Heimilistíminn - 07.03.1974, Page 37

Heimilistíminn - 07.03.1974, Page 37
Ódýr veggskreyting Þessi veggskreyting er á heimili ungrar fjölskyldu og er hennar eigiö verk. Tiu borðtenniskúlur eru hengdar i mjóa spotta framan við kringlóttan, svart- málaðan flöt. Svona listaverk iþyngir ekki sálinni með neinum þunglamaleik, og heldur ekki buddunni, þvi kostnaðurinn er varla nema fáir tugir króna og svolitil stund, sem alltaf getur orðið afgangs. Pennavinir Sænskur piltur, 27 ára gamall vill endi- lega eignast pennavinkonur á Islandi. Þær vill hann helzt hafa á aldrinum 19 til 27ára. Ahugamálhans eru frimerki, póst- kort, tónlist, lestur, iþróttir og ferðalög ásamt fleiru. Nafn og heimilisfang Svians er: Lars Hillberg Po Box 2521 S-40317 Göteborg Sverige Monica Post er 17 ára og að ljúka gagn- fræðaskóla i Þýzkalandi, þar sem hún á heima. Hún kveðst lengi hafa haft áhuga á að eignast pennavini á Islandi og nú loks látið verða af þvi að skrifa. Hún getur ekki um nein sérstök áhugamál, en hér er heimilisfangið: Monica Post 4434 Ochtrup Westwall 7 West-Germany I VI I III undan Þegar giftingarhringurinn er mjög fastur á fingrinuin, reynið ekki að klippa hann af, heldur fjarlægið hann á þennan einfalda hátt: Þræðið fina javanál með löngum enda af sterkum hnappagatatvinna eða svipnðu. Vefjið siðan tvinnanum utan um fremstu liðamótin á baugfingrinum, þar til nokkrir sentimetrar eru eftir. Dragið þá nálina undir hringinn, takið i endann i hina áttina, og togið i, jafn- framt þvi, sein þráðurinn er færður hring eftir hring um fingurinn. Betra er að bera sápu á lið^mótin. Við snúninginn færist hringurinn smátt og smátl og er von bráðar skroppinn yfir hjallann. Tvær skrýtnar tunnur Tunnan til vinstri er teiknuð með einu striki, án þess að teiknarinn hafi nokkurn tima lyft blýant- inum frá blaðinu. Ef maður litur fljótt á hana, virðist hún samsett úr „böndum”, sem ekki hanga saman. Hin tunnan er alltaf að breytast. Stundum finnst manni op- ið til hægri vera nær, en á næstu sekúndu er það hitt opið. Reynið að teikna svona tunnur sjálf. f stað þess að stoppa í Setjið heklaða bót á götóttan sokk. Fitjið upp 5 loftlykkjur og heklið þær saman i hring. Siðan 12 fastalykkjur um hringinn og lokið með einni keðjulykkju. I þriðju umferð eru heklaðir tveir stuðlar i hverja lykkju allan hringinn. Þá er skipt um lit, og 1 næstu umferð heklaðir til skiptis einn og tveir stuðlar i lykkju allan hringinn. t siðustu umferð er aftur skipt um lit og siðan heklaður einn stuðull, aftur einn stuðull, og siðan tveir, og það endurtekið allan hring- inn.

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.