Heimilistíminn - 07.03.1974, Blaðsíða 38

Heimilistíminn - 07.03.1974, Blaðsíða 38
Tannhirðing barna: Aldrei of snemmt að læra ÞAÐ Hún er á leiðinni... Nánustu ættingj- ar eru látnir vita og þeir fjarskyldari frétta það einhvern veginn. Svo biða aliir spenntir. Loksins kemur hún svo — fyrsta tönnin. Þegar tekið er tillit til þess, hvað þetta er mikill atburður, einkum þegar um er að ræða fyrsta barnið — er undarlegt hvað fyrsta tönnin og hinar sem á eftir koma, virðast skipta litlu máli fyrir heimilisfólk- ið þegar fram i sækir. Ekki þannig að skilja, að venjulegt hreinlæti sé ekki i lagi. Tennurnar eru burstaðar regiulega og tannlæknirinn heimsóttur tvisvar á ári. En þetta gæti þó verið betra. Ar frá ári fjölgar skólabörnum með skemmdar tennur. En Inger Bay, sem er yfir skólatannlæknum i Kaupmannahöfn er á þeirri skoðun, að skólabörn með skemmdar tennur eigi alls ekki að þurfa að vera til. Hún segir, að foreldrar viti i rauninni allt of litið um tannhirðingu og geti þar af leiðandi ekki kennt börnum sinum. En hvað er það þá, sem foreldrar eiga að vita? — Að sykur og bakteriur i sameiningu valda þvi óhjákvæmilega, að tennur skemmast. — Hvernig má það þá vera, að sum smábörn fá skemmdir i tennur en önnur ekki, þó að tannhirðing og mataræði sé eins. — Það er viss sannleikur i þvi, þegar sagt er: ,,Ég hef þessar slæmu tennur frá honum pabba”. Við fæðumst öll með mis- I

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.