NT


NT - 30.05.1984, Síða 16

NT - 30.05.1984, Síða 16
Miðvikudagur 30. maí 1984 16 Feðgin við skotæFingar. Feðgin ætla að keppa á Olympíuleikunum! ■ Flesta feður dreymir um að eignast dóttur líka Deena Wigger. Hún er fyrirmyndar- nemandi í Fort Benning í Geor- gíu í Bandaríkjunum, er virkur þátttakandi í félagslífinu í skólanum og til að kóróna það allt segir Deena að „elsku pabbi“ sé uppáhald sitt og fyrirmynd sín í þeirri íþrótt sem hún metur mest, - en það er skotfimi en Lones, pabbi hennar er mikill skotkappi. Hann er 46 ára og hefur 5 sinnum verið í landsliði Banda- ríkjanna í Olympíuleikjum. Deena hefur stundað skot- fimi sem íþrótt frá því hún var 12 ára gömul, en nú er hún 17. Að vísu dró svolítið úr áhuga hennar á tímabili, en þá þótti henni sem eldri bræður hennar, Ron og Danny, bæru hana ofurliði í keppninni og missti kjarkinn um skeið, en nú hefur hún byrjað æfingar af fullum krafti og hefur góða von um að komast í Olympíu- landsliðið til að keppa fyrir Bandaríkin í ágúst. „Ég lít raunsæjum augum á þetta“, segir Deena“, og ég verð ekkert voðalega leið þó ■ Það kostar mikla peningá að stunda þessai íþrótt, og Deena hefur unnið við allt mögulegt með skólanum til að fá sér aukapening. Hér er hún barnfóstra. ég komist ekki í landsliðið í ár, því ég er það ung. Ég hugsa bara sem svo að þá komist ég þó árleiðanlega í liðið fyrir Olympíuleikana í Seoul 1988“. Lones Wigger, pabbi Deena ■ Lorenzo Lamas er 26 ára bandarískur leikari, sem fer með hlutverk í sjónvarpsþáttunum „Falcon Crest". Lorenzo er sonur leikarans Fernado Lamas, sem er nýlátinn, og leikkonunnar Arlene Dahl - sem er í seinni tíð þekktari sem viðskiptajöfur en leikari. Þau Fernado og Arlene skildu þegar sonur þeirra var aðeins 2ja ára. Fernando kvæntist þá Esther Willi- ams, leikkonu og frægri sundkonu á sínum tíma. Lorenzo litli var til skiptis hjá Arlene, móður sinni og föður sínum og stjúpu. Þegar árin liðu varð hann eiginlegahændari að stjúpmóður sinni en móður sinni og átti þar oftast heimili. Það urðu nokkrir fáleikar með þeim mæðginum um tíma. Þegar Lorenzo var 13 ára átti hann að velja hjá hvoru foreldranna hann vildi búa. Hann vildi ekki velja og sagðist vilja fara í heimavistarskóla en ákveða svo jafnóðum hvernig fyrirkomulagið skyldi vera í fríum. En síðan hann var 13 ára hefur hann aldrei átt heimili hjá móður sinni. Lorenzo giftist í vetur Michele Lee, sem var blaðafulltrúi, en Arlene var ekki einu sinni boðið í brúðkaupið, því hún hafði orðið svo reið, þegar sonur hennar skildi við fyrri konu sína, sem hafði fallið henni vel í geð. Nú urðu enn meiri Ieiðindi, því að Esther Williams, stúpmóðir Lorenzo sá algjörlega um brúðkaupið og var þarna aðal- manneskjan. Þegar ungu hjónin eignuðust sitt fyrsta barn þá fór Lorenzo að hugsa meir til móður sinnar og lagði til að hún fengi að sjá barnið. Þetta varð til þess að Arlene bauð ungu hjónunum heim til sín yfir helgi með barnið og allt féll í ljúfa löð. ■ Michele og Lorenzo Lamus með 5 mánaða gamlan son sinn, Alvaro Joshua. ■ Lorenzo og Arlene, móðir hans: „Nú erum við öll vinir...“

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.