Heimilistíminn - 07.03.1974, Side 42
hafi fært þeim litla systur eða lítinn bróður,
meðan mamma þeirra er á fæðingardeildinni.
— En ég vil einmitt, að Jón viti allt um þessa
hluti, sagði mamma. Ég ætla nefnilega að eiga
barnið heima, og þá verður Jón að vita bæði
eitt og annað um börn.
— Ætlarðu að vera heima? stundi amma, og
svo leið yfir hana við simann. Amma er nefni-
lega svo yfirliðagjörn.
Jón heyrði ömmu detta og hljóp fram i
forstofu að simanum. Hann lagði bara á, og svo
skvetti hann íullu vaskafati af isköldu vatni
yfir hana ömmu. Amma raknaði fljótt við sér,
og hún var reið og leið. Hún var nýkomin úr
lagningu, og nú var Jón búinn að skemma hár-
greiðsluna hennar. Svo að Jón fékk skammir,
og átti þær líka skildar. Hvað var hann að aug-
lýsa fréttina um nýja barnið strax? Mamma
vissi næstum ekki með vissu, hvort þau fengju
nýtt barn eða ekki!
Það virtist þó ætla að verða eitthvað úr
þessu. Maginn á mömmu varð alltaf stærri og
stærri. Jón hafði það á samvizkunni, að hann
hefði stungið upp á þessu. Hann hafði mömmu
helzt grunaða um að hafa borðað litið barn, þvi
aö manna sagði, að litla barnið væri inni i
maganum á sér.
— Heldurðu, að það sé strákur? spurði Jón.
— Það veit ég ekki, fyrr en barnið kemur,
svaraði mamma.
— Mig langar að fá strák, sem getur farið i
fótbolta með mér, sagði Jón ákveðinn.
— Kannski verður það stelpa, sagði
mamma.
— Oj, barasta, sagði Jón. Ég þoli ekki
stelpur. Jón var nefnilega að verða sjö ára, og
á þeim aldri þola strákar helzt ekki stelpur,
nema þær séu frænkur þeirra eða stórar góðar
nema þær séu frænkur þeirra eða stórar, góðar
systur, já og svo auðvitað mömmur. Hann fékk
hátiðlegt leyfi til að skreppa til ömmu, sem
vildi gjarnan hafa hann hjá sér. Henni þótti
bæði skemmtilegt að fá Jón i heimsókn, og svo
vildi hún, að mamma fengi hvild, á meðan
barnið væri inni i maganum á henni.
Amma hafði hitað súkkulaði og ristað brauð
Iianda Jóni, en hún sá það á svipnum á honum,
að honum lá eitthvað á hjarta.
— Hvað er að, Jón minn? spurði amma,
þegar Jón hafði hesthúsað átta ristaðar brauð-
sneiðar og drukkið fimm glös af súkkulaði. Jón
þagði og smurði sér niundu brauðsneiðina og
setti allvæna ostsneið ofan á hana. Amma fór
að hugsa um það, hvað Jóni þætti gott að borða.
Hún vonaði, að litla barnið yrði ekki jafn-
matlystugt og Jón. Það myndi hreinlega éta
liana út á gaddinn. Amma mundi eftir
gamalli visu um Jóna, og visan hún er svona:
Stóri Jón er stundum eins og strá i vindi,
skelfur hann og skellur flatur, skemmtir
honum góður matur.
Jón smurði sneiðina sina vel og vandlega.
Hann fékk sér lika stóra og feita ostasneið ofan
á hana. Hann tuggði lengi og vandlega. Hann
fékk sér meira súkkulaði og kyngdi og kyngdi.
Amma bara beið og þagði. Ömmur læra það
með aldrinum, þvi að þær eru búnar að ala upp
svo mörg börn, og þær hafa nú haft hann afa
lika. Svo fá þær barnabörnin i heimsókn ár og
tið, og þau vilja frekar fá að tala en láta tala
við sig, ja, nema ef vera kynni, að lítill krakki
segi: — Æ, segðu mér nú sögu. Og þess vegna
þagði amma og beið eftir þvi, að Jón talaði.
Þegar Jón hafði lokið siðasta munnbitanum og
drukkið dreggjarnar af súkkulaðinu, sagði
hann loks:
— Heyrðu amma, borðaði hún mamma min
litlu systur mina og litla bróðir minn i einum
munnbita? Þá skellti amma upp úr.
— Nei, vinurinn minn sagði hún. Barnið vex
bara inni i maganum á henni og stækkar.
— Hvernig komst það þangað þá? spurði
Jón. Mamma segir, að þau pabbi hafi búið
barnið til.
— Jón minn, sagði amma alvarleg. Guðs
vegir eru órannsakanlegir, og ég segi þér það
dagsatt, að hér hefur Guð átt hlut að máli.
— Jæja, hugsaði Jón. Þá bjuggu pabbi og
mamma litla barnið til, en Guð fékk að hjálpa
svolitiö. Annars var mamma skrýtin i þessum
stóru viðu kjólum, sem hún gekk alltaf i. Hún
var eins og stór kjötbolla. Hann kallaði hana
lika mömmu kjötbollu, og hvorki mamma né
pabba sögðu neitt við þvi. Þau hlógu bara að
honum. Pabbi sagði, að barnið i maganum
hennar mömmu ætti að heita litla lús, og hann
klappaði alltaf á magann á henni, þegar hann
fór i vinnuna á morgnana. Jóni fannst það
skrýtið, og hann talaði um þetta við ömmu.
— Mamma var orðin öðruvisi en venjulega.
Það var eiginlega ekkert hægt að ræða við
hana. Hún var alltaf að fara í skoðun eða
sauma og prjóna á litla barnið. Amma sagði,
að mömmur yrðu svona yfirleitt, þegar þær
Framhald
42