Heimilistíminn - 02.12.1976, Page 17

Heimilistíminn - 02.12.1976, Page 17
Hvert loforð vér lesum úr fræðum i legsteinsins fastmæli bundið Að síðar vér söfnumst í hæðum er svefnþunga grafar mun hrundið. í griðastað duftið skal gista án greiningar tímans er líður, unz hafið til himneskra vista það heimtir þá önd sem þess biður. Því eitt sinn muni vaknandi kraftur í kulnuðum líkama hrærast og yljandi blóðstraumur aftur um æðarnar stirðnaðar færast. Að haustlagi hverfur það sæði og hylst undir biturleik frosta, sem von er að vorsólin glæði og veki til gróandi kosta. Eins lyftast þeir limir að nýju úr lægingu, myrkrum og doða, sem hressast við birting og hlýju frá himni sem glóir í roða. Ein gjöf er sem dauðinn oss gefur, þótt grimmd hans til jarðar oss beygi, vor hjörtu til drottins hann hefur, til heimferðar býr hann oss vegi. Hirð barn þitt, ó mold þú hin milda, i móðurskaut hóglega vafið, og vit þér er sköpuð sú skylda að skila því næ þess mun krafið. Þar átti sá andi sér skýli sem aldrei þá trú sína missti að hugskotið óttalaust hvíli í hjálpræðisvonum frá Kristi. Lát geymdan, ó gröf, hjá þer una hinn gangmóða, veit honum friðinn, unz drottinn skal mynd sína muna að morgni þá nóttin er liðin. Nær bergstuðlar jarðríkis braka og básúnur englanna hljóma, mun alvaldur eign sína taka til yngingar, dýrðar og blóma. Jón Helgason prófessor. 17

x

Heimilistíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.