Heimilistíminn - 12.02.1978, Blaðsíða 18

Heimilistíminn - 12.02.1978, Blaðsíða 18
 SVISSNESK HNETUKAKA I þessari hnetuköku eru eftirtalin efni: 2 egg, 1 3/4 dl. sykur 2 1/2 dl. hveiti, 150 grömm heslihnetukjarnar (2 1/2 -3 dl.) Hrærið egg og sykur vandlega. Bæt- ið hveiti og hnetukjörnum út i. Hellið deiginu i aflangt form, sem tekur ca. 1 litra Bakið hana siðan við veikan hita, ca. 150 stig i ca. 50 minútur. Leggið voiga kökuna i raka þurrku og látið hana vera þannig innvafða i fjóratil fimm klukkutima. Kakan má lika vera þannig innvafinn yfir nótt- ina, ef stykkið helzt rakt nógu lengi. Skerið kökuna svo niður i þunnar sneiðar og notið til þess beittan hnif. Leggið sneiðarnar á ofnplötuna og setjið inn i ofninn, ca 225 stiga heitan og þar eiga þær að vera þar til þær eru orðnar Ijósbrúnar. V. 18 POTTRÉT EINNIG H Pottréttir hafa ekki verið mikið notaðir hér á landi þótt vinsældir þeirra fari heldur vaxandi. Þeir likjast ef til vill að vissu leyti kjöt- súpunni okkar eða bauna- súpunni, en munurinn er að- eins sá, að soðið er ekki skil- ið frá, heldur er allt borið fram i einu lagi, og rétt- inum ausið upp á disk, bæði grænmeti, soði og kjöti. Það þarf ekki að vera mikið fyrir- tæki að ráðast i að búa til góðan pott- rétt til dæmis fyrir einhverja veizlu, jafnvel þótt gestirnir verði nokkuð margir. Það eina sem breytist er magnið. Þvi meira af kjöti og græn- meti, þeim mun fleira sem fólkiö er. Timinn, sem fer i að búa til réttinn er alltaf álika langur. Pottréttir geta lika verið dýrir og ódýrir eftir þvi hvaða efniþið veljið i þá. Stór kostur við pott- rétt er, að hann er tekinn beint af plöt- unni og settur á matborðið, og hann ætti þvi' að geta verið rjúkandi heitur, þegar matarveizlan hefst. Með honum er heldur ekki boriö fram svo margt annað, aö engin hætta er á þvi að helmingurinn af matnum sé orðinn kaldur, eða hálfkaldur, þegar byrjað er að borða. Og svo koma hér þrir einfaldir pott- réttir. Þið getið breytt til hvað snertir grænmetið, sem stungið er upp á. Tak- ið það sem þið eigið i skápnum, eða það sem auðveldast er að fá i verzlunum, hverju sinni. Gætið þess aðeins að sjóða það ekki of lengi. Setjið það seinna út i, ef það þarf minni suðu, en það, sem hér er talað um. V etrarpottréttur 300 gr. gúllasbitar, 1 tsk. salt, 1 lár- berjablað, 5 kryddpiparkorn, 1 litil rófa, 2 stórar gulrætur, 2 laukar, 6 kartöflur, 4 dl af kjötsoði, má vera af teningum, persille. Haf ið kjötbitana ekki of stóra. Brún- ið þá og kryddið, og hellið siðan ten- ingasoðinu yfir þá. Látið þá sjóða i 30 f

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.