NT


NT - 03.09.1984, Síða 17

NT - 03.09.1984, Síða 17
 m? Mánudagur 3. september 1984 16 m? Mánudagur 3. september 1984 17 LlL Útlönd LlL ''V Útlönd Ástralía: Mótorhjólaribbaldar heyja blóðugt stríð Japanir: Trúa á framtíð Hongkong ■ Neðanjarðarjámbrautarstöð í Hongkong sem japanskt fyrirtæki sér um að byggja. ■ Þrátt fyrir þá óvissu sem mörgum fínnst ríkja um framtíð Hongkong segjast japönsk yfír- völd og flest japönsk fyrirtæki vera í litlum vafa um að svæðið haldi mikilvægi sínu þótt Bretar láti af nýlendustjórn þar. Á sama tíma og sum fyrirtæki í Hongkong flytja hluta af eign- um sínum til annarra landa hafa japönsk fyrirtæki og japanskir bankar aukið fjárfestingar sínar í Hongkong. Sem dæmi um umsvif Japana í Hongkong má nefna að 55% af framkvæmdum við neðanjarðarjárnbrautar- kerfið í Hongkong var í höndum japanskra verktakafyrirtækja og næstum öll skip, sem skipa- fyrirtæki í Hongkong eiga, voru smíðuð í Japan. Japanir líta á Hongkong sem mikilvægan millilið á milli Kína og umheimsins og mörg japönsk fyrirtæki hafa opnað skrifstofur í Hongkong með það fyrir aug- um að auka viðskipti sín við meginland Kína. Þau fullyrða að það sé oft fljótlegra að ná samningum við kínversk fyrir- tæki um Hongkong en ef samið er við þau beint í Peking. Japan- ir telja að þetta hlutverk Hong- kong sem tengiliðs við Kína muni ekki hverfa eftir að Hong- kong sameinast aftur Kína, heldur muni borgin þvert á móti gegna enn mikilvægara hlut- verki í efnahagsuppbyggingu Kína. Mörg stór japönsk verslunar- fyrirtæki gera sér einnig vonir um að hækkandi tekjur almenn- ings á meginlandi Kína muni opna þeim nýja markaði. Þá er ekki ólíklegt að fyrirtæki með aðsetur í Hongkong hafi forgang. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Japanir láta í ljós trúnað á trausta framtíð Hongkong þeg- ar fjármálamenn í öðrum löndum hafa verið tvístígandi. Þegar menningarbyltingin stóð sem hæst og rauðliðar skipu- lögðu uppþot á strætum Hong- kong notaði aðalræðismaður Japana í Kongkong, Akira Ok- ada, tækifærið og keypti með afslætti lúxusíbúð af fyrrverandi bankastjóra sem var ekki eins trúaður á framtíð nýlendunnar. Japönsk blöð birtu um svipað leyti mynd hermálafulltrúa ræðismannsskrifstofunnar þar sem hann kom ásamt konu sinni og barni til Hongkong. Þannig sýndu Japanir að þeir töldu að Hongkong myndi standa af sér óeirðir menningarbyltingarinn- ar. Trú Japana á framtíð Hong- kong hefur dregið úr því óöryggi sem gætir meðal fyrirtækja í Hongkong. Mörg þeirra hafa lagt út í nýjar fjárfestingar og yfirvöld í Peking halda því fram að þrátt fyrir nokkurn fjár- magnsflótta streymi meira nýtt kapital inn í Kongkong en sem svarar því fjármagni sem ein- staklingar og fyrirtæki flytja burt frá svæðinu. Sydney-Reuler ■ Sjö manns voru skotnir til bana og 20 særðust í bardögum milli meira en hundrað mótorhjólaribb- alda fyrir utan ástralska krá í Sydney í gærdag. Félagar í tveim hópum mót- orhjólaribbalda, Banditos og Comancheros, börðust í rúm- lega eina klukkustund með skotvopnum, sveðjum, skrúf- járnum og boltakylfum áður en lögreglunni tókst að skakka leikinn. Þegar bardögunum linnti lágu sjö manns eftir í valnunt, þar á meðal 14 ára gömul stúlka sem hafði verið að selja miða í góðgerðarhapp- drætti í nágrenninu. Eftir nokkra bardaga gerðu mótorhjólaribbaldarnir vopna- hlé á meðan hinir særðu voru fluttir í burt með sjúkrabíl cn svo blossuðu bardagarnir upp aö nýju. Fólk í nágrenninu átti fótum sínum fjör að launa og viðskiptavinir kráarinnar leituðu skjóls undir borðum. Lögreglan handtók 2(M) manns eftir að bardögunum lauk og gerði upptækar byssur og fleiri vopn. íbúar á flóðasvæðunum í Kóreu reyna að bjarga hluta af búslóð sinni á heimatilbúnum fíeka. Símamynd-POLFOTO 50 þúsund manns flýja heimili sín Seoul-Reuter ■ Það er óttast að meira en 100 manns hafí drukknað í miklum flóð- um í Suður-Kóreu nú um helgina. Tugir þúsunda hermanna, lög- reglumanna og sjálfboðaliða unnu að hjálparstarfí og flóðavörnum á flóðasvæðunum þar sem ár og lækir hafa flætt yfir bakka sína. Meira en 80 lík höfðu fundist í gær en fjölda manns var saknað, sem óttast er að hafí látist. Að minnsta kosti 26.600 hektarar eru undir vatni og skemmdir á mannvirkjum eru metnar á meira en sex milljónir Bandaríkjadala. Mörg þúsund manns leituðu skjóls í skólum og kvikmyndahúsum eftir að heimili þeirra höfðu eyðilagst í flóðunum. Flóðin stafa af miklum rigningum undanfarna daga. frá föstudags- kvöldi fram á sunnudag rigndi meira en 33 sentimetra í Seoul og ná- grenni. Vegir hafa rofnað og stór svæði eru rafmagnslaus. Vatnsyfir- borð Han-fljótsins, sem rennur í gegnum Seoul, hefur hækkað mikið og er óttast að það flæði út yfir bakka sína. Stjórnvöld hafa þess vegna látið flytja meira en 50.000 manns burt frá mestu hættusvæðun- um ef fljótið skyldi brjótast út úr farvegi sínum. ■ Allt bendir til þess að íhalds- flokkurinn muni vinna stórsigur í kosningunum í Kanada á morg- un eftir 21 árs stjórnarandstöðu. Því hefur jafnvel verið spáð að hann fái allt að 200 þingsæti af þeim 264 þingsætum sem kosið er um. íhaldsmönnum spáð stórsigri Þrjár skoðanakannanir sem birtar voru fyrir og um helgi sýna að íhalds- menn hafi stuðning um helmings þeirra kjósenda sem gert hafa upp hug sinn. Fylgi frjálslyndra, sem nú fara með stjórn, er talið tæplega 30% og NDP, flokkur demokrata kemur skammt á eftir með rúmlega 20%. Brian Mulroney, leiðtogi íhalds- manna, hefur samt varað flokksmenn sína við að vera of sigurvissa og segist sjálfur ekki búast við sigri. Mulroney er frá Montreal og margir telja hann þess búinn að feta í fótspor Trudeau sem einnig er frá frönsku Quibeck. Mulroney hefur sjálfur gefið í skyn að hann sé þess umbúinn að halda goðsögninni um Trudeau á lífi með breyttum formerkjum. Hann nýtur nú mikils fylgis í Quibeck en frjáls- lyndir hafa hingað til verið nær einráð- ir í því fylki. I vesturfylkjum Kanada er persónufylgi Mulroneys mun minna en flestir stuðningsmenn íhaldsmanna munu samt kjósa íhaldsflokkinn áfram þrátt fyrir Mul- roney. John Turner forsætisráðherra og leiðtogi frjálslyndra hefur gengið erf- iðlega í kosningabaráttunni og margir velta því fyrir sér hvort frjálslyndir hafi veðjað á rangan hest með því að kjósa hann formann flokksins á flokksþinginu í sumar. Meira að segja Trudeau hefur talið sig þurfa að styðja við bakið á Turner til að reyna að auka fylgi hans. Trudeau hélt þannig ræðu í Montreal síðastliðinn föstudag til að sýna samstöðu með Turner. Fylgi NDP kemur verulega á óvart og virðist flokkurinn líklegur til að velgja frjálslyndum verulega undir uggum í mörgum kjördæmum. Kína: 3mýs áíbúa ■ Kínverjar áætla að í landi sínu séu nú um þrír milljarðar af músum og rottum eða þrjár mýs á hvern íbúa landsins. Allar þessar mýs hafa valdið miklu uppskeru- tjóni á undanförnum árum. Þannig er talið að þær hafi étið fimm milljón tonn af korni, 140 milljón tonn af grænmeti og valdið skemmdum á 20 milljón hekturum landbúnaðar- lands árið 1982. Það er því augljóslega mjög mikilvægt fyrir Kínverja að fækka músunum til að þeir geti verið sjálfum sér nægir með fæðu. Það þýðir lítið að auka uppskeruna ef hún fer öll í að ala mýs og rottur. Hingað til hafa Kínverj- ar lagt höfuðáhersluna á að eitra fyrir dýrin en slíkt veldur mengun og árang- urinn er frekar rýr. Vís- indamenn rannsaka nú lifn- aðarhætti músanna til að finna áhrifameiri leiðir til aö losa landið við þennaij ófögnuð. Þeir hafa m.a. komist að því að þær ná hámarksfjölda á fjögurra ára fresti en þá fækkar þeim mikið í hálft til eitt ár uns þeim fer aftur að fjölga þar til þær ná nýju hámarki. Vísindamenn telja að auk hefðbundinna dráps- aðferða þar sem mýsnar eru veiddar í gildrur eða drepnar með eitri verði að nota vistfræðilegar aðferð- ir til að útrýma þeim. Það mætti t.d. breyta lífsskil- yrðum þeirra þannig að þær geti ekki fjölgað sér. En það er samt langt frá því að endanleg lausn fáist á þessu músavandamáli. Khomeini: Skammar klerka Varar við hatri almennings Thehcran-Reuter ■ í ræðu sem Khomeini hinn voldugi trúarleiðtogi írana, hélt í gær skammaði hann klerka fyrir að yfírgefa moskurnar og skipta sér af stjórnmálum þegar þess væri ekki þörf. Khomeini, sem nú er 81 árs gamall, sagði að afskipti klerka af stjórnmálum yrði til þess að fólk drægi úr stuðningi sínum við þá. Hann kvaðst margoft hafa sagt að klerkarnir skyldu gegna leiðtogahlutverki en ekki reyna að stjórna landinu. Með því að skipa stjórnmála- mönnum fyrir verkum gætu klerkar vakið hatur meðal al- mennings. Flugsýning á Englandi: Bjartsýnir flug- vélaframleiðendur hafa flugvélaframleiðendur búið sig undir að fullnægja henni með framleiðslu á nýjum litlum sparneytnum farþega- flugvélum. Óskilgetnum börnumfjölg- ar I Bretlandi London-Reuter ■ I tölum sem breska mann- talsskrifstofan birti í gær kemur í Ijós að eitt af hverjum sex börnum, sem fæddust á Bret- landi í fyrra, er óskilgetið. Þetta er mikil fjölgun á óskil- getnum börnum frá því á sjö- unda áratugnum en þá var ekki nema eitt af hverju 21 barni óskilgetið. Farnborough-Reuter ■ Mikil bjartsýni er ríkjandi á hinni árlegu flugsýningu í Farn- borough á Englandi sem hófst í gær. Flugvélaframleiðendur líta nú björtum augum til framtíðar- innar eftir erfíðleika undanfar- inna ára. Á síðustu mánuðum hefur orðið aukning í pöntunum flug- véla á nýjum flugvélum en flest flugfélög hafa orðið að fresta endurnýjun flugflota síns vegna slæmrar rekstrarstöðu. Loft- vagnasamsteypan, Airbus, í Vestur-Evrópu hefur spáð því að þörf sé fyrir um 7000 nýjar farþegaflugvélar fyrir næstu aldamót að sósíalísku löndun- um undanskyldum en það er svipaður fjöldi og er nú í notkun. Eftirspurn eftir litlum og meðalstórum farþegaflugvélum verður líklega einna mest og Burma: Herferð gegn ópíumbændum ■ Stjórnvöld í Burma hafa á síðast- liðnum tíu árum unnið skipulega að því að uppræta ópíumræktun í land- inu. Slíkt hefur oft verið erfíðleikum bundið þar sem ópíumbændur skipu- leggja sína eigin einkaheri og á sumum svæðum hefur stjórnin nánast engin völd. Samt hefur stjórnarhernum tekist að eyðileggja ópíumuppskeruna á að minnsta kosti 71.000 ekrum lands í Shan-fylki í norðausturhluta landsins þar sem ópíumræktin er einna út- breiddust. Samkvæmt opinberum tölum hefur herinn í herferðum sínum gegn ópíumræktendum einnig eyði- lagt um 140.000 maríúanaplöntur. Bændur á þessu svæði hafa verið hvattir til þess að rækta kaffi og aðrar nytjajurtir í staðinn fyrir ópíum og maríúana og hefur hluti þeirra sinnt fyrirmælum stjórnvalda þótt ópíunt- bændur á sumum stöðum veiti stjórn- arhernum enn vopnaða mótspyrnu. Skyndiáhlaup stjórnarhersins á bækistöðvar ópíumsmyglara hafa gef- ið nokkuð góða raun. f einu slíku áhlaupi í apríl á þessu ári lagði herinn hald á tæplega eitt tonn af ópíum auk tækjabúnaðar og efna sem notuð eru til að breyta ópíum í heróín. Samtals hefur sjórnin gert upptæk 4.171 kg af ópíum og heróíni á tímabilinu frá maí á síðasta ári þar til í apríl á þessu ári. ERTU RÁÐÞROTA ÍFRUMSKÓGI VAXTA? LÁTTU RÁÐGJAFANN í ÚTVEGSBANKANUM LEIÐBEINA ÞÉR tlAHÍI 5ÉB FUÓTT FIVAÐ ÞÉR ER FYRIR BE5TU. oa Fiam b/eðub þéb fieilt. Ráðqjafinn í Útvegsbankanum er rétti leiðsögumaðurinn í þeim frumskógi vaxta, sem nú hefur sprottið upp. Þar átt þú margra kosta völ. En gáðu að þér. 5á innlánsreikningur sem hentar einum best, þarf all5 ekki að henta öðrum. Eldra fólk að 5elja 5tóra íbúð og fara í aðra minni, 5kattarnir, fyrirhugað ferðalag, jólamánuðurinn, bílakaup, gifting, fjölgun í fjöbkyldunni. Þú 5érð að aðstæður manna eru mi^munandi. Talaðu því við Ráðgjafann í Útvegsbankanum. Eiann 5ér fljótt hvað þér er fyrir be5tu. FiÁÐOJAFim - FAFÍAR5TJÓRI ÞINN í FBUM5KÓQI VAXTA ÚTVECSBANKINN EINN BANKI • ÖLL MÓNUSTA

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.