friðarpipan
En sé nú skaðinn skeður, og eitthvað
bjátar á milli tengdamæðranna, þá er
upplagt að draga andann djúpt og fyrir-
gefa. Hafðu það hugfast, að það er reynsla
sálfræðinganna, að verstu tengdamæð-
urnar eru einmitt þær, sem upplifað hafa
leiðindi i hjónabandi og þvi verri sem þau
hafa varað lengur. Þannig vilt þú alls
Ilafi eitthvaö bjátað á og þér
hafi sinnast við tengdamútt-
er — þá skaltu kveikja i
friðarpípunni. Það kann að
taka á taugarnar, en þú skalt
samt rcyna!
ekki, að hjónabandið þitt endi. Tengda-
mamma er eldri, hún á færri ár ólifuð.
Kauptu þess vegna smávindlakassa
handa tengdamútter og reyktu friðarpipu
með henni. Þetta getur tekið á taugarnar,
en reyndu það nú samt.
TIL TENODAMÖMMU
Til allrar hamingju er til urmull af
dæmum dásamleg tengsl tengdamæðra
við tengdadætur. Slik tengsl eru ómetan-
leg, og ber að hafa I heiðri, þvi að allt
gengur auðveldar i samhuga fjölskyldu.
Að sjálfsögðu eru nokkrar umferðarregl-
ur fyrir tengdamæður, og hérna eru
nokkrar þær mikilvægustu:
í réttu ljósi
Þú verður að sjá son þinn i réttu ljósi.
Hann er enginn drengur, hann er karl-
maður. Hann er ekkert endurskin af þvi,
sem draumaprinsinn þinn hefði átt að
vera. Hann er sjálfstæður einstaklingur
með sinar skoðanir, vonir og drauma. Sé
hann ástfanginn af stúlkunni sinni, skaltu
taka þátt i gleði hans og ánægju. Eða er
það ekki þin gleði að vita son þinn ánægð-
an og hamingjusaman?
Sparaöu gagnrýnina
Gættu þess vandlega að gagnrýna
tengdadóttur þina aldrei i eyru sonar
þins. Ef þér finnst hún ögra þér fram úr
hófi eða trana sér fram, þá skaltu ræða
um það við manninn þinn eða vini þina til
þess að létta af þér. Ef henni verður eitt-
hvað á, þá hjálpaðu til, án þess að særa
tilfinningar hennar. Lofaðu henni að leita
eftir aðstoð þinni eða hjálp, án þess að
troða þér inn á hana með stjórnsemi.
Maður lærir langbezt af eigin reynslu.
Illustaðu á hana
Vertu hreykin af henni, hældu henni i
eyru kunningjakvenna þinna — það mun
syni þinum þykja vænt um. Hrósaðu .
henni við hvert tækifæri, og talaðu við
hana um áhugamál hennar, enda þótt þú
skiljir þau ef til vill ekki til hlitar.
Það er þó alltaf tilbreyting i þvi að lesa
nýjar bækur, sjá öðruvisi kvikmyndir,
bragða á nýstárlegum mat. o.s.frv. Heim-
ili ungu hjónanna er ekki útskot á þinu
heimili. Ef tengdadóttir þin er fyrir það
að hafa ruslulegt i skúffunum hjá sér, þá
hún um það. Heimili hennar kemur þér