NT - 30.05.1984, Side 7
Miðvikudagur 30. maí 1984 7
Stærsta hús í
Hafnarfirði
■ Þessi myndarlega bygging mun vera hvorki meira né minna en
stærsta hús í Hafnarfirði, hátt í 2500 fermetrar að flatarmáii. Það
er Blikktækni hf. sem er að reisa þetta hús við Kaplahraun.
Stoðirnar eru úr límtré og framleiddar austur á Flúðum. Hús af
þessu tagi eru mjög fljótbyggð. Fyrstu stoðirnar voru reistar um
miðjan apríl en áætlað er að flytja inn í júní.
NT mvnd: Róbert
Rekstrarstjóri Landsvirkjunar
■ Guðmundur Helgason að- verandi rekstrarstjóri, Ingólfur
stoðarrekstrarstjóri Landsvirkj- Ágústsson af störfum fyrir
unar hefur verið táðinn rekstr- aldurs sakir. Umsækjendur um
arstjóri frá og með 1. júlí stöðuna voru þrír.
næstkomandi, en þá lætur nú-
Kennararmótmæla
■ „Stjórn Hins íslenska kennarafélags
mótmælir harðlega þeirri niðurstöðu Kjara-
dóms að synja kennurum um allar leiðrétt-
ingar á launakjörum þeirra. Kjör kennara
hafa farið hríðversnandi með ári hverju og
nú er svo komið að þolinmæðina hlýtur að
þrjóta. Gftir þennan síðasta dóm eiga þeir
ekki annars úrkosta en beita öllum tiltækum
ráðum til að bæta kjör sín, eða leita að
arðbærari störfum innan lands eða utan að
öðrum kosti, með ófyrirsjáanlegum afleið-
ingum“ segir í samþykkt sem Hið Islenska
kennarafélag hefur gert.
Samþykktin var gerð vegna kjaradóms í
máli félagsins og ríkisins, sem fól í sér að
kröfum félagsins um leiðréttingu á kjörum
til samræmis við aðrar stéttir innan BHM er
vísað frá dómnum af tæknilegum ástæðum.
■ Steingrímur með eina mynda sinna.
Þessi er frá Höfnum á Reykjanesi.
Steingrímur sýnir í
Eden
■ Það er í dag sem meistarinn Steingrímur
Sigurðsson, listmálari opnar sína 53. einka-
sýningu austur í Eden í Hveragerði. Opnar
sýningin kl. 20.30 og erþetta áttunda sýning
Steingríms í Eden.
Hann tileinkar sýninguna Halldóru Maríu
Margréti, einkadóttur sinni. Hún verður
reyndar 18. ára í dag.
Þarna sýnir Steingrímur myndir héðan og
þaðan, m.a. frá Grindavík og úr Höfnum,
en líka, frá Breiðholtinu og úr Reykjavík og
frá Þýskalandi. Mikið ber á myndum frá
sjónum í samræmi við það sem Steingrímur
segir: að hann reyni að fá sem „mest
súrefni" í myndirnar sínar.
Það eru 62 myndir sem sýndar eru í Eden
og er sýningin opin til 11. júní nk.
Ræðustólinn í barnaskólana
■ „Fundurinn telur það eina af höfuðfor-
sendum virks lýðræðis að allir þegnar þjóð-
félagsins séu.færir um að tjá sig og taka þátt
í umræðum og stefnumótandi aðgerðum'1,
sagði meðal annars í ályktun Trésmiðafélags
Reykjavíkur þar sem skorað er á stjórnend-
ur fræðslumála að taka upp kennslu í
félagsstörfum og ræðumennsku sem skyldu-
námsgrein í skólum landsins. Þá segir að því
yngri sem börn séu þegar þau byrja að fá
tilsögn og æfingu, þeim mun léttara verði
fyrir þau að standa upp og tjá sig þegar fram
líða stundir.
m
FRæD
AF SKATTSKYLDUM TEKJUM
AF AIVINNUREKSTRI
-TIL1.JÚLÍ
Fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa tekjur
af atvinnurekstri er nú heimilt að draga 40% frá skatt-
skyldum tekjum til að leggja í fjárfestingarsjóð.
Frádrátturinn er bundinn því skilyrði að helm-
ingur fjárfestingarsjóðstillagsins sé lagður inn á bund-
inn 6 mánaða reikning fyrir 1. júlí n.k. vegna tekna árs-
ins 1983. Ef reikningsárið er annað en almanaksárið
skal lagt inn á reikninginn innan 5 mánaða frá lokum
reikningsárs.
Innstæður á reikningunum eru verðtryggðar
samkvæmt lánskjaravísitölu. Auk þess býður Lands-
bankinn 1,54% stigum hærri vexti en gilda um aðra 6
mánaða reikninga. Það er besta ávöxtun, sem boðin er.
Reikningsinnstæðum má ráðstafa að loknum 6
mánaða binditíma, en innan 6 ára.
Enn er hægt að njóta þeirra skattfríðinda sem að
framan er lýst, við álagningu tekjuskatts og eignaskatts
á árinu 1984 vegna tekna ársins 1983. Fresturinn að
þessu sinni er til 1. júlí n.k.
Upplýsingar um stofnun fjárfestingarsjóðsreikninga
eru veittar í sparisjóðsdeildum Landsbankans.
LANDSBANKINN
Græddur er geymdur eyrir