Heimilistíminn - 17.05.1979, Side 13
sins hvaB sem á dynur, ogkeisarinn hefur
lýst þvi yfir opinberlega, að hann hafi aö-
eins yfirgefiö land sitt um óákveöinn
tima. Allir vita þó, aö hann reynir aöeins
meö þessu aö slá ryki i augu alheimsins.
Hann fær aldreileyfitil þess aö snúa aftur
til Irans.
Og áfram heldur vinkonan:
— Soraya veit, aöþaö er hún, sem keis-
arinn iraunog veruelskar. Ég veit meira
aö segja, aö þau hafa hitzt reglulega, en
ég hef ekki getaö sagt frá þvi fyrr en nú.
Eftir skilnaöinn hittust Soraya og keis-
arinn á laun mörgum sinnum á hverju ári.
Þau hittust m.a. i Sviss og einnig annars
staöaríEvrópu. Inokkur skipti hefur Sor-
aya meira aö segja heimsótt keisarann I
Teheran, og þangaö hefur hún komiö
fljúgandimeö einkaflugvél keisarans. Aö-
eins fáeinir tryggir fylgismenn keisarans
hafa vitaö um þessar heimsóknir.
Þar fyrir utan hefur keisai-inn oft átt
löng simtöl viö fyrrverandi eiginkonu
sina. Þá hefur einhver af nánum sam-
starfsmönnum og öryggisvöröum keisar-
ans rannsakaö sima Sorayu áöur til þess
aö öruggt mætti teljast aö ekki væri hægt
aö hlera samtölin. Keisarinn óttaöist, aö
annars gæti hann átt yfir höföi sér fjár-
kúgun. Farah Diba vissi, hvað var á seiöi,
en hún var fullkomlega örugg, vegna þess
að hún var hin raunverulega keisaraynja,
og hún var móðir barna keisarans.
Nú hefur allt skyndilega breytzt.
Soraya er tiibúin til þess aö hverfa aftur
til keisarans, hvernig svo sem allt veltist
hjá honum. Henni er sama þótt hann
standi uppi einn og einangraöur, og þótt
hann tapi öllum auöæfum sinum. Farah
er ekki trygg i sessi, eins og lesa mátti út
úr grein, sem núlega birtist hér i Heim-
ilis-Timanum. Hún veit vel, að hún hefur
alltaf veriö númer tvö. Myndin af hinni
brosandi keisarafjölskyldu, sem haldiö
hefur veriö á lofti, er fólsk. Farah og maö-
ur hennar voruekki eins hamingjusöm og
af var látiö. Nú þegar heimur keisarans
er hruninn, á hann ef til vill eftir aö leita
aftur til einu manneskjunnar, sem getur
huggaö hann, en þaö er Soraya.
Þetta getur átt eftir að taka nokkurn
tima, en Soraya sem hefur lifað ein rót-
lausulifil tuttuguár, er þolinmóö og get-
ur beöiö enn um stund. Auðvitaö finnst
henni ömurlegt til þess aö hugsa að keis-
aranum skuli hafa veriðsteyptaf stóli, en
menn mega ekki gleyma þvi, aö þaö var
einmitt vegna krúnunnar, sem hún glat-
aöi eina manninum, sem hún hefur
nokkru sinni elskað.
— Auövitaö er Farah vorkunn, heldur
trúnaöarvinkona Sorayu áfram. — En viö
veröum Hka aö reyna aö skilja Sorayu.
Henni finnst hún eigi rétt á ástinni, sem
hún hefur fariö á mis viö I svo mörg ár.
— Soraya er ekki bitur, þótt hún hafi
oröið fyrir svo mörgum sorgum i lifinu. 1
hvert skipti, sem hún hefur hitt nýjan
mann, sem heföi getaö gert hana ham-
ingjusama og veitt henni þaö öryggi, sem
hún þráöi, hefur allt endaö meö óham-
ingju.
Kvikmyndaleikstjórinn Franco
Indovina, sem hún var mjög hrifin af,
fórst I flugslysi á Sikiley áriö 1972.
Svissneski milljónamæringurinn
EdmondArtarframdisjálfsmorömeö þvi
aö taka inn allt of stóran skammt af
svefntöflum i húsi sínu I St. Tropez. Sama
varö uppi á teningnum meö franska
aðalsmanninum Audouin de Barbot.
Claude Kauza, sem var aö því kominn aö
kvænast Sorayu, framdi einnig sjálfs-
morö. Romeo Riachi, sem hún haföi haft
náiö samband viö I marga mánuöi, var
myrtur.
Svo hitti Soraya leikarann Mel Ferrer
(sem áöur haföi verið kvæntur kvik-
myndastjörnunni Audrey Heburn), en
þau höföu ekki hitzt nema fáeinum sinn-
um, þegar hann fékk hjartaáfall og var
nærri dáinn á sjúkrahúsi i London.
— Dag nokkurn, þegar viö Soraya hitt-
umst, fórhúnað gráta, segir vinkonan. —
Hún sagöi: Þaö skiptir engu máli hváö ég
geri. örlögin láta mig aldrei I friöi. Um
leið og ég er farin að trúa þvi, aö ég eigi
eftir aö veröa hamingjusöm á nýjan leik
gerist eitthvað ömurlegt. Þaö lltur helzt
út fyrir aöörlögin hafi ætlaö mér aö veröa
trú eina manninum — keisaranum af
tran, sem ég var hamingjusöm hjá, á
meöan viö vorum gift.
Nú er Soraya handviss um, aö hægt
verður aö raöa saman sundurleitum brot-
um lifs hennar, svo úr þeim veröi mynd á
ný. — Hún hefur beöiö eftir keisaranum I
tuttugu ár. 1 dag virðist hún vera ham-
ingjusamari en hún hefur lengi veriö.
Eftir aö byitingin var gerö i íran hefur
hún vonazt til þess að hún fái aftur að
hverfa til mannsins, sem hún elskar.
Þfb
Á Soraya eftir að fá
ósk sina uppfyllta eftir
20 ára bið? Það er
opinbert leyndarmál
að hún og keisarinn
hafa hitzt mörgum
sinnum á laun frá þvi
þau skildu. Kannski
yfigefur keisarinn nú
Farah Diba eftir að
honum var steypt af
stóli í Iran
13