NT


NT - 03.09.1984, Side 10

NT - 03.09.1984, Side 10
„Frjálsar kartöflur“ skemmast ekki síður en hinar „einokuðu“ - og það á ótrúlega skömmum tíma ■ „Þær eru úr Landeyjum, þessar“, sagði Eðvald Malmquist þegar hann opnaði pokann. Og það þarf náttúrlega ekki að taka fram að hann hafði alveg hárrétt fyrir sér. 10 ■ „Frjálsar kartöllur" þurfa'; ekki cndilega að vera betri neysluvara en „þrælkaðar", „undirokaðar", „kúgaðar" eða „einokaðar" kartöflur. Það ættu meðfylgjandi myndir að sanna svo ekki verði um villst. Kartöflumáliö fræga hcfur aftur komist á síöur blaðanna að undanförnu eftir nokkurt hlé, eftir að ýmsar verslanir tóku sig til og fóru að kaupa nýjar íslenskar kartöflur beint af kartöflubændufn í stað þess að versla við Grænmetisversl- un landbúnaðarins eins og venja hefur verið. Þær kartöflur sem verið hafa á markaðnum án þess að fara í gegnum Grænmetisverslun- ina hafa af fylgismönnum þess- ara breytinga verið nefndar „frjálsar kartöflur" til aðgrein- ingar frá öðrum kartöflum. Á hvern hátt aðrar kartöflur kunna að vera ófrjálsar er svo aftur annað mál. Neytendasíðunni barst á föstudagsmorguninn ábending um það að í Vörumarkaðnum í Ármúla væri að finna „frjáls- ar kartöflur" sem væru mun verr á sig komnar en finnsku kartöflurnar voru á sínum tíma. Við fórum þegar á stúf- ana, - og mikið rétt, í Vöru- markaðnum í Ármúla var að finna torkennilegan varning í netpokum sem leit út fyrir að hafa einhvern tíma verið kart- öflur. Neytendasíðan fjárfesti í einum poka sem vó rúmlega eitt og hálft kíló og greiddi' fjörutíu krónur og sjötíu og fimm aura út í hönd. Óhæfar til menneldis Cabina rúmsamstæ(\ui er komin Verð kr. 12.600.- hæst i teak oy boyki. Dýnustærðir 200x90 teak . cnn 191 x 92 : beyki Húsgögn oa . . ... Suðurlandsbraut 18 mnrettmgar simi 6-86-900 ■ Hartnær hver cinasta kartafla í pokanum reyndist skemmd og fjölmargar alónýtar. Með netpokann fórum við til Eðvalds Malmquist, kart- öflumatsmanns og báðum hann að gera örlitla grein fyrir innihaldinu. Eðvald kvað kartöflurnar gersamlega óhæfar til manneldis. Svo virtist sem nægjanlegri aðgæslu hefði ekki verið beitt við upptökuna, kar- töflurnar hefðu síðan verið þvegnar og þurrkaðar of hratt og síðan trúlega fluttar til Reykjavíkur í netpokum sem hefði skaðað hið viðkvæma hýði. Allt þetta hefði gert það að verkum að ýmsir sjúkdóm- ar, sem Eðvald kvað raunar yfirleitt vera til staðar, ættu greiða leið að kartöflunum, enda mætti sjá þarna ýmsa gerilsjúkdóma, þar á meðal stöngulsýki. Getur gerst á hálfum degi Að fengnum þessum upplýs- ingum fórum við aftur með kartöflurnar í Vörumarkaðinn og spurðum Sigurð Tryggva- son, verslunarstjóra, hvernig á því stæði að verslunin hefði slíka vöru á boðstólum. Sigurður kvað þessar kart- öflur alls ekk> eiga að vera til Við bjóðumbér \ikuferð " London ámánu- dagimi kemur! frá kr. 15.573.- pr. mann. íunifalið flug, gisting og morgunmatur. FerðaskrifstoÉin Farandi verður með sérstakar vikuferðir (pakkaferðir) til Lundúnaborgar á hverjum mánu- degi í ailt sumar. Verðið er afskaplega gott, — frá kr. 15.834,-pr. mann. Innifalið í verðinu er flug, gisting og morgunmatur. Auk þess útvegum við aðgöngumiða á hljómleika, í leikhús, á íþróttaleiki næturklúbba o.m.fl. Hægt er að velja á milli eftiríarandi hótela: Cavendish, Regent Crest, Leinster Towers, Park Lane. Komið og rabbið við okkur sem fyrst Það er alltaf gaman að fa gott fólk í heimsókn. ífavandi Vesturýötu 4, sími 17445 sölu í versluninni og virtist hissa á að ekki skyldi vera búið að fjarlægja þær. Hann kvað nokkur brögð að því að kart- öflur.sem væru lengi í hitanum í búðinni, færu svona og það gæti reyndar gerst ótrúlega hratt; þess væru jafnvel dæmi að það hefði gerst á hálfum degi. Kvað hann framleiðand- ann taka slíka vöru til baka jafnóðum. Þessar kartöflur sagði hann vera frá því í fyrri hluta vikunnar. Aðrar og betri kartöf lur til staðar Nú er skylt að taka það fram að þessar kartöflur voru alls ekki einu kartöflurnar sem Vörumarkaðurinn í Ármúla hafði að bjóða viðskiptavinum sínum þennan dag. Nýjar og hreint ekki óásjálegar kart- öflur var að finna í þremur kössum á borði á áberandi stað í versluninni. Á hinn bóginn er hægt að velta fyrir sér spurningunni hvort verslunin ætti ekki a.m.k. að vara kaupandann sérstaklega við því ef geymslu- þol vörunnar er ekki meira en svo að hún geti skemmst á hálfum degi. Sömuleiðis verður að teljast undarlegt að sá starfsmaður verslunarinnar sem tók við greiðslu fyrir þennan umrædda kartöflupoka skyldi yfirleitt gera það. Að minnsta kosti hefði mátt benda á að nýrri og mun betri kartöflur væri að finna í versluninni - og þar að auki á mun lægra verði! ■ Sigurður Tryggvason, sagði að ónýtu kartöflurn- ar hefðu átt að vera komnar aftur í hendur framleiðandans, enda fullt af öðrum og mun betri kartöflum í búðinni.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.