NT - 03.09.1984, Blaðsíða 25

NT - 03.09.1984, Blaðsíða 25
Mánudagur 3. september 1984 25 iriuii i m Samúel Örn Erlingsson (áb), Björn Leósson, Þórmundur Bergsson ■ Hér eigast þeir við Loftur Olafsson Bliki og Guðmundur Þorbjörnsson Valsari. Loftur var með betri mönnum á vellinum og Guðmundur stóð fyrir sínu, að venju. M-m>nd Ámi Bjama Skyldu Blikarnir sleppa við að falla? 8 ■ „Ég get ekki verið annað en ánægður með að fá stig úr þessum leik eftir að við fengum á okkur þetta drullumark. Það sá hver maður á vellinum og áhorfendur líka að brotið var á Frikka í markinu“ sagði Magnús Jónatansson þjálfari Breiðabliks eftir leikinn gegn Val. „Annars var þetta baráttu- lcikur fyrst og fremst þar sem spilað var af öryggi og engir „sjensar“ teknir. Nú er bara að standa sig í síðustu leikjun- um,“ bætti Magnús við og var vongóður. Blaðamaður NT getur tekið undir þau orð Magnúsar að markið sem Valsarar skoruðu virtist vera kolólöglegt. Vals- arar fengu hornspyrnu og gefið var út á Grím Sæmundsen sem gaf fyrir á fjærstöng þar sem Friðrik stökk upp og hand- samaði knöttinn en um leið stökk Valur Valsson í bakið á honum, að því er virtist, og Friðrik missti boltann úr hönd- um sér. Boltinn datt niður á marklínuna og Þorgrímur Þráinsson kom aðvífandi og skallaði tuðruna í netið, 1-0. Valsarar voru heldur at- kvæðameiri í fyrri hálfleik og sóttu strax í upphafi nokkuð stíft. Þeir skoruðu þetta mark á 10. mín. og áttu eftir það tvö þokkaleg færi sem ekki nýttust. Blikarnir fóru að kom- ast meir inní leikinn í lok hálfleiksins og jöfnuðu með síðustu spyrnu fyrri hálfleiks. Jón Oddsson gaf þá fyrir og Sigurjón fékk boltann inní teig. Hann virtist vera í færi til að skjóta, en þá kom Jón Einarsson og tók af honum boltann, hann lék síðan á hvern Valsarann á fæt'ur öðrum svo og á sjálfan sig nokkrum sinnum. Eftir þetta sendi hann boltann í snyrti- legum boga yfir Stefán í Vals- markinu og jafnaði 1-1. Varla hafði boltinn fyrr snert mark- netið en dómarinn flautaði til leikhlés. í síðari hálfleik gerðist ekk- ert markvert lengi framan af eða þar til um 30 mín. voru liðnarafleiknum. ÞááttiÓmar Rafnsson ógurlegt þrumuskot SKURH ■ Slakur leikur og einkennd- ist hann mikið af baráttu þar sem engin áhætta var tekin. Valsarar betri í fyrri hálfleik en Blikar í þeim seinni. Mark Vals vafasamt. Þorgrímur Þráinsson geröi mark Vals á 10. mín. en Jón Einarsson jafnaði fvrir Rlika á 45. mín. Dómari var Helgi Kristjánsson og var hann í slakara lagi. Áhorfendur voru mjög margir og veður allgott. af löngu færi sem Stefán varði naumlega með því að slá bolt- ann upp í loftið og síðan datt knötturinn niður á marklín- una, þar sem Sigurjón kom og ætlaði að skora en Stefán var snöggur upp og náði að afstýra marki. Á síðustu mínútum leiksins komst Jón Einarsson í gegn en skot hans fór yfir. Leikurinn var í heild slakur og bar keim af því að hvorugt liðið mátti tapa og var því spilað án þess að taka nokkra áhættu. Úrslitin voru nokkuð sanngjörn þó markið sem Val- ur gerði hefði verið hálfvafa- samt. Bestu rnenn Vals voru Guðni Bergsson og ekki fleiri. Hjá Blikum bar einna mest á Lofti, sem var geysisterkur, svo og Sigurjóni sem kom vel út í seinni hálfleik; var þá oft laus. URSUT HELGARINNAR: 1. deild 2. dcild ÍBK-Þór , ... 1-2 KS-Völsungur . . 0-0 KR-ÍA . . 3-0 Valur-UBK . . . . . 1-3 ÍBV-Tindastóll . . . . . 4-2 Heimsmetið í stangarstökki: Tvíbætt á 5 mínútum ■ Það stóð ekki lengi heims- metið hans Thierry Vigneron í stangarstökki. Hann bætt met- ið um einn sentimetra á föstu- daginn, er hann stökk 5.91 m á frjálsíþróttamóti í Rómar- borg. Fimm mínútum eftir að Vigneron, sem er franskur að uppruna,setti metið sveif Serg- ei Bubka sem átti gamla metið yfir 5.94 og endurheimti heims- metið. Fyrra met hans var 5.90 m en það met setti hann á Crystal Palace leikvanginum í London fyrir aðeins sex vikum. Þeir Bubka og Vigneron hafa marga hildina háð í stang- arstökkinu í seinni tíð, en á Ólympíuleikunum í Los Ange- les í sumar varð Vigneron aðeins í fimmta sæti. Þá stökk hann 5.60 m, en þá var Sergei Bubka illa fjarri góðu gamni, vegna ákvörðunar Sovétmana og annarra A-Evrópuþjóða að sitja lieima. ■ Sergei Bubka var ekki lengi að því að endurheimta heimsmet sitt í stangarstökki á föstudaginn. Frakkinn Vigne- ron hafði stokkið 5.91 m, en 5 mínútum síðar stökk Bubka 5.94 m. Einkunnagjöf NT: Valur: Breiðablik: Stefán Arnarson 3 Friðrik Friðriksson . 3 Grímur Sæmundsen 4 Benedikt Guðmundsson . 5 Þorgrímur Þráinsson .... 3 Ómar Rafnsson . 4 Guðni Bergsson 2 ÓlafurBjörnsson Loftur Olafsson 4 Guðmundur Kjartansson . 4 2 Ingvar Guðmudnsson ... 4 Guðmundur Baldursson 4 Jóhann Þorvarðarson ... 5 Vignir Baldursson 4 Bergþór Magnússon .... 5 Þorsteinn Hilmarsson .. 4 Örn Guðmundsson 5 Sigurjón Kristjánsson .. 3 Guðmundur Þorbjörnss .. 4 Jón Einarsson 3 Valur Valsson 4 Jón Oddsson 5 Rétt fvrlr leikslok komu Jón Grétar Jónasson og Heiöar Heiðarsson kom Hilmar Harðarson inná fyrir inn fyrir Jón Oddsson í lok Jóhann og Ingvar. leiKsins. STAÐAN í 1. DEILD: Heima Úti Samtals Leikir Unniö Jafnt Tapaö Mörk Stig Leikir Unnið Jafnt Tapað Mörk Stig L U j T M St. ÍA 8 6 0 2 15-8 18 8 5 2 1 14-8 17 16 11 2 3 29-16 35 IBK 8 5 1 2 12-8 16 8 3 2 3 7-8 11 16 8 3 5 19-17 27 Valur 8 2 5 1 11-8 11 8 4 1 3 11-8 13 16 6 6 4 22-16 24 Þór 8 2 2 4 11-12 8 8 4 1 3 13-11 13 TF 6 3 7 24-23 21 Víkinqur 7 2 4 1 12-9 10 8 3 1 4 12-15 10 15 5 5 5 24-24 20 Þróttur 9 3 3 3 13-11 12 7 1 4 2 4-6 7 16 4 7 5 17-17 19 KR 8 3 3 2 9-12 11 8 1 4 3 7-12 7 16 4 7 5 16-23 19 UBK 8 1 3 4 9-11 6 8 2 5 1 7-6 11 16 3 8 5 16-17 17 KA 7 2 1 4 11-14 7 9 2 3 4 12-20 9 16 4 4 8 24-34 16 Fram 8 3 2 3 8-7 11 7 1 1 5 7-13 4 15 4 3 8 15-20 15 STAÐAN í 2. DEILD: Heima Úti Samtals Leikir Unnið Jafnt Tapað Mörk Stig Leikir Unnið Jafnt Tapað Mörk Stig L U j T M st. FH 8 6 1 1 20-7 16 8 4 3 1 12-6 15 16 10 4 2 3*2-16 34 Víðir 8 4 2 2 17-11 14 8 4 1 3 11-13 13 16 8 3 5 28-27 27 Isafjörður 8 3 3 2 18-9 12 8 4 2 2 14-11 14 16 7 5 4 32-20 25 IBV 8 4 2 2 15-11 14 8 3 2 3 10-12 11 16 7 4 5 25-24 25 KS 8 3 5 0 12-6 14 8 2 2 4 6-11 8 16 5 7 4 19-17 24 Völsungur 9 4 2 3 14-11 14 7 3 1 3 7-10 10 16 7 3 6 20-19 24 Njarðvík 8 5 1 2 9-5 16 8 2 2 4 8-11 8 16 7 3 6 17-16 24 Skallaqr. 8 4 1 3 15-8 13 8 3 1 4 13-17 10 16 7 2 7 28-25 23 Tindastóll 8 0 2 6 5-15 2 8 2 1 5 11-25 7 16 2 3 11 16-40 9 Einherji 8 1 0 7 6-14 3 8 0 3 5 5-13 3 16 1 3 12 11-27 6

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.