Heimilistíminn - 17.05.1979, Síða 6

Heimilistíminn - 17.05.1979, Síða 6
fjölskyldan saman leinuherbergi, og eld- hiisi deilir hún með öðrum. Ekki fengum við aö heimsækja einkaheimili i Kina, svo ógjörningur er að lýsa þvi hér, hvernig fólkið lifir heima hjá sér. Engin fri Ef til vill myndu íslendingar eiga hvað erfiðast með að sætta sig við vinnuna, eins og hún gerist þarna fyrir austan. Fólk vinnur átta tima ádag, sexdaga vikunnar og fær aldrei sumarleyfi. Sjö dagar tinast þó til á ári hverju i einhvers konar fri, oger það i sambandi við 1. mai, nýáriö og kinverskar hátiðir aðrar. Þætti víst sumum litið um fri, á okkar mælikvaröa. Það gerðist þó á siðasta sumri, að starfsmenn Dagblaðs alþýðunnar fengu I fýrsta skipti i sögunni 10 daga sumarfrl. Voru þeir sendir út til austurstrandar- innar, þar sem þeir fengu að dveljast á baðströnd i þessa tiu daga. Ekki veröur þessi ferð endurtekin á þessu sumri, þar sem öllhótel ogallir strandbaðstaðir hafa þegar verið upppantaðir vegna annarra ferðamanna. Ekki fær fólkiö að heldur 10 daga fri i annað sinn, til þess að gera annað, en þetta, úr þvi strandferðin er úr sögunni. Sumarhöll keisarans og hin forboðna borg Að sjálfsögðu var farið með okkur til þess að sjá fornar minjar, eins og hallir keisaranna og annað álika. Þar gefur að lita listilegt handbragð og mikinn auð. Allt er slegið gulli og dýrir steinar viöa til skrauts. 1 hinni forboðnu borg, sem var heimili 24 keisara allt frá árinu 1368 til 1911 var allt iöandi i lifi. Þangað koma daglega um 10 þúsund gestir, að sjálfsögðu nær allt Kinverjar sjálfir, bæði ungir og gamlir. 6 Stærstur hluti keisarahallarinnar var byggður á árunum 1406 til 1420 og viö það verk unnu 1.2 milljónir manna dag hvern. Þetta eru tölur, sem viö eigum heldur erfitt með aö gera okkur grein fyrir, en það hefur þurft töluvert til , til þess að koma upp þeim tæplega 10 þúsund her- bergjum, sem þarna eru. Vlða, bæði I hinni forboðnu borg og I sumarhöll keisarans mátti sjá merki þess, að hinir illræmdu heimsvaldasinnar og lénsherrar höfðu farið þar um eyðandi hendi. Gullhúð hafði verið skafin utan af risastórum kerjum, sem höfðu geymt vatn til nota ef eldur kæmi upp i höllinni, ogbúddamyndir og önnur listaverk höföu verið eyðilögð. Var okkur bent á þetta og einnig sagt frá þvi, að óvinir Kinverja fyrr á öldum og árum hefðu flutt dýrmæt listaverk úr landi, og væru þau nú á söfn- um viða um heim. Eins og fyrrsegir var þarna allt iðandi i fólki, en erlendu gestirnir vöktu stundum jafnmikla athygli og hinar fornu minjar. Fólk nam staðar og horfði á okkur, eins og það hefði ekki séð útlendinga áöur. Fannst mér þá erfitt hve ólikir Kinverjar 'eru okkur I útliti, og þvi ekki hægt aö „hverfa i fjöldann”, þótt fjöldinn sé vist hvergi meiri en einmitt þarna. Dýr og blóm á nokkrum minútum í Peking fengum við lika að heimsækja glerverksmiðju þar sem fólk sat og skap- aði alls konar dýr og blóm úr glerstöng- um. Þaðtekurþrjú áraöveröa fullnuma I þessari list, og þegar fólk hefur náð tölu- veröri leikni er það ekki nema nokkrar minútur að breyta glerstöng f hest, hana eða pandabjörn,sem er fullur af lifi, eins og væri hann lifandi björn. Að lokinni göngunni á Kinamúrinn mikla var þessi mynd tekin af islenzka hópnum og fylgdarmönnum hans. A myndinni eru talið fra vinstri Gao Guyuan túlk- ur frá Dagblaði alþýð- unnar, Þorbjörn Guðmundsson, Morgun- blaðinu, Li Tianyi frá blaði I Kanton, Friða Björnsdóttir Tlmanum, Baldur óskarsson út- varpinu, HJELGI Á- gústsson utanrikisráðu- neytinu, Sonja Diego sjónvarpinu, Liu Zhen Xiang, Dagblaði alþýð- unnar Bragi Guðmunds- son Visi og Li Chin Cheng, sem starfaði um nokk- urra ára skeið í klnverska sendiráðinu I Reykjavik. Listamennirnir, en að vissu leyti er allt þetta fólk listamenn, leita gjarnan fyrir- mynda út i náttúrunni. Þeir fara I dýra- garðana eöa út 1 skóg til þess að finna sér nýjar og ferskar hugmyndir aö fram- leiðslunni. Glerverksmiöja þessi var sett á lagg- irnar áriö 1952, og þá steypt saman nokkrum eldri glerverkstasðum, sem áttu sér ekki framtiöarvon sem slik. Ný verk- smiðja var reist árið 1965 og er reksturinn með miklum blóma. Starfsmennirnir eru 620 og þar af um 60% konur. Rúmlega helmingur framleiöslunnar úr glerverksmiðjunni er seldur úr landi og fer til um 30 landa. Einnig er eitthvað framleitt fyrir innlendan markaö, hótel, verzlanir og þvi um lfkt og til sölu til feröamanna, sem ferðast um Kina. í grafhýsi keisarans Um þaö bil 50 kflómetra norövestur af Peking eru grafir 13 keisara af Ming-ætt- inni. Þar hefur verið opnuð gröf tiunda keisarans I röðinni, Chu Yi-Chun, sem uppi var á árunum 1573 til 1620. Grafhýsið var einnig ætlað tveimur eiginkonum hans. Eftir byltinguna var hafizt handa um að kanna þessar grafir, og var gröf áðumefnds keisara opnuð á árunum 1956 ogl957. Mikið verk er framundan að opna hinar grafirnar 12, en Mao formaður lét þau orð falla, að það nægði núlifandi kyn- slóð að opna þessa einu gröf, hinar graf- irnar biöu komandi kynslóða. 86 milljónir vinnudaga fóru i aö gera þetta grafhýsi, enda erþað 27 metra niðri I jöröinni, og lofthæðin er sums staðar milli 9 og 10 metrar. I grafhýsinu fundust alls konar dýrgripir, sem eru til sýnis f safni skammt frá innganginum. Fyrir grafhýsinu voru margar hurðir,

x

Heimilistíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.