Heimilistíminn - 30.04.1978, Síða 6
Ef þú ert gæludýravinur,
viðskiptafræðingur frá
Harvard eða beinasérfræðing-
ur er nafn þitt og heimilisfang
2 1/2 senta virði i Bandarikj-
unum. Ef þú ert töframaður,
afgreiðslustúlka á veitinga-
stað, sólarorkuverkfræðingur
eða lögreglumaður er það
metið á 3 1/2 til fimm sent.
Þetta er að minnsta kosti verðið, sem
Zeller Lists Inc setur á nöfn og heimilis-
föng fólks af þessum stéttum, en Zellers
er eitt af 21 þúsund fyrirtækjum, sem tek-
ur saman og selur lista yfir fólk úr ýmsum
stéttum þjóðfélagsins. Listarnir eru búnir
til i tölvum og síðan leigðir þeim, sem
hafa áhuga á að fá þá, en þaö geta verið
margir, allt frá fasteignasölum i Florida
til fyrirtækja, sem leigja veizluborð fyrir
stórveizlur.
Nú er talið, að hvorki meira né minna
en um 60 milljónir fjölskyldna séu á slík-
um listum, svo það er býsna stór hluti
bandarisku þjóðarinnar.
Nafn fjölskyldunnar getur veriö á miina
löngum böndum, meöal 700 þúsund nafna
Bandarikjamanna, sem eitthvað hafa
unnið sér til ágætis, eöa meðal 100 þúsund
verksmiðjuverkamanna, 50 þúsund örf-
hentra eöa 4 milljóna ellilifeyrisþega,
sem hættir eru að vinna. Nafnið getur lika
falizt meðal minni hópa, eins og þeirra
726, sem eru prófessorar I itölsku, 650
barnasálfræðinga eöa 260 manna, sem
sérhæft hafa sig I að klifra háa turna eða
byggingar og gera viö þær.
Ená hvaða lista, sem nafn Bandarikja-
mannsins hefur lent, þá er eitt vist, aö
hann fær mikiö af bréfum þess vegna.
Bandarisku póstyfirvöldin hafa komizt aö
þeirri niðurstöðu, að venjuleg fjölskylda
fái 2.6 bréf á viku vegna þess að nafn fjöl-
skyldunnar er á einhverjum þessara
merkilegu lista. Þvi hærri sem tekjur fjöl-
skyldunnar eru, og þeim mun menntaðri
sem hún er, þeim mun fleiri bréf má hún
búast við að fá.
Mest af þessum auglýsingabréfum —
78% samkvæmt athugun póstþjónustunn-
ar eru annaö hvort lesin strax eða lögð til
hliðar i þeim tilgangi að verða lesin siöar.
Könnun, sem gerð var meöal þeirra,
sem bréfin fá, sýndi, aö 43% töldu þau
færa gagnlegar upplýsingar, en 23%
sögöu að bréfin væru oft skemmtileg og
athyglisverö, en ekki sérlega gagnleg.
20% sögðu ennfremur, að hvorki væru
bréfin athyglisverð, skemmtileg né gagn-
leg, og 4% höföu enga skoöun á málinu.
Aðeins 9% þess, sem kom 1 póstinum
eftir áöurnefndum listum fór beint úr
bréfakassanum I ruslafötuna og var þar
með talinn vera hreint rusl I augum þess,
sem tók við þvi.
— Ég býst við þvi, aö ruslapóstur sé
það, sem þú ekki vilt lesa, segir Richard
Dematteis. — Ég er ógiftur, og þess vegna
myndu afsláttarmiöar fyrir barnamat
fara beint i ruslið hjá mér, en ég geri ráö
fyrir þvi að ungt fólk með börn kynni
betur að meta slikt.
En framleiðendur barnamatarins láta
sér ekki detta I hug að senda Pablum-aug-
lýsingar til piparsveina. Þeir fá lista yfir
fólk, sem nýlega hefur eignazt börn. Þess
vegna myndu þeir fá lista sem merktir
eru 2 milljónir foreldra (nýoröinna) eöa 3
milljónir mæðra, sem hafa nýlega fætt
eöa eiga von á barni. Dematteis átti eklti