Heimilistíminn - 13.05.1976, Page 30
Ef tilfinningar þinar eru hreinar,
eru likur á aö þær séu endurgoldnar.
Vinur eða ættingi getur verið á önd-
verðri skoðun við þig, en reyndu
ekki að tala um fyrir honum. Fjár-
hagurinn er sæmilegur, þrátt fyrir
óvænt útgjöld. Kauptu ekki óþarfa.
Ef þér finnst þú þreytast, þá gættu
þess að ofreyna þig ekki á vinnu.
Steingeitin
21. des — 19. jan.
Ef samlifiö er ekki alfullkomiö,
getur það breytzt til hins betra. Þú
fylgist meö og apar eftir vini þinum,
en hefðir betur farið öðruvisi að.
Eftir nokkurra daga bið færðu meiri
peninga, og þú skalt greiða það sem
mest liggur á, en fresta ööru. Þú ert
hlaðinn orku og vilt helzt gera allt i
einu, en gættu þess að ofreyna þig
ekki.
Fiskarnir
19. feb. — 20. mar.
Þrjózka þin fer I taugarnar á fólki,
sem þykir vænt um þig. Hvers vegna
ekki að láta svolitið undan? Ef þér
finnst vinur þinn skipta sér of mikið
af einkalifi þinu, mundu þá að hann
gerir það i góðum tilgangi. Þú ert vei
staddur fjárhagslega um þessar
mundir, en gættu fjárins og lánaðu
helzt engum. Eitthvað sem þú ert að
gera, veröur allt I einu þýðingar-
meira i augum þinum en áður.
1 ástamálum mætirðu meiri
andstöðu og minni áhuga en áður.
Þér gefst aftur tækifæri til að
umgangast gamlan vin, og þið fórnið
miklu fyrir sameiginlegt tómstunda-
áhugamál. Þér finnst þú rikur þessa |
dagana, en láttu það ekki freista þin'
til aö eyða of miklu. Nú kemur brátt I
ljós árangur af erfiðu verkefni, og
þér er óhætt að anda léttar og hvila
þig dálitið.
Reyndu ekki að leyna vini þina
neinu, þaö kemst upp. Þú kemst ekki
hjá að umgangast ákveðna
manneskju svolitiö, en huggaðu þig
viö, aö það veröur aðeins stutt. Þrátt
fyrir aö þér finnst allt vera of dýrt,
kaupiröu þér einhvern óþarfa. Þér
tekst vel að leysa ákveðiö verkefni
og færö hrós fyrir. Njóttu ánægjunn-
ar.
Þú skalt taka þvi sem að höndum ber
i ástarmálunum, það þýöir ekki að
þrjóskazt viö örlögin. Ef þú ert hepp-
inn, getiír veriö aö einhver öfundi
þig, en sértu óheppinn, hlakkar I vini
þlnum. Þú mátt vera ánægðu/ meö
fjárráöin og gengur vel aö leysa þau
fjármálavandræði, sem birtast.
Einhver trúir á þig og biöur eftir
árangri. Þér er lika fyllilega ljós
ábyrgð þin I þvi efni.
Ef þú vilt stofna til nýs sambands,
skaltu ekki vera svo ákafur aö þú
fælirburt „fórnarlambið”. Ef þú ert
i vafa um eitthvað getur orðið góö
hjálp að þvi að tala við skilnings-
rlkan vin. Þú ætlar aö kaupa
eitthvað, en fjárhagurinn leyfir það
ekki. Biddu með það. Hvað vinnuna
varðar, skaltu taka eitt skref i einu
og vera þolinmóður.
30