NT


NT - 25.10.1984, Side 25

NT - 25.10.1984, Side 25
 Utlönd Mondale trompar: Reagan stel ur hetjunum - Ferraro miður sín Washington-Reuter ■ Þeim er nú farið að fækka stóru trompunum sem Walter Mondale, forsetaframbjóðandi demókrata, hefur í handraðan- um fyrir kosningarnar 6. nóv- ember og almennt álitið að sigurinn sé endanlega genginn honum úr greipum. I skoðana- könnunum hefui Reagan minnst níu prósenta forskot á keppinautinn. Mondale kastaði þó einni reyksprengju inn í hita kosninga- baráttunnar í fyrradag er hann birti bréf, sem hann segir að Reagan hafi skrifað Richard Nixon árið 1960. Þða var Nixon í framboði til forsetaembættis- ins gegn John F. Kennedy, en Reagan var þá í hópi demókrata sem studdu Nixon í kosningun- um. í bréfinu, sem Mondale segir að hafi fundist í skjölum frá vara-forsetatíð Nixons í Los Angeles, ber Reagan meðal annars stjórnarfarshugmyndir Kennedys saman við hugmyndir Karls Marx og Adolfs Hitlers. Bréfið er undirritað Ronnie Re- agan. I kosningabaráttunni hefur Reagan margsinnis vísað til Kennedys sem hugsjónamanns af því tagi sem nú fyrirfinnast ekki í röðum demókrata. Þetta hefur farið fyrir brjóstið á Mondale, sem um daginn skammaði forsetann fyrir að „þykjast hafa verið vinur John F. Kennedys“. „Hann er að stela frá okkur hetjunum,". sagði Mondale ennfremur, „hann er hlynntur öllum dauð- um demókrötum.'1 Aðstoðarmenn Reagans segja að þeir kannist ekki við tilvist þessa bréfs, og svara því einu til að þeir séu að leita í skjalageymslum til að kanna hvort það sé ófalsað. Úr kosningbaráttunni bandarísk-u berast einnig þær fréttir að Geraldine Ferraro sé farið að iðra þess að hafa boðið sig fram til varaforseta fyrst kvenna. Fréttamenn hafa ekki einvörðungu látið sér nægja að rýna í hagi hennar, eiginmanns hennar og fjölskyldu, heldur birtist á dögunum grein í dag- blaði í New York þar sem var sagt frá því að foreldrar hennar hefðu verið handteknir fyrir fjörutíu árum. Ennfremur hefur Ferraro átt erfitt uppdráttar á kosningafundunum, þar sem andstæðingar fóstureyðinga og heitfengir hægrimenn hafa látið ófriðlega. Ferraro reynir þó að halda baráttunni áfram, og í gær réðist hún harkalega á Bush varafor- seta fyrir að segja að úrslit kosninganna væru þegar ráðin. [dagur 25. okt. 1984 25 ■ Mondale hefur ekki enn gefist upp við að reyna að fella Reagan þótt allar skoðanakannanir sýni að Reagan hefur mun meira fylgi en Mondale. Margir telja að helsta von demokrata sé að Reagan felli sjálfan sig með einhverjum mistökum á næstu dögum. Hér sést hvar forsetinn hrasar um næstefsta þrepið i flugvél sinni á þriðjudag í Seattle. Mun það vera hefð hjá bandarískum forsetum að detta um þetta þrep einhvern tímann á valdaferli sínum. En forsetinn var snöggur að ná fótunum aftur. Símamynd-POLFOTO. Quebec: Hvatt til barneigna Montrcal-Rcuter ■Aðskilnaðarsinnar í Quebec hvetja konur í fylk- inu til að eignast sent flcst börn til þess að varðveita menningu þess. Félagsmálaráðherra fylk- isins, Camille Laurin, segir að nauðsynlegt sé fyrir Qu- ebec-búa að eignast fleiri frönsk-kanadísk börn. Hann heldur því fram að menning þessa frönskumæl- andi fylkis sé í hættu ef ekki tekst að fjölga fæðingum á næstu árum. Fæðingum í Qu- ebec hefur fækkað úr 0,384% niður í 0,145% frá því árið 1951 en það er lægra hlutfall fæðinga en í nokkru öðru fylki. Öryggisráð SÞ: Aðskilnaðarstefnan fordæmd - Bandaríkin sátu hjá Samcinuðu-Reuter ■ Oryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmdi á fundi sín- um í fyrradag aðskilnaðarstefnu Suður-Afríkustjórnar og krafð- ist þess að hún yrði afnumin undireins. Fjórtán ríki sem eiga fulltrúa í Öryggisráðinu greiddu atkvæði með fordæmingunni. Bandaríkin sátu hjá. Að sögn Jane Kirkpatrick, aðalfulltrúa Bandaríkjanna hjá SÞ, mótaðist afstaða Bandaríkjanna af því að of sterkt hefði verið tekið til orða í fordæmingunni. Bretar greiddu atkvæði með fordæmingunni, þrátt fyrir að fulltrúi þeirra kvartaði einnig undan óvarfærnu orðalagi. Það voru þriðja heims ríki í Öryggisráðinu sem báru fram ályktunina. Fundurinn í Öryggisráðinu var haldinn vegna óeirðanna sem geisað hafa í Suður-Afríku síðan gengið var til kosninga um nýju stjórnarskrána fyrir um tveimur mánuðum. Nú hef- ur herinn tekið völdin í ýmsum svörtum bæjarfélögum og fer þar um með handtökum og húsleitum. Áður en gengið var til at- kvæðagreiðslunnar hlýddi Örygg- isráðið á ávarp Desmond Tutu, biskups og nýútnefnds friðar- verðlaunahafa Nóbels, þar sem hann hvatti hvítaS-Afríkumenn til að leggjast á eitt með svert- ingjum um að byggja nýtt sam- félag. Falklandseyjar: Kjarnorkustríð innan tíu ára? London-Reutcr. ■ Breski varnarmálasérfræðingurinn, Adrian English, segir í bók sem kom út hjá breska forlaginu Jane’s í gær, að hugsanlegt sé að Bretland og Argentína takist aftur á í stríði um Falklandseyjar innan tíu ára og að slíkt stríð gæti að einhverju leyti verið háð með kjarnorkuvopnum. English, sem er sérfræðingur í varnarmál- um Suður-Ameríku, segir í bókinni að ósigur Argentínumanna 1982 hafi orðið þeim hvatning til að verða sér úti um kjarnorkuvopnabirgðir. Einnig segir hann að ósigurinn hafi enn glætt þjóðlegan metn- að Argentínumanna í Falklandseyjamálinu. „Verði ekki komist að einhverju sam- komulagi eftir stjórnmálaleiðum,“ segir English, „er víst að minningin um þúsund fallna Argentínumenn gerir átök milíi Breta og Argentínumanna á þessu heimssvæði nær óhjákvæmileg.“ Það er líka mögulegt, segir English, að argentínski herinn reyni að vinna sér álits- auka á ný eftir ósigurinn með því að leggja í herför gegn Chile og að þá gætu Perú og Bólivía freistast til að dragast inn í ófriðinn. Þess ber þó að geta að bók English, „Herir Suður-Ameríku“, er skrifuð áður en Chile og Argentína náðu áfangasamkomu- lagi í landamæradeilum sínum. Chile: Sprengju- herferð Santiago-Reuter ■ Sex sprengjur sprungu í Santiago í fyrrínótt og tvær sprengjur sprungu í ná- grenni borgarinnar Concepcion sem er í um 500 km fjarlægð frá höfuðborginni. Sprengjurnar sprungu í stjórnarbygg- ingum, verksmiðju og á fleiri stöðum. Tiltölulega litlar skemmdir urðu í þessum sprengingum. Enginn hefur enn lýst yfir ábyrgð á hendur sér vegna þeirra en í seinustu viku sögðust vinstrisinnaðir skæruliðar bera ábyrgð á sprengjum sem rufu rafmagnslínur og gerðu hluta landsins rafmagnslausan. Israel: Peres lækkar niðurgreiðslur húsmæður hamstra kjöt Tel Aviv-Reuter ■ Þjóðstjórn Shimon Peres í Israel hefur dregið inikið úr niðurgreiðslum á matvörum í annað skipti frá því að hún komst til valda fyrir fimm vikum. Jafnframt hefur verð á bensíni veríð hækkað um 24%. ísraelskum neytendum brá óþyrmilega í brún í fyrramorg- un þegar þeir fréttu að kjúkling- ar höfðu hækkað um allt að 95%, nautakjöt ívið minna, og brauð, mjólk og smjör hækkaði um 24 prósent. Mikil óánægja greip um sig meðal almennings og neyddist stjórnin til að aftur- kalla hluta þessara hækkana, sérstaklega á kjöti þótt meiri- hluti hækkananna væri látinn halda sér. í síðasta mánuði þegar stjórn- in minnkaði niðurgreiðslur um 21% rauk verðbólgan enn upp í ísrael og var hún í september- mánuði einum saman 21,4%. Nú mun yerðbólgan aftur taka stökk í þessum mánuði vegna þessara aðgerðastjórnvalda. En Peres vonast til að á næstu dögum takist samkomulag við samtök verkalýð^- og atvinnu- rekenda um launa- og verð- stöðvun. Leiðtogi Histardrut-verka- lýðssamtakanna.Israel Kessar, lýsti í gær yfir hneykslun sinni á þessum aðgerðum ríkisstjórnar- innar. Israelskar húsmæður hamstra kjöt skömmu áður en ríkisstjórnin hækkaði verð á þeim um allt að 90 til 95% með því að fella niður niður- greiðslur. Andstaðafráalmenn- ingi við þessar verðhækkanir hefur neytt stjórnvöld til að draga nokkuð úr þeim á sumum vörutegundum. Símamynd-POLFOTO Kaldsóhmhf. DUGGUVOGI2,104 REYKJAVÍK SÍMI: 91-84111 BANDAG er í fararbroddi. BANDAG er ekki eftirlíking Minnsti kostnaður pr. ekinn km. mmm | VtSA JE RADIAL - vetrargrip Sóluð Radial dekk fyrir fólksbíla. Kaldsóluð dekk á vörubíla, isendibila og jeppa. T.D: 1100x20 1000x20 900x20 750x16 10pr 700x16 10pr 700x15 8pr 205x16 235/70x15 SHÖGG UMFELGUN A STADNUN

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.