Heimilistíminn - 12.02.1978, Page 8
Susan, eiginkona Frank Wiebe, situr hér
og saumar á meöan maöur hennar leikur
viö soninn Peter, sem er fimm ára. Þau
eiga auk þess tvær dætur, Mary 7 ára og
Tinu 3 ára.
nágrannar. Það var friðsamt og sjálfu sér
nægt og heiðarlegt. En hver mis-
skilningurinn reis af öðrum,
mestmegnis vegna sakleysis
fólksins sjálfs og þekkingarleysis
þess á nútima lifsháttum. Nú bendir allt
til þess, að Wiebe og fólk hans eigi eftir aö
sjá draum sinn verða aö engu.
Þvi miður er það ekkert nýtt, aö Menn-
onitarnir verði fyrir áföllum og vonbrigð-
um. Trúflokkur þessi var stofnaður i
Evrópu fyrir meira en fjórum öldum, og
alla tíð siðan hefur fólkiö þurft að vera á
eilifum flækingi stað úr stað, land úr landi
i leit að varanlegum samastað. Mennonit-
arnir vilja ekki taka þátt i styrjöldum, og
neituöu þvl ætíð aö láta skrá sig til her-
þjónustu. Eftir fyrri heimstyrjöldina
fluttist allstór hópur frá Evrópu vestur
um haf.
Texas fyrirheitna landið
í augum 450 Mennonita
— en nú geta þeir átt eftir að tapa aleigu sinni
Enn flytjast menn i stórum
hópum til Bandaríkjanna og enn
dreymir innflytjendurnar stóra
framtiðardrauma. Einn þessara
manna er Frank Wiebe. Hann
segir: Allt mitt líf haföi ég hugs-
að um það/ að einhvern tíma
myndi ég eignast mitt eigið land.
Hann talar enskuna með sterkum
þýzkum hreim. — Okkur langaði
til þess að fá að búa hér, þar sem
lögin eru svo góð, og þar sem við
gætum verið eins og ein stór f jöl-
skylda, og gætum menntað börn-
in okkar á þann hátt sem við trú-
um aö sé hinn eini rétti.
Wiebe, sem er 25 ára gamall, er ritari
Mennonita-samfélags, sem stofnað hefur
verið I Texas. Nærri 450 Mennonitar komu
snemma á siðasta ári til Bandarikjanna
og settust að á afskekktum stað i vestan-
verðu Texas, um 35 km frá bænum
Seminole.
Þetta nýaðflutta fólk reyndist hinir beztu
Frank Wibe hefur reynt aö rækta baö-
mull, og þaö tókst, en maisuppskera hans
brást vegna þurrkanna.
Fyrir rúmum fimmtiu árum stofnuöu
Mennonitarnir nýlendu i Chihuahua-riki i
Mexikó, og þar fæddist Wiebe. Fljótlega
kom þó að þvi að alls kyns óaldarlýður tók
aö gera Mennonitunum lifið leitt um þess-
ar slóðir, og fór svo að Wiebe og margir
aðrir fluttust til Kanada. Þar var land
dýrt, og varð það til þess að fólkið dreifð-
ist viöa. Fyrir rúmu ári barst svo út sú
saga meðal bræðranna I þessum trúar-
söfnuði, að nóg væri um land i Texas, og
það væri selt á lágu veröi. ófrjósamt og
vindblásið landið virtist þó tæpast vera
eftirsóknarvert. Sendiboðarnir fóru þó af
stað og litu á það, sem i boði var og lýstu
þvi yfir, að hægt væri aö vinna landið, og
ekkert væri út á það að setja, sem áveitur
og mikil vinna bættu ekki úr i framtfð-
inni.
Mennonitarnir söfnuöu nú saman öllu
þvi fé, sem þeir gátu, og tókst að afla 445
Mennonita-biskupinn Henry Reimer neit-
ar þvi, aö hann hafi leitt fólk sitt út I vit-
leysu. Hann segir, aö hér sé einungis um
misskiining aö ræöa.