NT - 03.09.1984, Qupperneq 1
Sýslumaðurinn greip
til sinna eigin ráða
- og rak hross Húnvetninga niður af Auðkúluheiði
það“, sagði Páll Pétursson, og
átti við Sveinbjörn Dagfinns-
son, ráðuneytisstjóra í land-
búnaðarráðuneytinu.
Páll sagði að Landgræðslan
hefði hagsmuni af því að halda
því fram að Auðkúluheiði væri
ofbeitt, en hann tryði því ekki
að nokkur óvilhallur vísinda-
maður kæmist aö þeirri niður-
stöðu.
■ Jón ísberg, syslumaður
Húnvctninga, sendi í gær
fjögurra manna lið upp á Auð-
kúluheiði til að smala hrossum
af neðri hluta heiðarinnar, en
þau höfðu verið rekin þangað
í trássi við bann landbúnaðar-
ráðuneytisins fyrr í sumar.
Smalamennirnir, sem voru frá
Blönduósi, náðu 86 hrossum
og sendu bændum skilaboð
um að koma og sækja sín hross
að heiðargirðingunni.
„Ég fór þarna uppeftir, en
átti ekkert af þessum
hrossum", sagði Páll Péturs-
son, alþingismaður á Höllu-
stöðum, í samtali við NT. „Ef
mín hross hefðu verið í
þessum hópi, þá hefði ég rekið
þau beint á heiðina aftur",
sagði Páll. Engar sögur fara af
því að aðrir bændur hafi brugð-
ist eins við, og gengu öll hross-
in út í gærkvöldi.
„Við Jón ísberg vorum á
góðri leið með að komast að
samkomulagi um að sækja
hrossin, en Sveinbjörn land-
búnaðarráðherra þverskallað-
ist við þeirri ósk okkar að láta
gera hlutlausa úttekt á gróðri
heiðarinnar og kom í veg fyrir
Alvarlegt umferðarslys á Ártúnshöfða:
Tveir bræður létu lífið
■ Tveir fullorðnir bræður
létust, og tveir aðrir slösuðust
lítillega í hörðum árekstri, sem
varð í Ártúnsbrekkunni, á milli
Nestis og Höfðabakka um kl.
14.30 í gærdag.
Slysið gerðist með þeim hætti,
að Saab bifreið, sem var á leið
inn í borgina, á hægri akrein,
fór fram úr jeppa, sem var á
vinstri akrein, á sömu leið. Að-
stæður til framúraksturs voru
mjög þröngar og lenti afturhorn
Saab bifreiðarinnar á framhorni
jeppans. Við það missti öku-
maður jeppans stjórn á farar-
tæki sínu og fór yfir á hinn
vegarhelminginn, og skall fram-
an á Volkswagen bifreið, sem
var á leið út úr borginni.
Bræðurnir voru í Volkswagen
bifreiðinni og létust þeir sam-
stundis. Jeppinn, sem var
opinn, valt út fyrir veg, en
ökumaður og farþegi sluppu
furðulega vel. Ökumaðurinn
slasaðist lítið, en farþeginn var
færður í frekari rannsókn. Far-
þega Saab bifreiðarinnar sakaði
ekki, en þeir voru einnig færðir
á slysadeild.
Hinir látnu voru fæddir árin
1911 og 1930. Þeir voru ókvænt-
ir og barnlausir. Ekki er hægt að
birta nöfn þeirra að svo stöddu.
Lundareykjadalur:
Tvftugur piltur
lést í bílveltu
■ Volkswagen bifreiðin var mjög illa útleikin eftir áreksturinn og
þurfti að beita skurðartækjum til að ná farþega og ökumanni út.
■ Ökumaður og farþegi jeppans voru ekki í öryggisbeltum þcgar
áreksturinn varð og þykja þeir hafa sloppið furðu vel.
NT-myndir Sverrir
Sjóðakerfið stokkað upp:
Stjórnmálamenn útlægir gerðir
■ Stjórnmálamenn verða úti-
lokaðir frá sjóðakerfinu sam-
kvæmt tillögum um uppstokkun
þess, sem þingflokkar stjórnar-
flokkanna munu ræða í dag og
á morgun. Tillögurnar gera ráð
fyrir þremur sjóðum, einum fyr-
ir hvern höfuðatvinnuveg, og
verða stjórnir þeirra skipaðar
þremur mönnum, sem allir
koma frá atvinnuvegunum
sjálfum.
Sjá nánar á bls. 2 um niður-
stöður úr viðræðum formanna
stjórnarflokkanna.
■ Tvítugur piltur lést í bíl-
veltu rétt norðan við Iðunn-
arstaði í Lundareykjadal síð-
degis á laugardag. Farþegi,
sem var með honum í bflnum
slapp lítt meiddur.
Piltarnir voru á ferð í
svokölluðum Buggy-bíl og
virðist sem ökumaðurinn
hafi misst stjórn á honum
með þeim afleiðingum, að
farartækið fór út af veginum
og valt. Bíllinn var ekki yfir-
byggður og hann var heldur
eicki með skrásetningarnúm-
er.
Hinn látni hét Hannes
Gunnar Einarsson og var
hann frá Iðunnarstöðum.
Seyðisfjörður:
Dularfull-
urkafbát-
uráferð?
■ „Við sáum einstakt
fyrirbæri, sem við vitum
ekki hvað var. Það gat
eins hafa verið kaibátur.“
Petta sagði Ágúst Sigur-
jónsson útgerðarmaður á
Seyðisfirði í samtali við
NT í gær. Ágúst, ásamt
fleirum, sá einhvern tor-
kennilegan hlut úti á firð-
inum á laugardagsmorg-
un. Hluturinn var að sjá
2-3 metrar að lengd, hæst-
ur í miðjunni, en lækkaði
til endanna. Sáu þeir hann
aðeins skamma stund á
yfirborðinu, áður en hann
seig rólega niður og hvarf.
Dularfulli hluturinn var
ljós á lit og á honum
myndaðist Ijósbrot, eins
og þar væri gluggi.
Vestmannaeyjar:
Fimm daga
bið eftir
löndun!
■ Mikil fiskveiði er að setja
allt úr eðlilegum skorðum í
Vestmannaeyjum þessa dag-
ana. Eru þess dæmi að bátar
hafi þurft að bíða allt að fimm
sólarhringa eftir löndun, þar
sem ekki hafa fengist leyfi til
löndunar afla erlendis. Sem
dæmi má nefna að togarinn
Sindri kom til Eyja sl. miðviku-
dag með um 130 tonna afla,
aðallega ufsa.og gat löndun úr
honum ekki hafist fyrr en í
morgun.
Erfiðleikarnir stafa af því að
frystihúsin í Vestmannaeyjum
eru ekki almennilega komin í
gagnið eftir sumarfríslokunina
mestan hluta ágústmánaðar, á
sama tíma og fiskerí er orðið
gegndarlaust.
„Frjálsu kartöflurnar":
Gjörónýtar á
tæpri viku í
versluninni!
-Sjá neytendamál
bls. 10-11