NT - 06.07.1984, Side 15
Föstudagur 6. júlí 1984 1 5
iil . Útvarp - — Sjónvarp
Útvarp á laugardag kl. 20.40:
Austfjarðaflakk
■ Að undanförnu hefur
Hilda Torfadóttir ferðast um
Austurland ásamt taduii-
mönnum útvarpsins. í þessu
ferðalagi hafa þau Hilda og
tæknimennirnir notað bíl sem
útbúinn er sérstaklega með
upptökur í' huga. Nokkurs
konar hljóðver á hjólum.
Á laugardagskvöld kl 20.40
munu útvarpshlustendur fá að
heyra frá ferðalagi Hildu og
kennir þar ýmissa grasa.
Það er frá Vopnafirði og
Héraði, en útvarpsmenn komu
þar við á ferð sinni í veðurblíð-
unni að undanförnu. Þátturinn
ber nafnið „Laugardagskvöld
á Gili“.
Meðal efnis í þessum
skemmtiþætti er dagskrá sem
Leikfélag Fljótsdalshéraðs sér
um. Pá verður harmoniku-
leikur og farið með gamanmál.
Lýsing á Egilstöðum, í léttum
dúr verður meðal efnis og
einnig verður rætt stuttlega við
„Dúkkulísurnar". Hér er um
að ræða kvennahljómsveit frá
Egilsstöðum, sem nýlega gaf
út sína fyrstu hljómplötu.
Síðar í sumar mun Hilda
ferðast um Vestfirði og
Strandir.
■ Hljómsveitin Dúkkulísurnar, sem sést hér á þessari mynd,
verður í stuttu spjalli í þætti Hildu Torfadóttur, „Laugardags-
kvöld á Gili“ sem er á dagskrá útvarpsins í kvöld kl. 20.40.
■ Cary Grant og Ann Sheridan í hlutverkum sínum í laugardags mynd sjónvarpsins sem heitir „Stríðsbrúðurin“.
Sjónvarp kl. 21.50 á laugardag:
Stríðsbrúðurin
■ Bandarísk gamanmynd
frá 1949, Stríðsbrúðurin (I Was
a Male War Bride) verður á
dagskrásjónvarpsinskl. 21.50.
á laugardagskvöld. Með aðal-
hlutverk í myndinni fara Cary
Grant, Ann Sheridan, Marion
Marshall og Randy Stuart.
Leikstjóri er Howard Hawks.
Hér er um að ræða gaman-
mynd sem gerist í síðari heim-
styrjöldinni. Franskur her-
maður og bandarískur liðsfor-
ingi, sem er kvenkyns, verða
ástfangin og ganga í það heil-
aga. Þeim til mikillar skelfing-
ar er hún kölluð heim til starfa
og hann á í erfiðleikum með að
fylgja henni. Þau bregða á það
ráð að herrann er dulbúinn
sem kona og freistar þess að
fylgja konu sinni til Bandaríkj-
anna. Það gengur þó ekki
átakalaust, þannig að ýmislegt
skemmtilegt kemur uppá,
enda er hér um gamanmynd að
ræða. Sýningartími myndar-
innar er 105 niínútur.
■ í íþróttaþætti sjónvarpsins í dag verða sýndir valdir kaflar úr leik Spánverja og
Portúgala á Evrópumótinu í knattspyrnu. Það er lið Spánverja sem er hér á myndinni.
Útvarp kl. 16.20. á laugardag:
„Morðinginn kemur“
Sjónvarpkl. 16.30
á laugardag:
Dregið í
beinni
útsendingu
- í 8 lida úrslit
bikarkeppninnar
í knattspyrnu
■ Á laugardag kl. 16.30.
verður íþróttaþátturinn á sín-
um stað í sjónvarpsdag-
skránni. Bjarni Felixson verð-
ur illa fjarri góðu gamni að
þessu sinni, hann er í fríi.
Honum veitir sjálfsagt ekki af
hvíldinni eftir erfiðar vikur að
undanförnu. í stað Bjarna
verður Ingólfur Hannesson við
stjórnvölinn og blm. NT hafði
samband við Ingólf til að for-
vitnast um efni þáttarins á
laugardag.
„Það helsta í þættinum á
laugardag verður frá Bislett
leikunum í frjálsum íþróttum í
Osló sem fór fram fyrir stuttu.
Sýndir verða valdir kaflar úr
leik Spánverja og Portúgala
frá Evrópukeppninni í knatt-
spyrnu sem fram fór í Frakk-
landi á dögunum, en sá leikur
þótti mjöggóður. Síðan verður
dregið í bikarkeppni KSÍ, 8
liða úrslitum í beinni útsend-
ingu í sjónvarpssal og fjallað
um þá bikarleiki sem fram fóru
í vikunni. Þétta er það helsta,
en síðan verður eitt og annað
sem flýtur með eins og vana-
lega,“ sagði Ingólfur Hannes-
son.
■ Laugardaginn 7. júlí kl.
16.20 er á dagskrá útvarpsins
fjórði og síðasti þáttur fram-
haldsleikritsins ANDLITS-
LAUS MORÐINGI eftir Stein
Riverton. Nefnist þátturinn
„Morðinginn kemur“.
í þriðja þætti gerðist þetta:
Tortryggni Krags leynilög-
reglumanns í garð Bomans lög-
fræðings eykst þegar hinn fyrr-
nefndi kemur að Boman
snuðrandi í grennd við árásar-
staðinn. Krag heimsækirkaup-
mannshjónin, þar sem Boman
gistir, og finnur þar bréf sem
skrifað er af lögfræðingnum.
Rithöndin reynist hin sama og
á bréfinu sem Holger ofursti
fékk skömmu áður en á hann
var ráðist. Á heimleiðinnr
heyrir Krag ógnarlegt öskur úr
skóginum en þótt hann leiti
gaumgæfilega verður hann
einskis var.
Við framhald yfirheyrslu
kemur Boman ekki. Krag fer
ásamt dómaranum til bústaðar
hans en þar er allt á tjá og
tundri. Skömmu síðar er til-
kynnt að Boman hafi fundist
látinn og hafi hann greinilega
verið myrtur.
Leikendur í 4. þætti eru:
Jón Sigurbjörnsson, Sigurður
Skúlason, María Sigurðardótt-
ir, Árni Tryggvason, Þorsteinn
Gunnarsson, Jón Júlíusson,
Erlingur Gíslason, Kári Hall-
dór og Steindór Hjörleifsson.
Leikstjóri er Lárus Ýmir
Óskarsson. Þýðinguna gerði
Margrét Jónsdóttir en þeir
Friðrik Stefánsson og Hreinn
Valdimarsson sjá um tækni-
málin.
Þessi lokaþáttur leikritsins
verður endurtekinn föstudag-
inn 13. júlí kl.21.35.
Laugardagur
7. júlí
7.00 Veðurfregnir. Fróttir. Bæn Tón-
leikar. Þulur velur og kynnir. 7.25
Leikfimi. Tónleikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veður-
fregnir. Morgunorö - Halldór Krist-
jánsson talar.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.). Tón-
leikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30 Óskalög sjuklinga Helga Þ.
Stephensen kynnir. (10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir). Óskalög sjúk-
linga frh.
11.20 Súrt og sætt. Sumarþáttur fyrir
unglinga. Stjórnendur: Sigrún Hall-
dórsdóttir og Erna Arnardóttir.
12.00 Dagskrá. T ónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.40 íþröttaþáttur Umsjón: Ragnar
Örn Pétursson.
14.00 Á ferð og flugi. Þáttur um
málefni líöandi stundar í umsjá
Ragnheiðar Davíðsdóttur og Sig-
urðar Kr. Sigurðssonar.
15.10 Listapopp - Gunnar Salvars-
son. (Þátturinn endurtekinn kl.
24.00).
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Framhaldsleikrit: „Andlits-
laus morðingi" ettir Stein River-
ton IV. og síðasti þáttur: „Morð-
inginn kemur" Útvarpsleikgerð:
Björn Carling. Þýðandi Margrét
Jónsdóttir. Leikstjóri: Lárus Ymir
Óskarsson. Leikendur: Jón Sigur-
björnsson, Sigurður Skúlason,
Maria Sigurðardóttir, Árni
Tryggvason, Þorsteinn Gunnars-
son, Jón Júlíusson, Eriingur Gisla-
son, Kári Halldórsson og Steindór
Hjörleifsson. (IV. og siöasti þáttur
veröur endurtekinn, föstudaginn
13. júlín.k. kl. 21.35).
17.00 Fréttir á ensku
17.10 Síðdegistónleikar Igor Gav-
rysh og Tatiana Sadkovskaya leika
á selló og pianó lög eftir frönsk
tónskáld / Bracha Eden og Alex-
ander Tamir leika á tvö pianó
Fantasíu op. 5 eftir Sergej Rakh-
maninoff / Gérard Sousay syngur
Ijóðasöngva eftir Franz Schubert.
Jacqueline Bonneau leikur á
pianó.
18.00 Miðaftann i garðinum með
Hafsteini Hafliðasyni.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Ambindryllur og Argspæing-
ar. Einskonar útvarpsþáttur. Yfir-
umsjón: Helgi Frimannsson.
20.00 Manstu, veistu, gettu. Hitt og
þetta fyrir stelpur og stráka. Stjórn-
endur: Guðrún Jónsdóttir og Mál-
fríður Þórarinsdóttir.
20.40 „Laugardagskvöld á Gili“
Hilda Torfadóttir tekur saman
dagskrá úti á landi.
21.15 Harmonikuþáttur Umsjón:
Sigurður Alfonsson.
21.45 Einvaldur í einn dag Samtals-
þáttur í umsjá Áslaugar Ragnars.
22.00 Tónleikar
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins
22.35 „Risinn hvíti“ eftir Peter
Boardman Ari Trausti Guðmunds-
son les þýöingu sina (17). Lesarar
með honum: Ásgeir Sigurgestsson
og Hreinn Magnússon.
23.00 Létt sígild tónlist
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
24.00 Næturútvarp frá RÁS 2 til kl.
Laugardagur
7. júlí
24.00-00.50 Listapopp. Endurtekinn
þáttur frá Rás 1. Stjórnandi: Gunn-
ar Salvarsson.
00.50-03.00 Á næturvaktinni Létt
lög leikin af hljómplötum. Stjórn-
andi: Kristín Björg Þorsteinsdóttir.
(Rásir 1 og 2 samtengdar kl. 24.00
og heyrist þá í Rás 2 um allt land).
Laugardagur
7. júlí
16.30 íþróttir Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
18.30 Börnin við ána Annar hluti -
Sexmenningarnir Breskur fram-
haldsmyndaflokkur í átta þáttum,
gerður eftir tveimur barnabókum
eftir Arthur Ransome. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir.
19.00 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 i blíðu og stríðu Áttundi
þáttur. Bandarískur gaman-
myndaflokkur í níu þáttum. Þýð-
andi Þrándur Thoroddsen.
21.00The Chieftains í Reykjavik
Siðari hluti hljómleika i Gamla Bíói
á Listahátið 8. júni síðastliöinn.
21.50 Stríðsbrúðurin (I Was a Male
War Bride) Bandarisk gaman-
mynd frá 1949. Leikstjóri Howard
Hawks. Aðalhlutverk: Cary Grant,
Ann Sheridan, Marion Marshall og
Randy Stuart. j lok seinni heims-
styrjaldar takast ástir með frönsk-
um hermanni og konu sem er
liðsforingi i bandaríska hernum.
Hjúin ganga í það heilaga en
þegar frúin er kölluð til starfa
heima fyrir tekur að syrta i álinn.
Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
23.35 Dagskrárlok.