Heimilistíminn - 07.03.1974, Qupperneq 37
Ódýr veggskreyting
Þessi veggskreyting er á heimili ungrar fjölskyldu og er hennar eigiö verk.
Tiu borðtenniskúlur eru hengdar i mjóa spotta framan við kringlóttan, svart-
málaðan flöt. Svona listaverk iþyngir ekki sálinni með neinum þunglamaleik,
og heldur ekki buddunni, þvi kostnaðurinn er varla nema fáir tugir króna og
svolitil stund, sem alltaf getur orðið afgangs.
Pennavinir
Sænskur piltur, 27 ára gamall vill endi-
lega eignast pennavinkonur á Islandi.
Þær vill hann helzt hafa á aldrinum 19 til
27ára. Ahugamálhans eru frimerki, póst-
kort, tónlist, lestur, iþróttir og ferðalög
ásamt fleiru. Nafn og heimilisfang Svians
er:
Lars Hillberg
Po Box 2521
S-40317 Göteborg
Sverige
Monica Post er 17 ára og að ljúka gagn-
fræðaskóla i Þýzkalandi, þar sem hún á
heima. Hún kveðst lengi hafa haft áhuga á
að eignast pennavini á Islandi og nú loks
látið verða af þvi að skrifa. Hún getur
ekki um nein sérstök áhugamál, en hér er
heimilisfangið:
Monica Post
4434 Ochtrup
Westwall 7
West-Germany
I VI I III
undan
Þegar giftingarhringurinn er mjög
fastur á fingrinuin, reynið ekki að
klippa hann af, heldur fjarlægið hann á
þennan einfalda hátt: Þræðið fina
javanál með löngum enda af sterkum
hnappagatatvinna eða svipnðu. Vefjið
siðan tvinnanum utan um fremstu
liðamótin á baugfingrinum, þar til
nokkrir sentimetrar eru eftir. Dragið
þá nálina undir hringinn, takið i
endann i hina áttina, og togið i, jafn-
framt þvi, sein þráðurinn er færður
hring eftir hring um fingurinn. Betra
er að bera sápu á lið^mótin. Við
snúninginn færist hringurinn smátt og
smátl og er von bráðar skroppinn yfir
hjallann.
Tvær
skrýtnar
tunnur
Tunnan til vinstri er
teiknuð með einu striki,
án þess að teiknarinn hafi
nokkurn tima lyft blýant-
inum frá blaðinu. Ef
maður litur fljótt á hana,
virðist hún samsett úr
„böndum”, sem ekki
hanga saman. Hin tunnan
er alltaf að breytast.
Stundum finnst manni op-
ið til hægri vera nær, en á
næstu sekúndu er það hitt
opið. Reynið að teikna
svona tunnur sjálf.
f stað þess
að stoppa í
Setjið heklaða bót á götóttan sokk.
Fitjið upp 5 loftlykkjur og heklið þær
saman i hring. Siðan 12 fastalykkjur
um hringinn og lokið með einni
keðjulykkju. I þriðju umferð eru
heklaðir tveir stuðlar i hverja lykkju
allan hringinn. Þá er skipt um lit, og
1 næstu umferð heklaðir til skiptis
einn og tveir stuðlar i lykkju allan
hringinn. t siðustu umferð er aftur
skipt um lit og siðan heklaður einn
stuðull, aftur einn stuðull, og siðan
tveir, og það endurtekið allan hring-
inn.