Heimilistíminn - 05.06.1975, Blaðsíða 16
Einkastjörnuspáin
5. júní
Stjörnurnar sýna, aö llf þitt veröur til-
breytingarríkt mjög. Þú neyðist alltaf til
aö vera að breyta einhverju til að geta
fylgzt meö þeim aöstæðum, sem möta
örlög þln. Likindi eru á að fólk sem máli
skiptir komi inn i lif þitt á 17., 24. og 31.
aldursári þinu. Vertu viðbúinn, svo þú
getir notið sem mests góðs af þvi, sem við
þér blasir á þessum timabilum. Þú hefur
mikinn áhuga á öllu, sem er nýtt og sér-
stætt að einhverju leyti.
Þegar þú velur þér starfssvið, leitarðu
gjaman að einhverju, sem þú getur komið
hugmyndum þinum inn i og þær leiða
stundum margt gott af sér fyrir samtfð-
ina. Það sem þú reynir að koma á fram-
færi, verður ef til vill ekki meðtekið með-
an þú ert ofanjarðar, en verður vel metið
siðar. Vertu viðbúinn þvi að mæta gagn-
rýni samtiðarinnar á vinnubrögðum þin-
um, en hvað sem sagt kann að verða,
skaltu verja gerðir þinar af kappi.
Þar sem tilfinningar þinar eru sterkar
og móta alla persónuna, verðurðu mjög
hamingjusamur ef þú giftir þig snemma.
Ef svo fer ekki, muntu eiga i hverju ástar-
sambandinu á fætur öðru i von um aö
finna það eina rétta, en þegar þú svo
finnur þaö, breytir þvi enginn. Þú verður
rólegri og ánægður. Þú ert einn af þeim,
sem gerir allt fyrir þann, sem þú elskar
og verður þolinmóðasta foreldri.
6. júni
Frumlegur og uppátækjasamur eins og
þú ert, er vissara fyrir þig að vera alltaf
viðbúinn breytilegum aðstæðum. Þú
stendur alltaf fyrir skoðunum þinum. Ef
þær mæta andúð, styrkir það bara
sannfæringu þina og þú verður enn
ákveðnari. Þú verður óþolinmóður, ef þú
nærð ekki takmarki þinu eins fljótt og
hægt er. En I stað þess að kvarta, ættirðu
aö gera eitthvað raunhæft, sem kemur
þér yfir erfiðleikana.
Þar sem bönd þin við heimili og fjöl-
skyldu eru mjög sterk, langar þig ekkert
til að yfirgefa bernskuheimili þitt, fyrr en
þú giftir þig. Bezt væri, að þú fyndir þér
æfifélaga snemma, það hefði góð áhrif á
þig og þú leggðir á þig meiri vinnu til að
komast áfram.
Þegar þú verður ástfanginn, gerist það
skyndilega, og óforvarendis. Endi það
ekki með hjónabandi, getur svo farið, að
þú giftir þig aldrei.
Þótt þú sért hagsýnn og rökrétt hugs-
andi að eðlisfari, kanntu vel að meta létt-
ari hliðar lífsins og tilverunnar og
skemmta þér. Stundum finnst þér, að slikt
eigi alls ekki viö i alvarlegri leit þinni að
frama. En þú verður bara að læra að gera
einn hlut i einu. Vinna og skemmtanir i
hæfilegu hlutfalli gefur beztan árangur.
Þú ert ekki allt of likamlega hraustur, en
hins vegar er andlega orkan stundum of
mikil miðað við hitt.
7. júni
Þú hefur fjölþætta hæfileika, en þú
verður að temja þér að láta ekki skap-
vonzku ná tökum á þér, ef þér á að takast
að nýta þá. Þótt dómgreind þin sé góð,
verður hún oft fyrir áhrifum af hugboðum
og þú átt erfitt með að skýra gerðir þinar.
Þú veizt aðeins, að þú finnur eitthvað á
þér. Þú gerir þó rangt i að framkvæma
þvert ofan I það sem hugboðið segir þér.
Ef þú framkvæmir samkvæmt þvi, sem
þér dettur fyrst i hug, geriröu rétt og það
verður þér til hins betra.
Þú hefur sköpunarhæfileika, einkum á
sviði tónlistar, bókmennta og myndlistar.
Hjá sumum koma þessir hæfileikar Iitt
fram og hjá öðrum ekki fyrr en s'eint á æv-
inni en enn aðrir eru taldir undrabörn.
Foreldrar sem eiga börn, fædd þennan
dag, skulu vera á verði og fylgjast með
listrænum hæfileikum, sem kunna aö
koma snemma fram i barninu,
Allir sem fæddir eru þennan dag, hafa
sterkan persónuleika, eru framúrskar-
andi til samræðna og hafa mikla kimni-
gáfu. Einkum eru konur vinsælar i sam-
kvæmislifinu og eru framúrskarandi
gestgjafar. Þeim hentar vel að vera giftar
háttsettum mönnum og skipuleggja heim-
ilið eins og fyrirtæki. Þeim hættir stund-
um til að daðra og það getur orðið til að
þær eiga oft i vandræðum með ástamálin.
16