NT - 21.06.1984, Page 8
Yfir
milljóna
Mikið pappírshallæri í Evrópu:
Sumar tegundir
seldar á
■ Mjög lítið framboð er á
pappír í Vestur-Evrópu um
þessar mundir. Svo ramrnt
hveður að skortinum að sumar
tegundir pappírs seljast dýrum
dómum á svörtum markaði í
Þýskalandi til dæmis, að
minnsta kosti ef marka má
upplýsingar frá einni stærstu
prentsmiðju landsins, Maul-
Baaiser.
Forráðamenn fyrirtækisins
svörtu
sögðu að margar prentsmiðjur
í landinu ættu aðeins pappírs-
birgðir til nokkurra daga. Og
vegna þess hve erfitt væri að
útvega sér hann mætti búast
við mikilum verðhækkunum
innan tíðar.
Evrópskar pappírsverk-
smiðjur hafa aldrei selt meira
af pappír til Bandaríkjanna en
undanfarna mánuöi.
Fimmtudagur 21. júní 1984 8
Vi dslci ptæ I i#i d
■ íslendingar sýna meðal annars saltfísk á matvælasýningunni
í París, sem er ein stærsta sinnar tegundar sem haldin er í
heiminum.
Fimm íslensk fyrirtæki á matvælasýningu í París:
Búist við 150
þúsund gestum
■ Nú stendur yfir í París
alþjóðleg matvælasýning sem
fimrn íslensk fyrirtæki taka
þátt í. Sýning þessi er ein sú
stærsta sinnar tegundar í heim-
inum, og er sýningarsvæðið
125 þúsund fermetrar. Búist er
við að 150 þúsund manns sæki
sýninguna.
íslensku fyrirtækin sem taka
þátt í sýningunni eru Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna, sem
sýnir frosnar fiskafuröir, Sjávar-
afurðadeild Sambandsins sýnir
einnig frosnar fiskafurðir,
Sölustofnun lagmetis sýnir
niðurlagðar sjávarafurðir,
Sölusamband íslenskra fisk-
framleiðenda verður með
saltfisk, og Lýsi h f. kynnir lýsi
í neytendaumbúðum og lýsis-
pillur.
Útflutningsmiðstöð iðnað-
arins hefur liaft umsjón með
skipulagningu sýningarþátt-
tökunnar og hannaði Finnur
Fróðason, innanhússarkitekt,
íslenska sýningarbásinn
Útflutningur
iðnvarnings
jókst um 26%
■ Útflutningur iðnvarnings
frá íslandi var 26 af hundraði
meiri í tonnum talið fyrstu
þrjá mánuði þessa árs en á
sama tímabili í fyrra. í krónum
talið var útflutningurinn 72%
, verðmætari, en þá ber að hafa
í huga að meðalgengi krónunn-
ar hefur lækkað um sem næst
50% á árinu.
Þessar upplýsingar koma
fram í tölulegu yfirliti frá
Útflutningsmiðstöð iðnaðar-
ins. Einnig kemur þar fram að
í tonnum jókst útflutningur á
landbúnaðarafurðum og sjá-
varafurðum um 27%. Verð-
mæti landbúnaðarafurðanna
jókst um 111% en sjávarafurð-
anna um 44% í krónum talið.
Útflutningur á áli og ál-
melmi var að magni 25% minni
fyrstu þrjá mánuði þessa árs en
á sama tíma í fyrra. Hins vegar
var verðmætið í krónum 50%
meira, sem þýðir að það er
nokkurn veginn það sama í
erlendum gjaldeyri þrátt fyrir
minna magn. Gífurleg aukning
var á útflutningi kísiljárns, eða
rúmlega 140%. í krónum jókst
verðmætið um 326%.
Útflutningur ullarvöru dróst
saman um 35% en þó fengust
fyrir þær einum tíunda fleiri
krónur. Útflutningur skinna-
vöru jókst hins vegarum 131%
að magni og 156% í krónum.
Magn útfluttra iðnaðarvara til
sjávarútvegs jókst um þriðjung
en 87% í krónum talið. Út-
fluttar niðursoðnar sjávar-
afurðir voru 7% meiri nú en í
fyrraen63% dýrari íkrónum.
■ Vilhjálmur og Ólafur á plötunni undir nýju verksmiðjuna, sem væntanlega tekur til starfa í ágúst næst komandi. nt mynd Róbcrt
steypuverksmiðja
að rísa í Garðabæ
IBM lækkar verð
á heimilistölvum
- leiðir til mun harðari samkeppni á markaðnum
■ Til að tryggja samkeppnis-
stöðu sína á heimilistölvu-
markaðnum hefur IBM sam-
steypan ákveðið að lækka verð
á PC heimilistölvum. Jafn-
framt á að fjórfalda minni
tölvunnar, sem gerir mögulegt
að nota hana mun meiri í
atvinnuskyni.
Verðlækkunin nemur frá
18% til 23%. Samtímis verður
framleiðsan á PC heimilistölv-
unum stóraukin. Fjármála-
spekingar telja ólíklegt að
þessi ráðstöfun ÍBM leiði til
verðstríðs, en Ijóst er að hún
hefur í för með sér harðnandi
samkeppni á heimilistölvu-
markaðnum.
Rök IBM fyrir verðlækkun-
inni eru fyrst og frcmst aukin
samkeppni og minni fram-
leiðslukostnaður.
■ „Styrkleiki verksmiðjunn-.
ar felst í því hvað hún vérður
margþætt og fullkomin. Meg-
inframleiðsluþættirnir verða
þrír, liver öðrum óháður.
Þannig geta tveir þættir borið
reksturinn uppi er illa gengur í
þeim þriðja." sagði Einar Þ.
Vilhjálmsson, framkvæmda-
stjóri nýrrar steypuverksmiðju
sem verið er að reisa í Garða-
bænum, í samtali við NT.
Steypuverksmiðjan verður
að sögn Einars sú fullkomnasta
sinnar tegundar hér á landi.
Tæki og vélar koma frá Dan-
mörku og Hollandi, en Danir
og Hollendingar þykja standa
mjög framarlega á þessu sviði.
Og þrátt fyrir válynd veður
verður hægt að framleiða í
verksmiðjunni með fullum af-
köstum allan ársins hring.
„Framleiðslan verður ná-
kvæmlega eins hvort sem það
er 20 stiga gaddur eða heitur
sumardagur.“ segir Einar.
Ós hf. reisir verksmiðjunar.
Eigandi þess, Ólafur
Björnsson, sagði, að í verk-
smiðjunni yrði unnt að fram-
lciða hvaða forsteypta einingu
sem væri, en í upphafi yrði
megin áhersla lögð á rör,
brunna og fittings í mörgum
stærðum og gerðum, milli-
veggjaplötur og fjölbreytt úr-
val af hellum og steinum til
notkunar í götur og athafn-
asvæði ýmis konar, stéttir,
hleðslur og garða. Jafnframt
rnyndi verksmiðjan framleiða
steypu til húsbygginga og ann-
arra mannvirkja.
„Við munum leggja mikla
áherslu á það að framleiðslan
verði öll undir óháðu eftirliti
Rannsóknarstöfnunar bygg-
ingariðnaðarins,“ sagði Ólaf-
ur.
Einar sagði að verksmiðjan
kæmi til með að geta framleitt
rör og hellur fyrir allt Suð-
Vesturhorn landsins miðað við
þörfina núna. Sama mætti
segja um brunna og ýmislegt
annað. Hins vegar væri ekki
ætlunin að leggja svo mikla
áherslu á steypusölu - heldur
væri hún með þar sem öll tæki
til að sinna henni væru til
staðar.
í verksmiðjunni og í tengsl-
um við hana er áætlað að 25 til
30 manns muni starfa. Áætlað-
ur kostnaður við verksmiðj-
una, lóð, byggingar og vélar,
er rösklega 70 milljónir króna.
Verksmiðjan verður við nýju
Reykjanesbrautina, sem í
framtíðinni mun tengja höfu-
ðborgarsvæðið og Reykjanes,
og verður því vel í sveit sett
með tilliti til markaðar og hrá-
efnisöflunar. Verksmiðjulóðin
er um 33 hektarar og gólfflötur
verksmiðjunnar verður urn
3600 fermetrar.
Þess má geta að byggingafé-
lagið Ós fékk samtals 42 mill-
jóna króna lán úr Iðnlánasjóði
og Iðnþróunarsjóði til fram-
kvæmdanna. Iðnlánasjóður
lánaði 30 milljónir og mun það
stærsta lán sem hann hefur
veitt til eins aðila.
■ Fyf«lu þrjá mánuði ársins seldi járblendiverksmiðjan á
Grundartanga 140 meira af kísiljárni úr landi en fyrstu þrjá
mánuðina í fyrra.