Heimilistíminn - 13.05.1976, Síða 31
I ástamálunum skiptast á skin og
skúrir, en þó skin heldur meira en
hitt. Ef þú ferð að ráðum vinar þins,
kemstu að raun um, aö þér heföi
veriö hollara aö treysta sjálfum þér.
Fjármálin eru undir heillastjörnu.
Þú færö meira fyrir peningana og ert
ánægöur. Syndu, aö þú getir veriö
áreiðanlegur og stundvis. Láttu
engan biöa eftir þér og veröa fyrir
vonbrigðum.
Sporðdrekinn
23. okt. — 22. nóv.
Biddu ekki meö aö taka frumkvæðið,
þvi i vikubyrjun er heppnin með þér i
ástamálum. Gleymdu ekki einhverj-
um, sem biður eftir þér, eða
einhverju sem þú hefur lofaö —
viðkomandi gæti veriö náinn ættingi.
Þótt þér áskotnist fé, eru fjármála-
áhrifin fremur óhagstæð: reyndu að
halda útgjöldunum I lágmarki.
Þreyttu þig ekki á nýjum eöa
erfiðum verkefnum, faröu heldur
hægt, þá gengur vinnan betur.
Bogmaðurinn
23. nóv. — 20. des.
Þaö verður rólegra I ástamálunum,
og reyndu að láta ekkert trufla það.
Láttu ekki vin þinn festa þig neins
staðar, svo þú getir ekki gert það
sem þig langar til. Ef þér hættir til að
fleygja peningunum I allar áttir,
skaltu leggja eitthvað til hliðar og
geyma til mögru daganna. Leiðin-
legar hversdagsskyldur geta komið I
veg fyrir að þú sinnir verkefni, sem
þú hefur áhuga á.
Þú hefur ekkert á móti svolitlu daðri,
en láttu það ekki eyðileggja fyrir þér
gott samband. Vini tekst að tala um
fyrir þér, en ef þú sérð eftir öllu
saman, skaltu ekki kenna honum um
þaö. Heillastjarna sér um f jármálin,
og þér er óhætt að kaupa hlut, sem þú
hefur hugsað um lengi. Verkefni,
sem þér fannst áður leiðinlegt og
erfitt, gengur nú betur, þar sem þú
hefur fengið góð ráð og uppörvun á
vinnustað.
Vogin
23. sep. — 22. okt.
Ef snurða hleypur á þráöinn, skaltu
ekki láta stolt eða óframfærni hindra
sættir. Þér verður boöið I smkvæmi,
sem þú hefur hlakkaö til. Gættu þess
að fara varlega með peningana,
meðan þú átt eitthvað af þeim, og
skipulegðu útgjöldin á næstunni. 1
fréttum, tilboði eða uppástungu geta
falizt miklar breytingar, en visaöu
þeim ekki á bug fyrr en þú hefur
Ihugað málið vel.
LU
o»
(A
C
«
D
UJ
o-
c
‘ö
— Nei, en gaman, að þú skyldir eiga leið fram-
hjá!
1 fljótu bragði virðast myndirnar eins, en þó hefur sjö atriðum
verið breytt á þeirri neðri. Beitið athyglisgáfunni, en ef alit um
þrýtur, er lausnina að finna á bls. 39.