NT - 25.10.1984, Page 5

NT - 25.10.1984, Page 5
Fimmtudagur 25. okt. 1984 5 Sex ára stúlka í Fossvogshverfi: Féll ofan í hitaveituskurð og brenndist lífshættulega liggur enn á gjörgæsludeild med annars og þriðja stigs bruna ■ Misskilningur milli Yatnsveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Reykjavíkur varð óbeint til þess að sex ára gömul stúlka féll ofan í óbyrgðan hitaveituskurð með 60 gráðu heitu vatni í og brenndist lífshættulega. Atburður þessi varð 10. október s.I. og stúlkan liggur enn á gjörgæsludeild þó líðan hennar nú sé eftir atvikum, samkvæmt upplýsingum RLR. um 50% af yfirboröílíkamans. og var lengi talin í lífshættu. skurðina og gengið frá þeim. að fullu lokið hjá Rannsóknar- Hún var flutt á gjörgæsludeild Eftir slysið var mokað ofan í Rannsókn málsins er enn ekki lögreglu rikisins. Iðnaðarbankinn setur upp sjálfsafgreiðsluvélar Forsaga málsins er að um 20. september sprakk hitavatnsæð við Giljaland 27. Vatnsveitan gróf þá tvo skurði um tvo metra 'að lengd og einn og hálfan 1 meter á dýpt. Vegna misskiln- ings var ekki gengið frá skurðun- um að viðgerð lokinni þar sem talið var að Hitaveitan ætti eftir að athuga málið betur. í stað þess voru settir flekar yfir skurð- Dauðaslys: Varð undir drátt- arvél ■ Sex ára stúlka, Ágústa Inga Hannesdóttir til heimilis á bænum Hvoli í Hörglandshreppi varð undir dráttarvél föstudag- inn 5. október sl. og lést samstundis. Aðdragandi slyssins var sá að ungur ökumaður var að aka dráttarvél með hlöðnum vagni í eftirdragi upp brekku, er vélin hálf- kæfði á sér. Pilturinn kúpl- aði þá frá og runnu vélin og vagninn þá aftur á bak, en stúlkan sem sat aftan á vagninum datt af með fyrr- greindum afleiðingum. Verkfallsnefnd BSRB: Veitti undan- þágu fyrir Laxá ■ Verkfallsnefnd BSRB veitti síðdegis í gær undanþágu fyrir hafnsögumann og svonefnda spottakarla til þess að hægt væri að losa Laxá. Skipið var með fóður fyrir svín og kjúklinga, og var að skapast vandræðaástand vegna fóðurleysis. Pað var Hafskip, eigandi Laxár, sem fór fram á undanþáguna í gær og hófst löndun með kvöldinu. Blaðamenn í biðstöðu ■ Nýr sáttafundur hefur ekki verið boðaður í deilu blaðamanna og útgefenda. Síðasti fundur deilu- aðila stóð til 1 í fyrrinótt, án árangurs. Blaðamenn hafa boðað verkfall frá og með næstkomandi sunnudegi, hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma. ina og viðvörunarskilti þar við. Pann 10. október var litla stúlkan síðan að ganga yfir einn flekann. Flekinn sporðreistist og stúlkan féll ofan í skurðinn. Kona sá þegar barnið féll ofan í skurðinn og tókst henni að ná barninu upp með aðstoð manns nokkurs. Að sögn RLR fékk stúlkan annars og þriðja stigs bruna á Gullna hliðið á Norður- löndin ■ „Sálin hans Jóns míns“ mun að öllum líkindum ylja frændum okkar á Norðurlöndum um h j artarætur áður en árið er liðið, þvt' á fundi leiklistarstjóra nor- rænu sjónvarpsstöðvanna, sem haldinn var í Helsinki í Finn- landi í byrjun september, var „Gullna hliðið“ eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi, í leikstjórn Ágústs Guðmunds- sonar, valið til flutnings í danska, norska, finnska og sænska sjónvarpinu. Er þetta liður í dagskrárskiptum nor- ræna sjónvarpssambandsins, Nordvision. „Gullna hliðið" verður á dagskrá íslenska sjónvarpsins á annan í jólum, 26. desember 1984. ■ Iðnaðarbankinn undirbýr nú uppsetningu sjálfsafgreiðslu- véla við alla afgreiðslustaði sína. Tværslíkarvélareru þegar komnar til landsins, þó þær liggi enn um borð í skipi, og verða þær settar upp í aðalbankanum við Lækjargötu og Iðnaðar- bankanum í Hafnarfirði í næsta mánuði. Að sögn Braga Hannessonar bankastjóra koma viðskiptavin- /ir til með að geta tekið út úr vélunum ákveðna fjárhæð með sérstöku korti á hvaða tíma sólarhrings sem er. Þessi fjár- hæð er síðan skuldfærð á við- skiptareikning þess sem út tekur. Vélar þessar verða settar upp í anddyri bankanna og mun kortið einnig ganga að útidyrun- ■ Eimskipafélag íslands hefur kært til Hæstaréttar synjun fógetaréttar Mýra-og Borgarfjarðarsýslu um lög- bann á aðgerðir verkfalls- varða BSRB við Urriðafoss, sem liggur við Grundar- tanga. I frétt frá Eimskipafélag- inu segir, að aðalkrafa þess í kærumálinu til Hæstaréttar sé sú, að umbeðið lögbann verði lagt á. Til vara er sú krafa gerð að úrskurður fó- geta verði felldur úr gildi og lagt fyrir fógeta, að hann taki umbeðna lögbannskröfu til efnislegrar úrlausnar. Samkvæmt upplýsingum um. Bragi sagði að ekki væri búið að ákveða hámark þeirrar upp- hæðar sem taka má út í hvert skipti á þennan hátt en senni- lega yrði miðað við fimm þús- und krónur á dag. frá BSRB, eru verkfallsverð- ir enn á vakt við Urriðafoss. frestað ■ Fyrstu áskriftartónleikum íslensku hljómsveitarinnar er frestað þar eð bandaríski píanóleikarinn Stephanie Brown kemst ekki til landsins í tæka tíð vegna samgönguerfið- leika við landið. Tónleikarnir áttu að vera í Bústaðakirkju í kvöld. Áhrif BSRB-verkfallsins: Tóbak og brennivín sjaldgæfara en guli! ■ ... Jón Hreggviðsson lá á grúfu uppi í bæli, formælti konu sinni og bað drottin með sárum stunum að gefa sér tóbak og brennivín og þrjár frillur. Sjálfsagt er mörgum svip- að innanbrjósts nú og Jóni Hreggviðssyni þegar tóbak er nú orðið sjaldgæfara en gull og brennivín torfengið vegna verkfalls BSRB. í það minnsta eru sjoppueigendur farnir að kannast vel við æðisglampann í augum við- skiptavina sem staulast inn, - líta á tómar tóbakshillurn- ar, bölva hástöfum og hverfa á braut. NT hringdi í nokkrar versl- anir á höfuðborgarsvæðinu í gær og fékk allsstaðar sömu svör, tóbakið var á þrotum utan einstaka vindlapakki og reyktóbaksbréf. Eini mögu- leikinn á að ná í „almennileg- ar sígarettur“ var talinn sá að fara á barina í borginni því þjónar þar gætu lumað á slíku. Ástandið mun ekki vera skárra úti á landi. NT frétti af flugvélareiganda nokkrum sem var orðinn svo viðþols- laus að hann lagði upp og heimsótti nokkra staði þar sem hægt var að lenda farar- tækinu. Hann hafði tvö kart- on af sígarettum upp úr krafsinu sem hann gróf upp í Borgarnesi. Svo það er ekki annað fyrir tóbaksmenn en að reyna að þreyja verkfallið, eða þá að biðja drottin, ríkið eða BSRB, um að verkfallið fari nú að leysast. PS: Samkvæmt síðustu fréttum mun vera til nóg af tóbaki í Þykkvabænum. Eimskip kærir til Hæstaréttar

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.