Heimilistíminn - 12.02.1978, Blaðsíða 38
II I I l l náttúrunnar
»
Til eru maurar, sem í raun og
sannleika eru mestu fyrirmynd-
ar garðyrkjumenn. Þeir rækta
sveppi lengst inn í mauraþúfun-
um sínum og lifa svo á uppsker-
unni, þegar fram líða stundir.
Blaðskurðarmaurinn, sem til-
heyrir Attini-ættinni lifir i hita-
belti Ameríku. Með hinum beittu
tönnum sínum skera þessir
maurar þríhyrninga úr laufblöð-
um og bera svo bitana yf ir höfði
sér eins og sólhlífar. Þess vegna
hafa þeir meðal annars verið
kallaðir Sólhlífamaurar.
Lengi vel héldu menn, að
maurarnir notuðu blaðbitana
sem fæðu, en strax árið 1874
sýndi enski vísindamaðurinn
Thomas Bell fram á það eftir
athuganir, sem hann gerði í
Nicaragua, að maurarnir unnu á
blöðunum, sem þeir fluttu heim
til sin með kjafti og fótum og
möluðu þau eiginlega niður.
Blaðsallanum komu þeir svo fyr-
ir í mauraþúfunum sínum, og áð-
ur en langt leið voru þau orðin að
jarðvegi fyrirsveppi. Heill ger af
litlum garðyrkjumaurum gætir
garðsins og hreinsar meira að
seqja burtu illqresi.
Ræktunin er unnin kerfisbund-
ið og eftir ákveðinn tíma mynd-
ast „rófur", sem maurarnir og
lirfurnar lifa á. Þessi tegund
maura myndi deyja út, ef þeir
ekki hefðu þessa 'sérstöku fæðu
strax eftir fæðingu. Þess vegna
taka kvenmaurarnir ætið með
sér græðlinga úr sveppagarðin-
um, þegar þeir flytjast búferlum
og byggja sér nýja mauraþúfu.
Þar er svo plantað út á nýjan
leik. Ef mauraþúfan eyðileggst,
og maurarnir verða að leggja á
flótta, taka þeir ekki einungis
með sér lirfurnar heldur líka
sveppagróðurinn til þess að geta
hafið ræktunina á nýjum stað.
Hvaða bílamerki eru
þetta?
Hér sérð þú fjögur merki sem öll
eru á mjög þekktum biltegundum
Gctur þú munað hvaða merki er
á hverri tegund? Það var lftil
norsk stúlka, sem sendi ínn þessa
teikningu og gátu til norsks dag-
blaðs. Kannski eitthvert ykkar
gæti búið til álika þrautir fyrir
okkur. Við hefðum mjög gaman
af að birta þær.
Sjá lausn á bls. 16
Talnaþraut
Setjið tölurnar frá 1 f 9 i reitina f
þessum þrihyrningi, þannig aö
tölurnar fjórar á hverri hlið þri-
hyrningsins séu samanlagt 17.
38