NT - 30.05.1984, Page 18

NT - 30.05.1984, Page 18
Miðvikudagur 30. maí 1984 18 Bein útsending frá Róm - Roma- Liverpool ■ í dag veröur bein útsending frá úrslitaleik Liv- erpool og Roma í Evrópukeppni meistaraliða í knattspyrnu og hefst útsendingkl. 18.00. Athyglis- vert er að leikur- inn íer fram á heimavelli Roma í Róm, en það var ákveðið áður en keppnin hófst. Fyrirfram er talið að leikurinn verði hörkuspennandi enda mikið í húfi. Tekst Liverpool að hreppa enn einn titilinn? i [ihðmKT! Rás 2 kl. 14.00-15. - Ég verð með gest, • og hann ekki af verri endanum...sagði Arnþrúður ■ Arnþrúður Karlsdóttir er með þátt sinn „Ut um hvippinn og hvappinn" kl. 14.00-15.00 í dag. Við spurðum hana hvað væri helst að frétta af þættin- um. Arnþrúöur sagði okkur, að hún yrði með gest í þættinum, — og hann ekki af verri endan- um, sagði hún, - hann Her- mann Gunnarsson sjálfan, eld- fjörugan og hressan, að vanda! - Við ætlum fyrst að ræða smávegis um nýju plötuna hans Hemma, sagði Arnþrúður, og svo ætlum við að spjalla svolít- ið um „Sumargleðina", en þar er hann nýjasti meðlimurinn. Hann er ungviðið í hópnum, og nú ætla ég að „taka hann á beinið'1. - Svo segir hann okkur kannski cinhverjar fréttir frá Þýskalandi, en Hermann var viðstaddur leikinn þegar Stutt- gart-liðið vann meistaratitilinn með Asgeir Sigurvinsson fremst- an í flokki. Hermann sagði tiiér í morgun, sagði Arn- þrúður, að frægð Ásgeirs Sig- urvinssonar í Þýskalandi væri alveg með ólíkindum, en við fáum að heyra um hinn fræga Íslending í Þýskalandi í þættin- um „Ut um hvippinn og hvappinn" í dag. ■ Arnþrúður Karlsdóttir Tónlistarkrossgátan númer 2 ■ Nú kémur tónlistar-kross- gátan nr. 2 í útvarpinu á Rás2, og lausnir eiga að sendast til: Tónlistarkrossgátan nr. 2, Ríkisútvarpið Rás 2, Hvassa- leiti 60, 108 Reykjavík. Eins og síðast eiga hlustend- ur að taka mið af tónlistinni til þess að ráða krossgátuna. Stjórnandinn er Jón Gröndal, og hann gaf okkur nokkra fasta punkta til að halda okkur við í ráðningu krossgátunnar. ■■ Jón segir að spurningar 1-2 verði úr vinsælum óperettum. Annað atriði er, að alltaf verð- ur spilað eitt lag, sem minnir á ísland, þriðja atriðið er lag úr kvikmynd o.s.frv. í verðlaun fyrir þann heppna, sem dreginn er úr réttum lausnum, verður hljómplata - að eigin vali. ■ Á sínum stað í dagskrá sjónvarpsins kl. 21.15 á mið- vikudag er þýski framhalds- þátturinn Berlin Alexander- platz (og eru þá 11 eftir!). í síðasta þætti sáum við hversu illa Biberkopf gekk að fá vinnu, svo hann var farinn að selja smádót á götunum. Það gekk alveg ómögulega hjá honurn, og var þá reynt við blaðasölu, en henni fylgdu ýmsir annmarkar - svo sem að Biberkopf varð að hafa nas- istamerki um arminn ej hann seldi málgagn þjóðernisjafnað- armanna. Félagar hans á kránni eru ekki hrifnir af því. í kvöld heldur baslið hjá Biberkopf áfram, og áreiðan- lega á hann eftir að verða fyrir einhverjum áföllum. Kvenfólkið hefur þó reynst honum vel, og virðist ósköp hrifið af Franz Biberkopf. Lína var aðalvinkona hans síðast þegar við sáum, en Lína er leikin af Elisabeth Trissenaar. Lína var ósköp afbrýðissöm þegar hún sá Evu (Hanna Schygulla) koma og færa hon- um peninga þegar hann var við götusöluna. Eva var gömul vinkona Biberkopfs, en var nú orðin fín og dýr skyndikona, en hún komst við að sjá þennan gamla „rómeó“ standa á göt- unni og selja drasl. Hvernig sem á því stendur er. eins og konurnar séu alltaf hrifnar af Biberkopf. Leikstjóri'þessara-þátta er, eins og áðurvhefur verið tekið fram, Rainer Werner Fass- binder, sem ku vera snillingur á sínu sviði, þó skoðanir manna á þessum þáttum í sjónvarpinu séu skiptar, eftir því sem heyr- ist meðal almennings. ■ Lína er leikin af Elisabeth Trissenaar. Lína getur verið glæsileg í allri fátæktinni og eymdinni og hún er alltaf kát og hress. Sjónvarp kl. 21.15: Sama baslið hjá Biberkopf Útvarpkl. 11.30: Þorsteinn Sigurðsson skólastjóri ræðir um þjálfunar- skóla á íslandi ■ Kl. hálftólf í dag talar Þor- steinn Sigurðsson skólastjóri um, aðild þjálfunarskólanna að uppeldi þroskaheftra og fatlaðra. Við spurðum Þorsteinn um hvað erindi hans myndi fjalla en hann sagði, að nafnið gæfi það mikið til kynna. - Þjálfunarskólarnir eru nýj- ar stofnanir í kerfinu, sagði Þorsteinn. Hann sagði að þeir væru 6 talsins á landinu, þar af 2 í Reykjavík, 1 í Kópavogi og síðan í Mosfellssveit, Akureyri ogaðSólheimum í Grímsnesi. Þarna er komin á vegum menntamálaráðuneytisins ný þjónusta við fatlaða einstakl- inga, sem ekki geta fengið kennslu og leiðbeiningar ann- ars staðar í menntakerfinu. - Það má segja sem svo, að þjálfunarskólarnir séu enn afar fátæklega- búnir af tækjum. Safamýrarskólinn er eini skól- inn af þessari tegund, sem er að komast í nýtt eigið húsnæði, en vonandi stendur þetta allt til bóta. Þessir nemendur margir þurfa mikla einstaklings- kennslu, svo hver kennari kemst ekki yfir að sinna nema takmörkuðum hópi. Því miður eru afar fáir kennarar enn hér á landi sérmenntaðir í slíkri kennslu sem þessari, sagði Þor- steinn. Hann sagði að reiknað væri með 2ja ára sérnámi eftir almennt kennarapróf, en ekki er enn hægt að Ijúka því námi að fullu hér innanlands. Grundvöllurinn fyrir þjálf- unarskólana eru grunnskóla- lögin frá 1974 og síðan útfærsla þeirra í reglugerð um sér- kennslu, sem sett var 1977, og upp frá því er farið að setja þessa skóla á laggirnar, sagði Þorsteinn Sigurðsson, skóla- stjóri. Hann sagði enn fremur að áætlað væri að á grunn- skólastiginu væru 120-140 ein- stakiingar, sem heyrðu undir þann hóp, sem þyrfti sér- kennslu í þjálfunarskóium. ■ Þorsteinn Sigurðsson skólastjóri. Miðvikudagur 30. maí 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum degi. 7.25 Leikfimi. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð Anna Hilmarsdóttir talar. 9.00 Fréttir. 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). 10.45 íslenskir einsöngvarar og kórar syngja 11.30 Aðild þjálfunarskólanna að uppeidi þroskaheftra og fatlaðra Þorsteinn Sigurösson skólastjóri flytur erindi. Tónleikar. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn- ingar. 12.20 Fréttir 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.30 Brimkló, Lónlý blús bojs, Ingimar Eydal o.fl. leika og syngja 14.00 Ferðaminningar Sveinbjarn- ar Egilssonar; seinni hluti Þor- steinn Hannesson lýkur lestrinum (34) 14.30 Miðdegistónlelkar 16.20 Síðdegistónleikar 14.45 Popþhólfið Jón Gústafsson. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. eftir Ludwig van Beethoven; Vlad- imir Ashkenazy stj. 17.00 Fréttir á ensku 17.10 Síðdegisvakan 18.00 Snerting Þáttur Arnþórs og Gisla Helgasona. 18.10 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.50 Við stokkinn Stjórnendur: Margrét Ólafsdóttir og Jórunn Sig- uröardóttir. 20.00 Ungir pennar. Stjórnandi: Hildur Hermóðsdóttir. 20.10 Á framandi slóðum. (Áöur útv. 1982). Oddný Thorsteinsson segir frá Japan og leikur þarlenda tónlist; fyrri hluti. (Síöari hluti verð- ur á dagskrá á sama tima n.k. laugardag). 20.40 Kvöldvaka, a. Kristin fræði forn Stefán Karlsson handrita- fræðingur leitar fanga i kirkjulegum bókmenntum miðalda. b. „Snemma seigur til átaka“ Þor- björn Sigurösson les frásögn eftir Björn Jónsson í Bæ. c. Dansleikur i Lærða skólanum Eggert Þór Bernharösson les úr bókinni „Harpa minninganna" eftir Árna Thorsteinson. 21.10 Wolfgang Brendel syngur arfur úr óperum eftir Rossini, Mozart, Wagner og Verdi meö kór og hljómsveit útvarpsins í Múnchen; Heinz Wallberg stj. 21.40 Útvarpssagan: „Þúsund og ein nótt“ Steinunn Jóhannesdóttir les valdar sögur úr safninu í þýöingu Steingríms Thorsteins- sonar (20). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins 22.35 Við. Þáttur um fjölskyldu- mál. Umsjón: Helga Ágústsdóttir. 23.15 íslensk tonlist. a. Prelúdía 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. Miðvikudagur 30. maí 10.00-12.00 Morgunþáttur Stjóm- endur: Páll Þorsteinsson, Ásgeir Tómasson og Jón Ólafsson. 14.00-15.00 Út um hvippinn og hvappinn Stjórnandi: Arnþrúöur Karlsdóttir. 15.00-16.00 Krossgátan Stjómandi: Jón Gröndal 16.00-17.00 Nálaraugað Stjórnandi: Jónatan Garðarsson. 17.00-18.00 Úr kvennabúrinu Stjórnandi: Andrea Jónsdóttir. Miðvikudagur 30. maí 18.00 Evrópukeppni meistaraliða Róma-Liverpool leika til úrslita. Bein útsending frá Rómaborg. 20.05 20.15 Fréttir og veður 20.35 Auglýsingar og dagskrá 20.45 Nýjasta tækni og vísindi Um- sjónarmaður Sigurður H. Richter. 21.15 Berlin Alexanderplatz. Þriöji þáttur. Þýsksur framhaldsmynda- þáttur. Þýskur framhaldsmynda- samnefndri skáldsögu eftir Alfred Döblin. Leikstjóri Rainer Werner Fassbinder. Efni annars þáttar: Biberkopf gengur erfiölega aö fá vinnu. A endanum ræðst hann til aö selja flokksblaö þjóðernisjafn- aöarmanna og fær bágt fyrir hjá félögum sínum á kránni. Þýöandi Veturliði Guönason. 22.15 Eiturefnafaraldur í Dyflinni endursýning. Bresk fréttamynd um geigvænlega útbreiöslu heróínneyslu i höfuðborg Irlands síöustu ár. Þýöandi og þulur Bogi Arnar Finnbogason. 22.30 Úr safni Sjónvarpsins. Við Djúp - lokaþáttur. Nú liggur leiö sjónvarpsmanna úr botni isafjarð- ar um Langadalsströnd aö Bæjum á Snæfjallaströnd sumariö 1971. Umsjónarmaður Ólafur Ragnars- son. 23.05 Fréttir í dagskrárlok.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.