Heimilistíminn - 13.05.1976, Blaðsíða 22

Heimilistíminn - 13.05.1976, Blaðsíða 22
Sönn saga af dádýri, frá Noregi kom (rfan frá. Þá varö Jón hræddur og tók til fótanna, sem hann frekast mátti. Ein- hver hlaut aö vera i hættu staddur! Brátt kom hann auga á viðkomandi: A miðjum járnbrautarteinunum lá dádýr! begar það sá Jón, reyndi það að standa á fætur, en gat það ekki. Það stóð á hnjánum með skelfingarsvip i augunum. Jón gekk varlega nær. Þetta var liklega eitt af dýrunum úr skóginum. Þau höfðu oft komið inn á túnið og meira að segja inn i garðinn. Dádýrið var órólegt, þegar Jón kom alveg að þvi og þá sá hann, að annar framfótur þess var fastur. Hann hafði runnið niður i þrönga, djúpa holu undir einni þverslánni. Grannur fóturinn var þarna i spennu og þetta hlaut að valda miklum sársauka. Fyrsta hugsun Jóns var að ná i pabba sinn. — Biddu aðeins, þá skal ég hjálpa þér, sagði hann við dádýrið, sem starði á hann stórum, óttaslegnum augum. En hann vissi, að það gæti orðið um seinan. Ef hraðlestin kæmi núna, var ekkert hægt að gera fyrir veslings dýrið. Hann vissi, að hennar var von bráðlega. Móður og másandi kom hann þjótandi inn i stofu, þar sem faöir hans var að fá sér miðdegisblundinn. — Pabbi, pabbi, þú verður að vakna! hrópaði hann. — Það er dádýr fast i járn- brautarteinunum og lestin fer að koma! Pabbi reis upp og nuddaði augun. Svo skildi hann það sem Jón hafði sagt og leit á klukkuna uppi á veggnum. An þess að segja orð, spratt hann á fætur, stökk i stigvélin og þaut út með Jón á hælunum.- — Það er beint fyrir neðan stóru björkina, kallaði Jón á eftir honum. Hann hafði alltaf haldið, aðhann væri fljótari að hlaupa en pabbi hans, en það var vist vit- leysa, þvi þótt hann hlypi eins og hann gat, varð pabbi hans langt á undan til dádýrsins. Hraðlestin ætti að vera komin, sagði pabbi móður. — Þú verður að gá að henni, meðan ég reyni að losa vesalinginn litla. Þaö var eins og dýrið skildi, aö hjálpin var komin. Það lá grafkyrrt og veitti engan mótþróa, ekki einu sinni, þegar pabbi lyfti þvi upp til að losa fótinn. En fóturinn var fastari en hann hélt. Ef hann tæki of fast á, gæti dýriö fótbrotnaö. bað leið löng minúta. Jón hafði hlaupið „Dáddý' Vorið var komið i sveitina. Jón og Eva voru i paradis á hlaðinu, þau voru systkini og léku sér nær alltaf saman. Eirikur litli bróðir þeirra var bara ársgamall og sat nær alltaf i vagninum sinum einhvers staðar þar sem móðir hans gat haft auga með honum. Hann var enn of litill til að leika sér, en Jón og Eva gættu hans oft. — Þú verður að fara og finna flafari stein i paradisinn, sagði Eva við Jón og hann þaut niður túnið niður að grjót- urðinni. Snjórinn var farinn og það var langt siðan fyrstu steinarnir höföu komið upp úr. Þarna voru komin þlóm lika, hann yrði að fara aftur og tina dálitiö handa mömmu. Meðan hann sparkaði til steinum og rótaði til aö finna hentugan paradisar- stein, heyrði hann öðru hvoru einkenni- legt hljóð. Það var eins konar óp og i fyrstu hélt hann að það væri Eirikur litli, sem alltaf var að finna upp ný hljóð. En brátt gerði hann sér grein fyrir að hljóðið kom úr annarri átt. Það hlaut einhver að vera niðri við járnbrautarteinana, sem lágu þarna framhjá neðan við grjót- urðina, en Jón sá ekki teinana, þar sem hann stóð. — Eva! kallaði hann, en fékk ekkert svar. Hún hlaut að hafa farið inn með Eirik. Jæja, þá yrði hann að fara einn niður. Ef einhver var á teinunum núna, gæti það reynzt hættulegt og honum fannst hann verða að athuga máliö. Hrað- lestin kæmi bráðlega þjótandi og það gat verið of seint að forða sér, þegar hún kæmi fyrir hæðina. Jón gekk alveg fram á brúninal og leit niður. En einmitt þarna var sveigja á teinunum og þeir hurfu til beggja átta. Atti hann að fara upp meö þeim eða niöur? Þá heyrði hann ópiö aftur. Það 22

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.