Heimilistíminn - 19.03.1978, Blaðsíða 9

Heimilistíminn - 19.03.1978, Blaðsíða 9
Móðir EDiE D$0 S$IÐAST LIÐINN VETURÓ b$A 81 árs að aldri. Þá fóru sparipeningarnir, sem Edie hafði önglað saman i gegnum árin, um 5000 dollarar, og sömuleiðis það fé,sem þær mæðgurnar hfeðu fengið fyrir kvikmyndina. Rikið sá um, að það fengi sinn löglega skerf af þessum peningum. Þá gaf Edie 20 af kött- um sinum, lettist um 25 pund, tók sig til og þreif húsið og bauð það til kaups hverjum þeim, sem vildi borga 500 þúsund dollara fyrir það. Enginn kom. — Það er enginn hætta á að maður fái taugaáfall, ef maður hefur um nóg að hugsa, sagði Edie. Þá kom vinur hennar til skjalanna, og kom þvi tiLeiðar, að hún fengi að koma fram i klúbbi i New York, Reno Seeney, þar sem Diane Keaton, Captain & Tenn- ille og Odetta hafa fengið að sýna hvað I þeim býr. Enda þótt móðir hflnnar léti þau orð falla i myndinni, Grey Gardens, að hún syngi svo illa, að hún yröi að gera allt sem hún gæti til þess að draga athygli fólksins frá söngnum með einhverjum kjánaskap, þá lét Edie orð hennar sem vind um eyrun þjóta. — Ég geri þetta vegna þess, að ég þarf á peningunum að halda. Næturklúbburinn i Greenwich Village getur tekið á móti 200 gestum, og þar var allt yfirfullt, þegar hún kom fyrst fram. Edie fékk 7 dollara fyrir hvern gest, og I næsta skipti samdi hún um að fá 10 doll- ara á gest. Áheyrendur fögnuðu henni vel, þegar hún söng Tea for Two, As Time Goes By og tvö lög, sem hún sjálf hafði samið. Hún lengdi sýningu sina um hálf- tima með þvi aö svara skriflegum spurn- ingum frá áheyrendum. (Hvað finnst þér um sjónvarpið? Það er stórkostlegt, ef eitthvaö voðalegt kemur fyrir i landinu!) Klúbbeigandinn, Jim Maxcy, var svo- litið hræddur við, að Edie myndi detta einhver vitleysa i hug, og framkvæma hana óhugsað. Hann varaði hana við af- leiðingunum af sliku, og sagði: — Ef þú gerir einhverja vitleysu læt ég þig koma fram I öfugum fötunum. Edie kom fram iklædd blóðrauðum kjól með rauö plastlauf. Hún sagði áheyrend- unurn, að hún hefði búið þennan búning til úr gömlum fötum af móöur sinni. (—Per- sónulega finnst mér blátt miklu fallegra, sagði hún svo.) Þegar Edie er nú ekki að skemmta býr hún i Grey Gardens. Þarna sem hún ráfar um sali og ganga lætur hún sig dreyma um það, að einn góðan veðurdag geti hún ef tii vill breytt húsinu i næturklúbb. — Fólk heldur aö ég sé búin að lifa lifinu, en það er ekki rétt, hvislar hún. — Þetta er næsta harðneskjulegt. Égeralls ekki orö- in gömui. Ég veit ekki nokkurn skapaðan hlut. Segja má, að lif henar likist ljóði í söng- leik. Hver veit nema hún eigi eftir að syngja það sjálf. Þfb Edie er sextug, en hún segist enn vera ung, og eiga margt eftir ólært og ólifaö. Fjölskyldan hefur skammazt sin fyrir Edith vegna framkomu hennar og fátæktar, og nú syngur hún i næturklúbb i Greenwich Village 9

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.