Heimilistíminn - 05.06.1975, Side 19
Föndurhornið
Hvað
smíða
þau í
barna-
skólunum?
Nú er farið að kyrrast um i smiðastofum
skólauna, þvi börnin eru i sumarfrii frá
námi. En á veturna er þar ys og þys og
margar starfssainar hendur á hreyfingu.
Hvað er það þá, sem þau smiða? Já, ég
segi ,,þau” vegna þess að i sumum barna-
skólum er blandað saman strákum og
stelpum i smiðinni og gefst það vel. Ef við
litum inn, til dæmis i 9 ára bekk, gæti ver-
ið að börnin væru að saga út dýr, þessi
sem við sjáum á meðfvlgjandi myndum.
Efnið i þau gæti verið 5 mm birkikrossvið-
ur i skrokkunum, en 3 mm krossviður i
fótunum. Fæturnir, sem sagaðir eru út
sérstaklega <2 stk) eru limdir á skrokk-
ana með griplimi.
Ekki þarf að taka það fram, að bezt er
að geta sagað með laufsöginni sem allra
nákvæmast eftir útlínum dýranna, þá
þarf ekki að slipa eins mikið með sand-
pappír á eftir.
Ef það eru nú samt áberandi ójöfnur á
hinum útsagaða grip, getið þið ef til vill
sorfið þær af með finni þjöl. Sandpappir-
inn er alltaf notaður sfðast. Dýrin mætti
að siðustu mála með þekjulitum eða
liörpu-silki. Þessar teikningar eru fengn-
ar á Fræðsluskrifstofu R.vikurhjá Bjarna
Ólafssyni, umsjónarkennara i smiöum.
Það koma fleiri teikningar I næsta blaði.
— Ég hélt að þú værir sjónvarps-
stjarna. lni sagðist standa framan við
myndavélarnar.
— Vitleysa. 97 ára milljónamæringur
er alls ekki gamall.
nr~::.............
HVAÐ VEIZTU
1. Er blýiö i blýantinum úr blýi?
2. Eftir hvern er Eroica-symfónian?
3. Fyrir hvaöa sögu er rithöfundur-
inn Daniel Defoe frægur?
4. Hvar er Fort-Lamy höfuðborg?
5. Er sagan „Umhverfis jörðina á 80
dögum” eldri en 100 ára?
6. t hvaða riki er Monte Carlo?
7. Hvaðheitir leynilögreglumaöurinn
i bókum Agöthu Christie?
8. Hvað hét þjónn Don Quijotes?
9. Papageno og Tamino eru persónur
i óperu? Hvaða?
10. 1 hvaða borg átti Anna Frank
heima?
Hugsaðu þig vandlega um — en svörin
er að finna á bls. 39.
— Ég ætia að gefa þér tækifæri til að
verða eitthvað, Viggó.
Þú ert rekinn.
19