Heimilistíminn - 17.05.1979, Qupperneq 26
Myndviðgerðarmaöur að starfi.
Gert við
gömul
listaverk
Á heimssýningunni í Osaka
1970, „Expo—70”, var þvi veitt
eftirtekt, að fornar málaðar,
rússneskar tréskurðarmyndir
voru í hættu: Viðurinn undir
olíulitunum hafði þrútnað við
það að draga i sig raka úr and-
rúmsloftinu i sýningarsölun-
um. Afleiðingin varð sú, að
málningin tók að flagna af. í
stað frummyndanna voru
settar málaðar eftirlíkingar í
fullri stærð og stytturnar flutt-
ar til Moskvu. Það var mynd-
viðgerðarmaðurinn Gleb
Karlsen, sem fyrstur veitti
þessu hættuástandi gaum og
krafðist þess að gerðar yrðu
skjótar ráðstafanir.
Það var ekki ætlun hans að
gerast myndviðgerðarmaður.
Hann nam i listaskóla i
Moskvu og útskrifaðist siðar
með ágætum vitnisburði frá
æðri listaskóla i Tartu i Eist-
landi. Gerðist hann siðan
teiknikennari.
En eitt sinn, er hann var á
ferð i Moskvu, sá hann bygg-
ingu, þar sem myndviðgerðir
voru til húsa. Hann fór þangað
inn... og nú er hann búinn að
vinna i tuttugu ár við það að
„lækna” „sjúkar” myndir.
Færustu myndviðgerðar-
menn „endurlifga” mörg
meistaraverk, sem timans
tönn iiefur leikið grátt i mörg-
um borgum Sovétrikjanna.
Árangur handaverka þeirra er
nálega ósýnilegur, og það er i
raun höfifemarkmiðið, þ.e. að
gera við hið forna meistara-
verk án þess að bæta neinu við
það eða breyta þvi i nokkru.
Gleb Karlsen varð mjög
ánægður, er hann fékk boð um
það frá Stepan Tsjurakov,
fyrrverandi kennara sinum,
að starfa i Pusjkin-listasafn-^
inu, þar sem hann vinnur nú
að viðgerð gamalla meistara-
verka og að gæslu þeirra eftir
að viðgerð er lokið. APN
26