NT


NT - 25.10.1984, Síða 3

NT - 25.10.1984, Síða 3
„Verkamenn vilja lemja BSRB menn“ - segir framkvæmdastjóri Ríkisskips ■ Forráðamenn BSRB á skrifstofu Ríkisskips. Frá vinstri: Guðmundur Einarsson forstjóri Ríkisskips, Kristján Thorlacius, Eiríkur Tómasson lögfræðingur skipafélagsins, Páll Guðmundsson formaður verkfalls- stjórnar BSRB, Haukur Helgason stjórnarmaður BSRB, Haraldur Steinþórsson framkvæmdastjóri BSRB. Hugmyndasamkeppni a) Nýtt merki fyrir Landsbankann. b) Afmælismerki í tilefni 100 ára afmælis bankans. c) Minjagripur vegna afmælisins. í tilefni af 100 ára afmæli Landsbanka íslands 1986 býður bankinn til samkeppni um nýtt merki fyrir bankann, afmælismerki og minjagrip vegna afmælisins. Samkeppnin er haldin samkvæmt reglum Félags íslenskra teiknara og er öllum heimil þátttaka. Fyrir verðlaunahæfar tillögur verða veitt þrenn verðlaun: a) Fyrirnýttmerki kr. lOOþúsund. b) Fyrir afmælismerki kr. 60 þúsund. c) Fyrir minjagrip kr. 40 þúsund. Afmælismerkið er ætlað á gögn Landsbankans á afmælisárinu, svo sem umslög, bæklinga o.fl. Minjagripinn ætlar bankinn til dreifingar til viðskiptaaðilja o.fl. Tillögum að merkjum skal skila í stærð 10-15 sm í þvermál í svörtum lit á pappírsstærð A4. Keppendur skulu gera grein fyrir merkjunum með texta og litum.Tillögurnar skal einkenna með sérstöku kjörorði og skal nafn höfundar og heimilisfang fylgja með í lokuðu ógagnsæju umslagi, merktu eins og tillögurnar. Tillögum að minjagripum má skila sem teikningum eða módeli af gripnum. Hverjum þátttakanda er heimilt að senda fleiri en eina tillögu. Skal hver tillaga hafa sér kjörorð og umslög með nafni höfundar vera j afnmörg tillögunum. Skilafrestur tillagna er til kl. 17:00 fimmtudaginn 1. nóvember 1984. Skal skila þeim í póst eða til einhverrar afgreiðslu Landsbankans merktum: Landsbanki íslands Hugmyndasamkeppni b/t Sigurbjörns Sigtryggssonar aðstoðarbankastjóra Austurstræti 11 101 Reykjavík. Dómnefndin er þannig skipuð: Fulltrúi afmælisnefndar Landsbankans. Fulltrúi Félags starfsmanna Landsbankans. Fulltrúi Félags íslenskra teiknara. Ritari dómnefndar og j afnframt trúnaðarmaður aðilj a er Sigurbjörn Sigtryggsson. Keppendur geta snúið sér til hans í aðalbanka í síma 91-27722, varðandi frekari upplýsingar um samkeppnina. Dómnefndin skal skila niðurstöðum innan eins mánaðar frá skiladegi. Efnt verður til sýningar á tillögum og þær síðan endursendar. Verðlaunaupphæðin er ekki hluti af þóknun höfundar. Landsbankinn hefur einkarétt á notkun þeirra tillagna sem dómnefndin velur. Bankinn áskilur sér rétttil að kaupa hvaða tillögu sem er samkvæmt verðskrá FÍT. LANDSBANKINN Einvígi Karpovs og Kasparovs . jafnteflið í röð Karpov heldur enn fjögurra vinninga forskoti 25. okt. 1984 3 lenda ekki í átökum við verk- fallsverði, að sögn Guðmundar Einarssonar forstjóra. Þórir Sveinsson frarhkvæmdastjóri Ríkisskips sagði þó, að verka- mennirnir vildu lemja verkfalls- verðina vegna aðgerða þeirra. Verkfallsvarsla hefur verið við Öskju í um hálfan mánuð vegna þess, að BSRB heldur því fram, að verkfallsbrot hafi verið framin á skrifstofu Ríkis- skips, m.a. meðgerðfarmskráa. Guðmundur Einarsson mót- mælir því hins vegar og segir, að verkfallið hafi verið virt í einu og öllu á skrifstofunni, og því telji hann verkfallsvörsluna ólöglega. ■ Þarna hlóðu menn Ríkis- skips gámum til að hindra starfsmenn vcrkfallsvörslu BSRB í að komast til félaga sinna um borð í Öskju. Vakta- skipti BSRB manna gengu þó eftir áætlun. ■ Kristján Thorlacius, formaður BSRB, kominn um borð í Öskju og gefur mönnum sínum merki um að allt sé í fínu lagi. ■ Áttunda jafnteflisskákin í röð í einvíginu um heimsmeistaratitilinn leit dagsins ljós í gær í einni af bragðdaufari skákum fram til þessa. Með þessu jafntefli slógu þeir félag- ar met í röð jafntefla í heimsmeist- araeinvígjum, en heiðurinn af fyrri vafasömum metum og metjöfnun- um áttu auk þeirra sjálfra þeir Fischer og Spasskí og Karpov og Kortsnoj. Þó mönnum finnist e.t.v. nóg komið að svo góðu þá er jafnteflishlutfallið alls ekki hærra en búast mátti við hinsvegar er dreifing vinninga með nokkuð öðrum hætti en gera mátti ráð fyrir. Jafnteflisröðin og þróun síðustu skáka bendir til þess að Kasparov hafi aukist þróttur, hann sé „hættur að hanga í köðlunum bíðandi eftir náðarstuðinu“, svo maður noti hnefaleikaramál en margt er líkt með hnefaleikum og skák eins og allir vita, þó mörgum finnist hnefa- leikar vera heldur huggulegri íþrótt; þar gangi menn altént hreint til verks og minna um þá andlegu pústra sem eru látnir viðgangast við skákborðið. Kasparov er sem sé allur að braggast og vinningurinn liggur í loftinu. Það era.m.k. skoðun undir- ritaðs. Reynslan hefur líka sýnt að Karpov gefur eftir þegar einvígin , taka að dragast á langinn. Skákmað- ur sem þekkir vel til mála í Sovét- ríkjunum kvað það vera opinbert leyndarmál þar í landi að Karpov þyldi ekki með góðu móti meira en 15 skáka einvígi. Viðureignir hans við Kortsnoj renna að nokkru leyti stoðum undir þessa kenningu. Þegar 17 skákir höfðu verið tefldar í fyrsta einvígi þeirra 1974 hafði Karpov náð þrem vinningum gegn engum en teflt var upp að 24 skákum. Kortsnoj vann tvær skákir með stuttu millibili og var nálægt því að jafna metin. Sagan endurtók sig 1978 þegar Kortsnoj jafnaði stöð- una úr 5:2 í 5:5 í aðeins fjórum skákum. Með gífurlegum viljastyrk tókst Karpov að knýja fram sinn sjötta sigur vinna einvígið og halda heim þjóðhetja! Þessi daufa skák sem hér fylgir á eftir er að mínum dómi aðeins lognið á undan storminum. í næstu skákum hlýtur Kasparov að láta til skarar skríða. Ef heldur sem horfir má búast við að þetta einvígi dragist á langinn, slagi jafnvel upp í einvígi Karpovs og Kortsnojs í Baguio sem varð 32 skákir og einvígi Aljékín og Capablanca 1927 sem varð 34 skákir. 17. einvígisskákin: Hvítt: Anatoly Karpov Svart: Garrí Kasparov Drottningarbragð 1. Rf3 (Karpov hefur ekki hreyft við kóngspeðinu í sínum fyrsta leik síðan í fimmtu skákinni.) 1. .. d5 5. Bg5 h6 2. d4 Rf6 6. Bh4 0-0 3. c4 e6 7. e3 b6 4. Rc3 Be7 (Tartakower-afbrigðið í Drottning- arbragði hefur verið eitt helsta vopn heimsmeistarans um margra ára skeið. Hann þekkir öllum betur helstu refilstigu þessa afbrigðis beitti því í einvígjunum um heims- meistaratitilinn 1978 og 1981 gegn Kortsnoj án þess að tapa einni einustu skák. Það hefur oft þótt góð sálfræði að beita helstu vopnum andstæðingsins og Kasparov rekur þá pólitík þessa dagana. í 15. skák- inni varði hann sig með tilbrigði drottningarindversku varnarinnar sem gefist hefur Karpov vel í þessu einvígi og nú er komið að Tartakow- er-afbrigðinu sem Karpov beitti í 12. skák þessa einvígis.) 8. Be2 Bb7 9. 0-0 (í 12. skákinni lék Kasparov9. Bxf6 t ,t s 't 1W! i S * * * Bxfó 10. cxd5 exd5 11. b4 en komst ekkert áleiðis eftir 11. - c5 12. bxc5 bxc5 13. Hbl Bc6 o.s.frv.) 9. .. Rbd7 11. Bg3 a6 10. Hcl c5 12. cxd5 (Hvítur þvingar fram allsherjar upp- skipti.) 12. Rxd5 13. Rxd5 Bxd5 15. b4 Re4 14. dxc5 Rxc5 16. Bc7 De8! (16. - Dd7 gefur kost á 17. Re5!) 17. a3 a5 18. Bd3 (Það er ekki eftir neinu að slægjast í þessari stöðu. Nú Jeysist skákin upp í jafntefli.) 18. .. axb4 21. Dd4 Bxf3 19. axb4 Bxb4 22. Dxb4 Be2 20. Bxe4 Bxe4 - Kasparov bauð jafntefli um leið og hann lék þessum leik sem Karpov þáði. Framhaldið gæti orðið: 23. Hel Db5 24. Dxb5 Bxb5 25. Bxb6 og staðan er heldur dauðyflisleg. ‘ Staðan í einvíginu: Karpov 4 (10'/i) Kasparov 0 ( 6'/5) Næsta skák verður tefld á föstu- dag. Þess má geta að lokum að fram að 24. skák þessa einvígis eiga keppendur enn rétt á þrem frí- dögum alls. Karpov hefur einu sinni tekið frí, Kasparov tvívegis. Samantekt á skákum einvígisins verður í NT n.k. laugardag. ■ Verkamenn Ríkisskips lok- uðu hafnarsvæðinu í kringum strandferðaskipið Öskju með gámum um hádegisbilið í gær, til þess að gera verkfallsvörslu BSRB erfiðari. Verkfallsverðir gátu þó haft vaktaskipti í gær, en þurftu að leggja sig í nokkra hættu við að komast inn á svæðið. Kristján Thorlacius og fleiri framámenn BSRB komu á skrifstofu Guðmundar Einars- sonar forstjóra Ríkisskips til að reyna að fá gámana færða úr stað, án árangurs. Milli tuttugu og þrjátíu verkfallsverðir voru á svæðinu, þegar því var lokað samkvæmt skipun frá forstjóra Ríkisskips og með vitund sam- gönguráðuneytisins. Lokun svæðisins í gær gekk átakalaust fyrir sig, enda hafa verkamennirnir og verkstjórar þeirra ströngu fyrirmæli um að

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.