NT


NT - 03.09.1984, Side 14

NT - 03.09.1984, Side 14
■ Faðir brúðarinnar leiðir hana til kirkju. ■ Brúðhjónin við kirkjudyr ásamt foreldrum sínum og sr. Eiríki J. Eiríkssyni, sem gifti þau. NT-myndir: Finnbogi Krístjáns Allt í uppnámi við brúðkaup trommarans í DURAN DURAN og æskuunnustunnar: Hvar voru buxur brúðgumans? ■ Það lá við að yrði að fresta athöfninni, þegar Roger Tayl- or, trommarinn í hinni frægu hljómsveit Duran Duran og æskuvinkona hans, Giovanna Cantone, ætluðu að ganga í hjónaband í Napoli á Ítalíu. Á síðustu stundu uppgötvaðist það, að buxur brúðgumans voru hvergi sjáanlegar! Þá rann upp fyrir Roger, að í öllum asanum í undirbúningi brúðkaupsins hafði hann gleymt að sækja hvítu spari- buxurnar í fatahreinsunina. Vinir hans ruku upp til handa og fóta að sækja þær, en þá var fatahreinsunin Iokuð um mat- artínrann, svo enn eyddist dýr- mætur tími í að hafa uppi á eiganda fyrirtækisins. Á meðan gekk Roger um gólf i hótelherbergi sínu á Excelsior hótelinu og beið. Þegar brúðurin Giovanna og faðir hennar komu til kirkj- unnar voru þau nokkrum mín- útum of sein, eins og Iræfa þykir,' því að það er víst venja þar í landi að brúðurin láti bíða aðeins eftir sér. En það var uppi fótur og fit við komu brúðarinnar í kirkjuna, því að brúðgunri fyrirfannst enginn. Beðið var í stundarfjórðung, en þá - eftir háskalegan akstur um götur Napoli - birtist brúð- guminn og vinir hans og serim- onían gat hafist. Ef hjónavígsluna, söfnuðust vinir þeirra saman fyrir utan kirkjuna til að óska brúðhjón- unum til hamingju, en lífverðir Duran Duran hljómsveitarinn- ar höfðu nóg að gera við að halda aðdáendum hljómsveit- arinnar í skefjum, svo brúð- hjónin kæmust óáreitt til veisl- unnar, sem fjölskyldur þeirra héldu þeinr í Sorrento. ■ Brúðarvalsinn dansaður í upphafi dansleiksins að Vonar- landi. og ball á eftir! ■ „Þú ættir að fá þér heima- sætu frá Brekku fyrir konu,“ sagði afi og alnafni brúðgum- ans við hann fyrir allmörgum árum, þegar Sigurður var yngri á ferð á Ingjaldssandi við Dýrafjörð og þeir nafnarnir óku fram hjá Brekku. í þann tíð hafði pilturinn ekki mikinn áhuga á að leita sér að konuefni, - en bætti úr því síðar, og nú Iaugard. 18. ág. sl. voru þau gefin saman Sigurður Guðmundur Sverris- son og Halla Signý Kristjáns- dóttir, sem reyndar er heima- sæta frá Brekku! Þær voru 6 heimasæturnar þar og nú allar giftar. Synirnir á bænum voru líka 6. Sr. Eiríkur J. Eiríksson, fyrrum þjóðgarðsvörður gaf brúðhjónin saman. Þá var haldin um 100 manna brúð- kaupsveisla að Brekku, en síð- ar um kvöldið var farið í félagsheimilið Vonarland, þar sem slegið var upp stórdansleik og fjölmennt þangað af fólki úr nágrenninu. Dansað var svo fram eftir allri nóttu. Að sögn fréttaritara NT á staðnum er það gönrul venja, þar um slóðir, að hafa ball eftir brúð- kaup. Brúðhjónin eru farin að búa að Kirkjubóli í Bjarnadal. Ekk«t skil ég í þvi, hvcrs vegna fóikið klappar svona og tcpir... Þetta var ekki neiít sérstaklega flolt sveifla hjá mér - eda hvað? m ■ Á myndinni sjáum við mann sem er að vökva tré, en það er þannig staðsett, að rigning kemur því að litlum notum, það er nefnilega yfjr- byggt. Það sérkennilega við þetta tré, sem er staðsett við stórbyggingu í svissnesku borginni Kreuzlingen, er að það var gert ráð fyrir því í byggingunni, og þess vegna var liaft gat í yfirbyggingunni fyrir tréð að vaxa í gegnum. Það leið ekki langur tími, þar til tréð fór að kíkja upp um gatið og nú er það ekki síður til ánægju fyrir fólk á efri hæðunr hússins.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.