NT


NT - 03.09.1984, Síða 3

NT - 03.09.1984, Síða 3
Bændur og búalið G/obus/ LÁGMÚLI 5, SlMI 81555 Þið sem ætlið ykkur að reisa #HARVESTORE turna á næsta ári athugið að umsóknarfrestur Stofnlánadeildar land- búnaðarins, vegna lána til byggingaframkvæmda á næsta ári rennur út 15.september næstkomandi Fimm íslensk stórbýli hafa tekið þessa tœkni í þjónustu sína. Fimm ára reynsla við erfiðustu heyverkunarskilyrði á þessari öld hafa margsannað ágœti þessarar heyverkunar. -&HARVESTORE heyturn er fjárfesting sem marg- borgar sig. Gjaldeyrissparandi - Þjóðhagslega hagstœtt Leitið upplýsinga Munið að 15. september rennur umsóknarfresturinn út. Mánudagur 3. september 1984 Kaupir hluta af Ásgarði undir orlofshús bænda Keypt í Ásgarði Stéttarsambandsfundurinn ákvað enn- fremur að festa kaup á fimm hekturum af landi úr jörðinni Ásgarði í Grímsnesi, og koma þar upp orlofshúsum fyrir bændur. Að sögn Guðmundar Stefánssonar, hag- fræðings Stéttarsambandsins, er hugmyndin' að byggja tvö hús til að byrja með, en ef vel takist til er rúm fyrir mörg hús til viðbótar' á svæðinu. Lögbundin starfsréttindi Aðalfundur Stétarsambandsins mælti með því, eins og tvö undanfarin ár, að sett yrði löggjöf um atvinnuréttindi í landbúnaði Þannig gæti enginn stundað framleiðslu á búvörum nema þeir sem uppfylltu ákveðin menntunar og starfsreynsluskilyrði. Meðal skilyrða er bændaskólapróf, iðnskólapróf eða stúdentspróf, en einnig gæti starfs- reynsla komið að nokkru leyti í staðinn fyrir formlega skólamenntun, þannig að þeir sem aldir væru upp í sveit þyrftu aðeins að ljúka stuttu námskeiði til að öðlast starfs- réttindi. Pá er gert ráð fyrir að allir sem þegar stunda búskap haldi starfsréttindum án þess að uppfylla skilyrðin. Bændur stjómi sölufyrirtækjum í kjaramálaálykutn aðalfundarins var var- að við því að gengið verði lengra í að skerða kjör bænda, sem þegar hafi verið skert ■ Meðal tillagna sem aðalfundur Stéttarsambands bænda á Isafirði samþykkti um helgina var ein um að stjórn sambandsins skyldi vinna að því að fá framleiðsluráð til að koma hið fyrstaá skömmtun á kjarnfóðri til allra búgreina. Yrði lágt aðflutnings- gjald síðan innheimt af því kjarnfóðri sem þætti hóflegt miðað við markaðs- ástand í viðkomandi greinum, en hátt gjald af því kjarnfóðri sem stuðlaði að umframframley ðslu. í tillögunni kemur fram að hugmyndin með henni sé að verja þann árangur sem náðst hefur á undanförnum árum við að jafna árstíðarsveiflur í mjólkurframleiðslu. Árangrinum yrði stefnt í tvísýnu með háu kjarnfóðursverði í vetur, en það stafar af 70% kjarnfóðurgjaldinu sem nú er í gildi. umfram kjör annarra. Þá mótmælti fundur- inni þeirri stefnu sem nú er fylgt í niður- greiðslumálum, og benti á að verulegs samdráttar hefði þegar orðið vart í sölu búvara vegna beinnar og óbeinnar lækkunar á niðurgreiðslum. Þá harmaði fundurinn að stjórnvöld hefðu ekki staðið að fullu við samþykkt frá síðastliðnu hausti um að fella niður söluskatt af búvörum og tækjum til búreksturs. Fundurinn hvatti bændur til að standa vörð um sölukerfi landbúnaðarins og lagði áherslu á að bændur yrðu áfram að stjórna sölufyrirtækjunum. En jafnframt yrðu þessi sölufyrirtæki að vera ávallt í stakk búin til að mæta þörfum neytenda og skila fullu verði til bænda. Síðast en ekki síst taldi aðalfundurinn að við ríkjandi aðstæður væri aðkallandi að mynda víðtæka samstöðu um stefnu land- búnaðarmála. Slík stefna se undirstaða hagkvæmrar landbúnaðarframleiðslu, og „jafnfram er hún forsenda þess að auðlyndir landsins verði nýttar á skynsamlegan hátt“. Matthías hækkar tryggingar- bætur ■ Bætur almannatrygginga hækka í dag um 3%, svo og tekjutrygging og heimilsuppbót. Hækkun þessi tckur mið af heimild í 79. gr. laga nr. 67 frá 1971 um almannatryggingar og tekur mið af umsömdum hækkunum á vikukaupi í almennri verkamanna- vinnu. Samkvæmt heimildarákvæðinu ber að hækka þessar bætur ekki síðar en 6 mánuðum eftir að umsamdar hækk- anir á verkamannakaupi eiga sér stað. Matthíasi Bjarnasyni hefði því verið í lófa lagið að fresta þessum hækkun- um til 1. mars, ekki síst í því Ijósi að „almennir verkamenn“ hafa sagt upp samningum og vinnuveitendur í VSÍ líta þannig á að 3% hækkunin sé ekki lengur samningsbundin. Staðarsveit: brann ■ Langferða- bifreið úr Borgar- nesi brann til kaídra kola í Staöarsveit- inni um miðnæUið aðfaranótt sunnu- dagsins. Átta far- þegar voru með bif- reiðinni og sluppu þeir naumlega út, cn enginn þcirra slasaðist. Langferðabif- reiðin, sem var á leið með farþegana á dansleik á Lýsu- lióli, var á ferð þeg- ar eldurinn kom upp. Gaskútur, sem var í bifreið- inni, sprakk og gerði það að verk- um, að ekki var hægt að koma við slökkvistarfi. Kjarnfóður verði skammtað í haust

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.