NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 21.06.1984, Qupperneq 27

NT - 21.06.1984, Qupperneq 27
■ Danski framherjinn Preben Elkjær Larsen hefur samþvkkt að ganga til liðs við ítalska félagið Verona eftir því sem danskir landsliðsnefndarmenn tjáðu blaða- mönnum í gær. Þetta kom þó engum á óvart því frammi- staða Elkjærs í Evrópukeppninni hefur verið ntjög góð. Hann spilaði áður með Lokeren í Belgíu en hafði engin tilboð frá öðrum félögum þegar samningur hans við Lokeren rann út í vor. Frammistaða hans í landsleikjum Dana að undanförnu vakti þó athygli margra félaga m.a. Tottenham Hotspur frá Englandi og nokkurra ítalskra félaga. Nú mun kappinn sem sagt halda til stjörnuprýddrar ítalskrar deildar og er talið að Verona greiði 1,5 milljónir dollara fyrir. Samkvæmt reglum á Ítalíu þá verður að ganga endanlega frá samningnum fyrir lok þessa mánaðar til að Elkjær verði löglegur á næsta keppnistímabili. Heimsmet í sundi B Kanadamaðurinn Victor Davis bætti eigið hcimsmet í 200 m bringusundi á mótí í Toronto í Kanada í gær. Davis synti á 2:14,58 og bætti fyrra met sitt er hann setti á móti í Ecuador 1982 um 15 hundruðustu úr sekúndu. „Ég var ekki að stefna neitt sérstaklega á heimsmct, ég bara synti,“ sagði Davis eftir mótið. Tl r Ll 1 Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu: V-Þjóðverjar fallnir út Fimmtudagur 21. júní 1984 27 - Spánn og Portúgal áfram ■ V-Þjóðverjar, Evrópu- meistarar landsliða í knatt- spyrnu fyrir fjórum árum, féllu út úr úrsiitakeppninni í Frakk- landi í gærkvöld, er þeir lágu 0-1 fyrir Spánverjum í París. Portúgalir sigruðu Rúmena í hörðum leik, þannig að ná- grannaþjóðirnar tvær, Spánn og Portúgal fengu 4 stig hvor , en Þjóðverjar sitja eftir með 3 stig og sárt ennið. Leikur Þjóðverja og Spán- verja var fjörugur mjög. Þjóð- verjar sóttu síst minna, áttu skot og skalla þrisvar í stöng í fyrri hálfleik, en var bjargað í lokin með frábærri markvörslu Tony Schumacher, er hann varði vítaspyrnu Spánverja. UIi Stielike hafði fellt varamanninn Garcia í vítateignum, en Schumacher varði vítaspyrnu Carrascos með fótunum. Þjóð- Ovett tvisvar undir lágmarki ■ Olympíumeistarinn í 800 m. hlaupi frá því á síðustu Olympíuleikum, Steve Ovett sigraði tvívegis í 800 m hlaupi á mótum á Bretlandseyjum með 48 tíma millibili á sunnudag og þriðjudag. Á mótinu á þriðjudag sem var haldið í Belfast á N-Irlandi hljóp Ovett á 1:46,14 sek. sem er 0.85 sek undir Olympiulág- markinu. Á sunnudag hljóp Ovett á 1:47,00 sek. en það var á móti í Englandi. „Ég ætla ekki að hlaupa 800 m. .aftur fyrr en OL liðið hefur verið valið" sagði Ovett eftir hlaupið á þriðjudag. „Mér finnst ég þegar hafa sannað að ég er verðugur í liðið" sagði Ovett. OL lið Breta verður valið á sunnudag. Aðeins heimsmethafinn Se- bastian Coe og Peter Elliot, sem varð fjórði á heimsleikun- um á síðasta ári, hafa náð betri tíma í ár en Ovett náði á þriðjudag. Zola Budd tók einnig þátt í hlaupinu í Belfast á þriðjudag og sigraði örugglega í 3000 m. hlaupinu á 8:51,99. mín. Zolu var vel fagnað af áhorfendum er hún kom í mark 10 metrum á undan næstu hlaupakonu. Kylfingur frá Grindavík fékk ekki að leika með sinni forgjöf: Fórnarlamb sleifarlags sinnar eigin stjórnar ■ Á Pierre-Robert golfmót- inu hjá Nesklúbbnum á Sel- tjarnarnesi um síðustu helgi gerðist það, að kylfingi sem 'talinn var hafa sigrað í opnum karlaflokki með forgjöf, var tilkynnt það að hann hefði 0 í forgjöf en ekki 23 og þess vegna bæru honum engin verð- laur.. Guðjón Einarsson, kylfing- ur úr Golfklúbbi Grindavíkur varð bæði sár og reiður vegna þessa, hafði leikið á 85 höggum, og hafði 23 í forgjöf þannig að nettó útkoman var 62 högg. Sá sem síðan var úrskurðaður sigurvegari var á 64 höggum. „Frímann Gunn- laugsson formaður lands- forgjafarnefndar sagði mér að ég hefði 0 í forgjöf, þar sem heimaklúbbur minn hefði ekki löglega mætingu, „Schratch". Því léki ég með enga forgjöf eins og aðrir Grindvíkingar á rnótinu". NT hafði samband við Frí- mann Helgason vegna þessa máls, og innti hann eftir því hvers vegna veður væri gert útaf þessu nú, þar sem Guðjón hefði áður keppt á íslandsmóti og fleiri mótum með forgjöf. Frímann sagði að nýjar og strangari reglur um forgjöf hefðu tekið gildi um síðustu áramót. „Nýju alþjóðareglurnar segja að menn þiggi aðeins forgjöf af sínum heimaklúbbi. Áður var þetta þannig að menn gátu verið í mörgum klúbbum og gátu haft forgjöf frá öðrum kiúbbum en heimaklúbbn- um. Eftir að þessi lög^ gengu í gildi hófumst við handa, í mars skrifuðum við þeini klúbbum bréf sem ekki höfðu löglega mældan völl. Golf- klúbbi Grindavíkur var ásamt átta öðrum klúbbum gert að fá útgefið „Schratch" á völlinn til þess að geta verið með löglega forgiöf, og jafnframt bent á að meðlirhir þeirra yrðu að leika með núll í forgjöf þar til þessu yrði kippt í lag. Fjórir af þessum átta klúbbum hafa svarað og gengið frá sínum málum, en hinir fjórir, og Grindvíkingar hafa ekki geng- ið frá þessu. Þeir vissu þetta þessir menn, og hafa leikið á mótum á Suðurnesjum með ólöglega forgjöf. Þar hafa við- komandi aðilar vitað um þessi mál og ekkert gert í þeirn til að forðast leiðindi. - Þannig að það var ákveðið að taka á þessu máli í eitt skipti fyrir öll til að fá þetta út úr heimin- um", sagði Frímann Gunn- laugsson. „Við leystum þctta síðan með því að reikna út forgjöf á völlinn samkvæmt bráða- birgðamælingum. Völlurinn verður síðan löglega mældur í þessari viku“, sagði Frímann Gunnlaugsson formaður landsforgjafarnefndar GSÍ. Því er svo við að bæta, að samkvæmt bráðabirgðafor- gjöfinni sem reiknuð var út, mældist Guðjón með 21 í forgjöf, þar sern völlurinn var hækkaður um tvö högg, og hefði, ef bráðabirgðaforgjöfin hefði verið til, lent í 1-2. sæti í opnum flokki karla mcð for- gjöf á mótinu. - En samkvæmt upplýsingum NT virðist Guð- jón hafa orðið fórnarlamb sleifarlags sinnar eigin klúbb- stjórnar, því hann fékk engin verðlaun og korn út úr mótinu á 85 höggum nettó. verjar sóttu mikið í síðari hálf- leik, en Arconada markvörður Spánverja var vel á verði. Schumacher þurfti líka að taka á, varði vel frá Carrasco og Senor í síðari hálfleik. Og Spánverjar voru sterkari í lokin. Maceda, sem skoraði sigurmark þeirra á Laugardals- velli í fyrra, komst einn inn fyrir, en Stielike varði á línu með skalla. En Maceda var á ferð rétt fyrir leikslok, skallaði þá af afli í markið eftir fyrirgjöf Senor, 1-0. Portúgalir voru í hinum mestu vandræðum með grófa Rúmena. Þannig var Chalana borinn útaf eftir 15 mínútur, eftir að hafa verið sparkaður niður hvað eftir annað. En það var miðherji Benfica, Tamagn- ini Nene sem skoraði með glæsiskoti á 78. mínútu, en hann hafði aðeins verið inni á í 12 mínútur þá Portúgalir áttu sigurinn skilið , sóttu mun meira og áttu nokkur góð færi. Annars var leikurinn mest bar- átta, og harka Rúmenanna of mikil. Spánverjar urðu efstir í riðl- inum, höfðu betra markahlut- fall en Portúgalir. Það verða því Danir og Spánverjar sem mætast í undanúrslitum, og Frakkar mæta Portúgölum. Leikirnir verða á laugardag og sunnudag. ■ „Skal vi ha en öl?“ gæti þessi danski knattspyrnuáhugamaður verið að segja við konuna á myndinni. Elkjær seldur til Verona á Ítalíu - Tottenham var líka inni í myndinni ■ Preben Elkjær Larsen-frá Lokeren til Verona. f Kastskór St. 5-121/2 kr. 1490,- Langstökksskór St. 4-71/2 kr. 1570,- Hástökksskór St. 5-11 kr. 1620,- Spjótkastsskór St. 7-16 kr. 1740,- Hlaupaskór St. 31/2-12, trá kr. 1192,- Einnig kúlur - kringlur og spjót. FRJÁLSÍÞRÓTTASKÓR Póstsendum Sportvöruvers/un /ngó/fs Óskarssonar pípi^jjí Klannarstin 44 — simi 1033C Klapparstig 44 — simi 10330

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.