Heimilistíminn - 14.06.1979, Blaðsíða 11
aldrei betri en nú
Hljómsveitin Thin Lizzy
hélt nýlega hljómleika i
Osló við mikinn fögnuð
áhorfenda og áheyrenda.
Þetta er hljómsveit, sem
hefur reynt sitt af hverju til
þess að vekja athygli á
hljómleikum notað m.a.
hrisgrjón, flóðljós, blikkljós
og ýmislegt annað. Sumum
finnst of mikið gert til þess
að ganga i augun fremur en
eyrun hjá þeim sem mættir
eru til leiks!
En Thin Lizzy var ekki siður góð frá
listrænu sjónarmiði að þessu sinni.
Þarna hljómaöi rokk og roll hljómlist
og það svo hátt stillt, að heilbrigöis-
eftirlitið hefði sennilega ekki verið
hrifið af mælingunum. En rokk á að
vera hátt stillt, segja þeir, sem vit
hafa á, og þegar það er flutt af eins
mikilli snilld og Thin Lizzy gerir, þá er
ekki verið að fást um fáein decibel upp
eða niður.
Aðalmaður Thin Lizzy er bassa-
leikarinn og söngvarinn Phil Lynott,
sem getur fengið hvaða áheyranda
sem er til þess að fyllast lifi og f jöri og
jafavel stíga nokkur dansspor. Hann
er mikill listamaður og áhorfendurnir
kunnu að meta sviðsframkomu hans.
Gary Moore gitarleikari er kominn
aftur til hljómsveitarinnar eftir 5 ára
fjarveru og mörgum finnst hann og
Scott Gorthmestu tónlistarmennirnir i
hópnum. Þeir koma mjög vel fyrir i
laginu Black Rose, en bezta verk
Moore er hins vegar lagið á plötunni
Parisienne Walkaways, gitarlag á lit-
illi plötu. Ef þið skylduð svo ekki vita
það,þá má bæta þvi hér við að Thin
Lizzy er irsk hljómsveit sem hefur
skemmtmönnum i eintiu ároger allt-
af að batna.