NT - 06.07.1984, Side 25
-\1 Föstudagur 6. júlí 1984 25 Útlönd
I íranir 1 ráðast á Fyrrum ráðherra
1 olíuskip
I ■ íranskar flugvélar réð- I ust í gær á 122 þúsund I tonnaolíuskip.semlestað B hafði í Saudi-Arabíu og aopaouripoK3i wU %
Eldur kviknaði í skipinu
en skipshöfninni tókst að
slökkva hann. Tvær
sprengjur sem hittu skipið
sprungu ekki en eru í
skrokk þess. Sérfræðingar
eru á leiðinni til að gera
þær óvirkar.
Skipið er japanskt og í
gærkvöldi stefndi það í átt
til Hormutzsunds.
Árásin var gerð á sömu
slóðum og íranir hafa oft
áður ráðist á skip, sem
lestað höfðu í ríkjum við
vestanverðan Persaflóa.
Talið er að árásin sé svar
við árás íraka á olíuskip,
,sem lestaði við Kharg eyju
í síðustu viku. Pá fórust
átta menn og skipið er
ónýtt.
Senda átti hann úr landi í stjórnarpósti
London-Reuter
■ Umaro Dikkum fyrrum ráð-
herra í Nigeríu var rænt á
heimili sínu í London síðdegis í
gær. Tveir menn á gulum sendi-
bíl fóru á brott með manninn.
Lögreglan hóf þegar umfangs-
mikla leit og í gærkvöldi fannst
ráðherrann fyrrverandi á flug-
velli við London. Hann var
meðvitundarlaus vegna eitur-
lyfja sem hann var sprautaður
með. Dikko var í poka, sem
merktur var sem sendiráðspóst-
ur.
Dikko er mágur Shagari for-
seta, sem steypt var af stóli af
herforingjum í vor. Hann komst
úr landi og hefur síðan verið sá
maður sem núverandi stjórn í
Nígeríu hefur lagt hvað mest
kapp á að ná í. Hann er ásakað-
ur fyrir að hafa dregið sér mikið
fé og er sagður milljarðamær-
ingur.
Herforingjastjórnin ásakar
Dikko um að vera valdur að
spillingu í stjórnartíð sinni, fyrir
að hafa leigt málaliða til að
kollvarpa núverandi stjórn og
að hafa ætlað að skipuleggja að
sprengja olíuhreinsunarstöðv-
ar.
Stjórnin í Nígeríu hefur heit-
ið að ná í Dikko hvað sem það
kostar.
Mannræningjarnir voru báðir
svertingjar. Sendimenn Nígeríu
í London segja að stjórn þeirra
hafi engan þátt átt í mannrán-
inu.
Yfirmaður sendiráðs Nígeríu
hefur verið boðaður í breska
utanríkisráðuneytið og mun
mæta þar árdegis í dag.
■ Myndin eftir Turner sem
seld var í gær. Myndin er tekin
á uppboðinu hjá Sothebys, er
verið var að bjóða í. Búist var
við að myndin seldist fyrir um 3
milljónir punda, en eftir þriggja
mínútna boð var hún slegin á
6.7 milljón sterlingspund.
Símamynd Polfoto
Hæsta verð
á málverki
til þessa
Reutcr-London
■ „Við sjóinn í Folkstone"
varð dýrasta málverk heimsins í
gær, er myndin var seld fyrir 6.7
milljón sterlingspund (280 millj-
ónir íslJcr.) á uppboði Sothesbys
í London. Myndin er eftir
breska málarann Turner. Ekki
var vitað í gær fyrir hvaða aðila
var boðið í myndina eða hvort
hún hafi verið seld úr landi eða
verður áfram í Bretlandi. Turn-
er lifði og starfaði á 19. öld.
Uppboðssalurinn var troð-
fullur þegar uppboðið hófst.
Þegar myndin eftir Turner var
boðin upp var fyrsta boð ein
milljón pund. Það var snarlega
hækkað og að þrem mínútum
liðnum var myndin orðin hin
dýrasta sem vitað er um að seld
hafi verið á opnum markaði.
Fyrra metið var 6.7 milljónir
dollara (rúmlega 200 millj. ísl.
kr.) Það var einnig mynd eftir
Turner, sem seld var í New
York.
Ofan á verðið verður kaup-
andinn að greiða umboðslaun
og uppboðslaun, þannig að
hann verður að reiða af hendi
7.37 milljönir punda (um 300
millj. ísl. kr.).
Myndin sem seld var í gær er
úr dánarbúi Clark lávarðar, sem
var sérfróður í listasögu.
S.l. þriðjudag voru 71 teikn-
ing eftir gamla meistara seldar
á uppboði fyrir samtals 21 millj-
ón punda (850 millj. ísl. kr.)
Kaupandinn var Getti listasafn-
ið í Kaliforníu. Framkvæmda-
stjóri safnsins sagðist hafa 1.3
milljónir dollara til mynda-
kaupa á viku hverri.
Bretar óttast nú mjog að
listaverk þeirra fari úr landi og
ráða þeir sjálfir ekki við að
kaupa listaverk á uppboðum
þar sem Bandaríkjamenn bjóða
á móti vegna sterkrar stöðu
dollarans og lágs gengis
pundsins.
Hæsta verð sem greitt hefur
verið fyrir listaverk á uppboði
var er Þjóðverjar keyptu þýskt
biblíuhandrit frá 12. öld í des-
ember s.l. Biblían sú kostaði
360 millj. kr.
250 farþegar
í gíslingu
flugræningja
Lahore, Pakistan-Reuter
■ Fjórir indverskir sikh-
ar rændu flugvél í innan-
landsflugi í gær. í flugvél-
inni voru yfir 250 manns.
Þeir flugu til Pakistan og
var flugvélin á Lahoreflug-
velli í gærkvöldi umkringd
hermönnum.
Flugræningjarnir eru
vopnaðir skammbyssum
og hótuðu þeir að sprengja
vélina í loft upp með öllum
innanborðs ef indverska
stjórnin yrði ekki við
kröfum þeirra, sem eru að
láta lausa fjölmarga sikha
sem sitja í fangelsum í
Indlandi fyrir hermdar-
verk og að stofnað yrði
sjálfstætt sikharíki.
Pakistanir neituðu að
flugvélin fengi að lenda,
en þegar indverska stjórn-
in bað um að hún fengi
lendingarleyfi þar sem hún
var að verða eldsneytislaus
hreinsuðu Pakistamr
flugbraut og umkringdu
hermenn vélina.
Þannig stóðu mál þegar
síðast fréttist í gærkvöldi.
Sovétríkin:
Flokkurinn endur
reisir Molotov!
Moskva-Reuter
■ Vyacheslav Molotov, utan-
ríkisráðherra Stalíns, hefur ver-
ið tekinn aftur í sovéska komm-
únistaflokkinn en Molotov féll í
ónáð eftir valdatöku Krútsjevs
á miðjum sjötta áratugnum.
Þetta var staðfest við frétta-
menn af talsmanni sovéska
utanríkisráðuneytisins í gær.
Molotov, sem nú er 94ra ára
að aldri hefur lifað í einangrun
undanfarin 20 ár. Molotov setti
svip sinn á sögu 20. aldar en
hann var dyggur stuðningsmað-
ur Stalíns allt frá upphafi rússn-
esku byltingarinnar. Hann
undirritaði m.a. samninginn
milli Sovétmanna og Þjóðverja
árið 1939 sem gerði Nasistum
kleyft að ráðast inn í Pólland,
en það var upphafið að seinni
heimsstyrjöldinni. Fyrsta utan-
landsferð hans var til Þýska-
lands til viðræðna við Ádolf
Hitler, en árið eftir fékk hann
það hlutverk að tilkynna sov-
ésku þjóðinni gegnum útvarp
að Þjóðverjar hefðu ráðist inn í
Rússland.
Árið 1956 var Molotov að
undirbúa að draga sig í hlé þar
sem Krútsjev var önnum kafinn
við að afhjúpa Stalín. Hann var
sendur til Mongólíu sem sendi-
herra árið 1957 og árin 1960 til
'61 var hann fulltrúi Sovét-
manna á alþjóðlegri kjarnorku-
ráðstefnu í Vínarborg. En á
flokksþingi Kommúnistaflokks-
ins árið 1961 var nær einróma
krafist að Molotov yrði rekinn
úr flokknum. Það kom síðan í
ljós þrem árum seinna að búið
var að reka Molotov úr
flokknum, ásamt Malenkov
fyrrverandi forsætisráðherra.
Vestrænir sendimenn telja
ekki að endurreisn Molotovs
nú sé nein sérstök pólitísk vís-
bending og benda á að hún hafi
ekki verið tilkynnt opinberlega.
■ Molofov árið 1939. Win-
ston Churcill lýsti honum eitt
sinn sem manni með bros eins
og veturinn í Síberíu.
Hart varaforsetaefni?
Washington-Reuter
■ 11 þingmenn demó-
krata skoruðu í gær á
Mondale, að velja Gary
Hart sem varaforsetaefni.
( bréfi sem þeir skrifuðu
Mondale sögðu þeir að
Hart væri allra manna lík-
legastur til að afla fram-
bjóðanda flokksins at-
kvæða í forsetakosningun-
um og val hans sem vara-
forsetaefni mundi sameina
flokkinn eftir langa og
harða baráttu um útnefn-
ingu til forsetaframboðs.
Konur leggja hart að
Mondale að velja konu
sér við hlið í kosningabar-
áttunni. Hart hefur áður
tilkynnt að hann hafi ekki
áhuga á að vera í framboði
til varaforseta.
ftalskir
kommar
styðja
NATO
■ Alessandro Natta, sem
kjörinn var íormaður ítalska
kommúnistaflokksins eftir lát
Berlinguers, hélt blaðamanna-
fund í gær í Róm. Þar staðfesti
Natta að stefna flokksins væri
óbreytt eftir formannsskiptin,
flokkurinn myndi ekki taka upp
náið samband við Moskvu eða
taka við neinum skilaboðum
þaðan. Hann lagði einnig
áherslu á þá skoðun sína að
Ítalía ætti að vera áfram í
Atlantshafsbandalaginu, varn-
arsamtökum vestrænna þjóða.
Símamynd Polfoto
Verðmæt
klukka
London-Reuter
■ Hæsta verð sem greitt hefur
verið fyrir gamlan tímamæli
fékkst í gær á uppboði hjá
Sothebys. Þar var seld klukka,
sem smfðuð var í Þýskalandi á
17. öld fyrir 842 þúsund sterl-
ingspund. Það gerir um 34
millj. ísl. kr.
Umgerð klukkunnar er úr
silfri og var kaupandinn breskur
silfurkaupmaður.
Atvinnu-
leysið í
Bretlandi
eykst
London-Reuter
■ Atvinnuleysi jókst enn í
Bretlandi í síðasta mánuði að
því er opinberir aðilar skýrðu
frá. í júní jókst tala atvinnu-
lausra um 8.300. Eru þá ekki
taldir með skólanemar í fríi eða
þeir sem vinna tímabundið.
Tala atvinnulausra er þar með
kominn upp í 3.036.200.
Fjölgun atvinnuleysingja hef-
ur verið að meðaltali 15 þúsund
manns á mánuði það sem af er
þessu ári. Kemur þetta ekki
heim og saman við staðhæfingar
ríkisstjórnarinnar um að bati sé
í efnahagslífinu.
Talsmaður Verkamanna-
flokksins sagði að þessar tölur
um atvinnuleysi væru ógnvekj-
andi og að stjórnin væri skeyt-
ingarlaus um þessi efni og gerði
ekkert til að ráða bót á meininu.
Skorað er á stjórnina að leysa
verkfall kolanámumanna, en
hún stendur fast við að loka 20
kolanámum, sem eru í ríkiseign
og eru reknar með halla. Ef
námunum verður lokað missa
um 20 þúsund manns atvinnu
sína.