Heimilistíminn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Heimilistíminn - 17.05.1979, Qupperneq 23

Heimilistíminn - 17.05.1979, Qupperneq 23
vegna, sem ég var að velta þvi fyrir mér, hvort þú hefðir komið af eigin hvötum, eða hvort þau tvö hefðu fengið þig til þess. Katarina stóð á öndinni og svo sagði hún: — Áttu við Elsu og Roland, en þau eru ættingjar Görans,það ættir þú að vita. Hún fór að sjá eftir þvi, að hafa hleypt honum inn og leitnú á klukkuna. Carl Johan sagði hinn róleg- asti: —Ég held að þetta sé allt saman svindl. Katarina reis á fætur. Hún gat ekki fundið orð sem hæfðu til þess að visa honum á dyr, og hún stamaði þegar hún fór að tala og hún vissi ekki sjálf hvernig svipurinn var á andliti henn- ar. Það kom strax undarlegur glampi i augu Carls Johans. — Þú verður að skilja, byrjaði hann en Katarina hristi höfuðið og opnaði dyrnar. — Þakka þér fyrir að koma með keðjuna sagði hún kuldalega. — Aðeins eitt enn, sagði Carl Johan og tók jakkann sinn. Ég held að Thomas vildi gjarnan fá að hitta þig, — hann þekkti Göran mjög vel, eins og þú veizt. Hvenær hefur þú tima til þess að tala við hann? — Ef hann vill mér eitthvað þá getur hann hringt i mig! sagði Katarina og lokaði dyrun- um. Þvi næst gekk hún beint að simanum. — Nei, alls ekki, sagði Elsa með sann- færingarkrafti. — Hugsaðu ekkert um þetta, góða bezta! 'Auðvitað skildum við að þú varðst... undrandi þegar þú hafðir aldrei verið á miðilsfundi áður. Roland varð alls ekkert reiður. Hann er einmitt að koma hér inn úr dyrunum. — Roland, sagði Katarina, — ég er svo leið yfir þessu i gær. —Og svo vildi ég lika þakka' þér fyrir blómin. — Þú þarft ekki að vera leið,sagði Roland dimmri röddu. — Mér þykir vænt um, að þér þótti gaman að fá blómin. — Svo er eitt enn.sagði Katarina óákveðin og horfði á bréfið sem hún hélt enn á i hendinni. — Ég hef fengið undarlegt bréf, frá tryggingar- félagi — Roland, Göran hafði keypt sér lif- tryggingu sem ég vissi ekkert um, og hann hafði skráð mig sem móttakanda trygginga- fjárins,en það er auðvitað ekki rétt. Ég á við Elsa og þú sjálfur eru nánustu ættingjar hans... — Já, einmitt, tryggingin,sagði Roland án þess að láta sér bregða. — Nei góða bezta Gör- an var búinn að segja mér frá henni. Hann sagði, að auðvitað myndi ekkert koma fyrir sig, en að hann vildi samt tryggja sig, þin vegna. — En hvers vegna minntist hann aldrei á þetta? spurði Katarina aftur. — Hann vildi ekki hræða þig eða gera þig leiða,sagði Roland róandi röddu. — Nei, sagði Katarina i sama tón og áður. Hann vildi það ekki. En ég skil þetta samt ekki... — Hafðu ekki áhyggjur út af þvi ráðlagði Roland henni. — Við Elsa erum að velta þvi fyrir okkur, hvort þú viljir ekki koma hingað og borða með okkur hádegisverð? —Jú, takk sagði Katarina. — Það vildi ég svo gjarnan. Hún var að þvi komin að nefna heimsókn Carl Johans. En hætti svo við það á siðustu stundu. Hann hafði aðeins verið með slúður og hvers vegna var hann annars svona aðgangs- harður? Nú, hún vildi ekki hugsa meira um það og helzt ekki sjá hann aftur... En þegar þau voru farin að drekka kaffið eftir hádegisverðinn, sagði Elsa allt i einu. — Ég fór að leita að keðjunni þinni i gær, Katarina, en ég fann hana ekki. Varstu með hana eftir allt saman? — Nei, sagði Katarina. — Carl Johan kom til min með hana i morgun — hver er hann eigin- lega.Elsa? Hvers vegna var hann þarna með? — Ó, Schröder? sagði Roland og hellti koniaki i glösin handa þeim. Hann er enginn sérstakur — aðeins kunningi Thomasar, sem vildi endilega fá að vera með. Ég held að hann hafi verið að ljúga, þegar hann sagði að ná- kominn ættingi hans hefði látizt fyrir skömmu — ég þekki lygara, þegar ég sé það. Hann kom ekki hingað i góðum tilgangi. En á hinn bóginn, dæmum ekki... kannski hafði ég á röngu að standa. Það hafði hann ekki haft, hugsaði Katarina með sér og minntist þess, sem Carl Johan hafði sagt „eintómt svindl”. Hún handfjallaði te- skeiðina og sagði: —Ég hélt að hann hefði komið vegna þess að hann þekkti Göran rétt eins og Thomas. —Thomas er ekki, byrjaði Elsa en hætti svo. — Roland greip fram i fyrir henni: —Ég vissi ekki að þú hefðir hitt Gardin? — Ég þekki hann ekki náið, sagði Katarina. — Nú vill hann vist fá að hitta mig af einhverj- um ástæðum, en ég veit eiginlega ekki... Hann var ekki við jarðarförina, bætti hún svo við. — Jæja,svo hann vill fá að hitta þig? sagði Roland. — Það er heldur þreytandi að þurfa að 23

x

Heimilistíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.