NT - 25.10.1984, Page 1

NT - 25.10.1984, Page 1
Frjálst útvarp: \ larðar deilur #■ 1 efri deild ■ Harðar deilur urðu í efri deild alþingis í gær, er Eiður Guðnason mælti fvrir þingsá- lyktunartillögu um skipun rann- sóknarnefndar til að kanna af- skipti ráðherra af rekstri ólög- legra útvarpsstöðva. Sakaði Ragnhildur Helgadóttir Eið um dylgjur og sagði málflutning hans gróusögur einar. Fram kom í máli Eiðs, að radíóeftirlit Pósts og síma mið- aði út útvarpsstöð í Valhöll, húsi Sjálfstæðisflokksins(en að forráðamenn flokksins hefðu meinað eftirlitsmönnum að skoða þak hússins. Þá fjallaði Eiður um frétta- flutning ólöglegu stöðvanna og sagði að þeir sem skrifuðu frétt- irnar hafi verið óskrifandi og þeir sem lásu þær ólæsir. Meðflutningsmenn Eiðs að þingsályktunartillögunni voru þau Ragnar Arnalds, Stefán Benediktsson og Sigríður Dúna Kristmundsdóttir. Sjá nánar frétt á bls. 2 Verkfallssjóður BSRB: Úthlutað í síðustu viku ■ Einstæðir foreldrar, barnmargar fjólskyldur svo og fjölskyldur þar sem báðar fyrirvinnur eru í verkfalli, fengu í síðustu viku úthlutun úr verkfallssjóði BSRB. Ekki liggur fyrir hversu miklu fé var út- hlutað, né heldur hversu miklir peningar eru til í verkfallssjóðnum. Pegar verkfall opin- berra starfsmanna hófst voru 5 milljónir króna í sjóðnum, en síðan hafa borist ýmis framlög. Einnig hafa verið gefin vilyrði um fjárstyrki m.a. erlendis frá. Pá hafa ýms- ir bæjarstarfsmenn, sem þegar hafa samið, heitið að gefa ákveðið hlutfall tekna sinna í verkfalls- sjóðinn svo og þeir sem úrskurðaðir voru til að vinna í verkfallinu, af kjaradeilunefnd. Samningstilbod vinnuveitenda: „Ekki nokkrar líkur á að VMSÍ gangi að því“ - segir Þröstur Ólafsson, framkvæmdastjóri Dagsbrúnar ■ „Ég tel ekki nokkrar líkur á því, að Verkamannasam- bandið gangi að þessu tilboði,“ sagði Þröstur Olafsson, framkvæmdastjóri verkamannafélagsins Dagsbrúnar í samtali við NT í gærkvöldi, þegar hann var spurður hvort líkur væru á því, að samið yrði á grundvelli hugmynda, sem Vinnuveitendasambandið lagði fram á fundi með ASÍ-mönnum í fyrrakvöld. Þar er gert ráð fyrir 11% launahækkun á samningstímanum, gegn því, að ríkis- stjórnin byði fram 1400 milljóna króna lækkun á sköttum og útsvari. Það boð kom svo formlega frá ríkisstjórninni í gær og var það háð því, að peningalaunahækkanir yrðu ekki meiri en gert væri ráð fyrir í tilboði VSÍ. í samþykkt, sem formanna- fundur landssambanda innan ASÍ gerði í gær, segir að fram komnar hugmyndir að kjara- samningi og hugmyndir í skatta- málum geti verið grundvöllur samningaviðræðna. Þar segir einnig, að forsenda nýs kjara- samnings sé að kaupmáttur á samningstímanum verði eigi lakari en á síðari hluta ársins 1983. Þröstur Ólafsson telur aftur á móti, að tilboð vinnu- veitenda tryggi ekki kaupmátt 4. ársfjórðungs 1983, sem menn hafa gjarnan vísað til í um- ræðum um kaupmátt launa í Irafoss í salt ■ Verkfallsverðir BSRB stöðvuðu losun úr írafossi, skipi Eimskipafélagsins, á Rifi í gær, þar sem þeir töldu, að tollafgreiðsla þess hefði verið verkfalls- brot. Það mun hafa verið fógetinn í Stykkishólmi, sem framkvæmdi tollaf- greiðsluna. írafoss var að koma frá Spáni með salt, og mun aðeins lítill hluti farmsins hafa verið kominn í land, þegar verkið var stöðvað. sérvonirum aðsamningafundur kannski fljótlega upp úr helgi, klárað málið á þessum nótum. með deiluaðilum gæti hafist sagði Magnús: „Ég held að það Ég held, að það sé mikill vilji seinnipartinn í dag. Aðspurður hljóti að koma í ljós innan innan okkar raða til að gera það hvort hann teldi, að samið yrði skamms tíma, hvort við getum sem við getum til þess.“ Skotvopn- um stolið ■ Verslunin Vesturröst í Reykjavík var í gær svipt leyfi til sölu skotvopna af lögreglu eftir að 9 byssum var stolið þar t' fyrrinótt. Er þetta í annað sinn sem farið er inn í búðina og fullbúnum skotvopnum ásamt skotum stolið og hafa reglur um geymslu skotvopna verið þver- brotnar af versluninni í bæði skiptin, að sögn Bjarka Elíassonar, yfir- lögregluþjóns. . Byssurnar voru geymd- ar í þartilgerðum læsan- legum skáp en lykillinn í skránni. Sjá nánar á baksíöu yfirstandandi kjarasamningum. Segir hann, að 8-9 stig vanti þar upp á. „Ég sé ekki, að það sé um neitt að semja eftir yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, úr því að þessi kauphækkun er sú hæsta, sem hægt er að semja um. Ekki nema menn fái einhverjar trygg- ingar um annað, eins og t.d. að gengisbreytingar verði ekki meiri en gert hefur verið ráð fyrir,“ sagði Þröstur. Eitt af því, sem Verkamanna- sambandsmenn eru óhressir með í hugmyndum vinnuveit- enda er að tvöfalda kerfið verð- ur ekki afnumið að fullu. Ásmundur Stefánsson, for- seti ASÍ, sagði í samtali við NT í gær, að tilboð VSÍ, eins og það lægi fyrir, tryggði ekki fyrr- greinda kaupmáttarviðmiðun. „En ég held, að það sé ekki ástæða til að taka tilboði VSÍ í hverju einstöku atriði, heldur viljum við skoða málið út frá öllum hliðum, bæði hvað snertir kauphækkanir og skattalækkan- ir,“ sagði Ásmundur. í samþykkt ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á það að aðilar taki án tafar ákvörðun um hvort skattalækkunarleiðin verði farin í þeim kjarasamningum, sem standa fyrir dyrum. Landssam- böndin innan ASÍ halda fundi í dag um málið. Magnús Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Vinnuveitenda- sambandsins, sagði í samtali við NT í gærkvöldi, að hann gerði Ólga við höfnina ■ Þetta var eina leiðin inn á athafnasvæði Ríkisskips við Reykjavíkurhöfn í gær, eftir að menn Ríkisskips höfðu hlaðið gámum um svæðið. Forráðamenn BSRB sögðu á blaðamannafundi í gær að vaktaskipti verkfalls- varða hefðu gengið samkvæmt áætlun, en aðgerðum þessum hefði fylgt aukin slysahætta. Sjá nánar frétt á bls. 3.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.