NT


NT - 25.10.1984, Side 26

NT - 25.10.1984, Side 26
Mæta Víkingar Sigga Gunn og co? - FH-ingar drógust gegn Honved frá Ungverjalandi ■ Búið er að draga í aðra umferð í Evrópukeppnunum í handknattleik og voru Víking- ar, Valsmenn og FH-ingar með í hattinum að þessu sinni. Vík- ingar eiga þó eftir að leika leiki sína í fyrstu umferð gegn norska liðinu Fjellhammer. Fresta varð viðureignum þeirra vegna verkfalls BSRB og ekki tókst að gera samkomu- lag á milli liðanna um hvenær leikirnir skyldu fara fram. Var málinu skotið til Handknatt- leikssambands Evrópu og átti það að ákvarða hvenær leikirn- ir skyldu fara fram. Enn hefur ekkert heyrst frá Handknatt- leikssambandinu, en von er á svari þeirra fljótlega. Ef Víkingum tekst að sigra norska liðið þá spila þeir í annarri umferð gegn spænska liðinu Tres De Mano Tenerif sem Sigurður Gunnarsson fyrrum Víkingur spilar með. Yrðu þetta eflaust hörku leikir og gaman að fylgjast með Sig- urði í leik með spænska félag- inu. FH-ingar, sem slógu norsku meistarana Kolbotn úr í fyrstu umferð nokkuð auðveldlega, lenda á móti öllu erfiðari and- stæðingum nú eða ungversku meisturunum Honved. Fyrri leikur þeirra verður væntanlega í Ungverjalandi og hinn síðari hér heima í kringum 20. nóv- ember. Valsmenn lenntu á móti sænska liðinu Ystad og verður örugglega þungur róðurinn hjá Valsmönnum. Nánar verður fjallað um þessa leiki seinna. Áhangendur handteknir ■ Sex áhangendur enska knattspyrnuliðsins Manchester United voru handteknir fyrir leik fé- lagsins gegn Eindhoven í Hollandi í gærkvöldi. Þeim var gefið að sök að hafa brotist inn í verslanir og verið með ólæti og fyllirísröfl á götum úti. Þá var einn handtekinn fyrir að bera á sér hníf. Þá hafði hollenska lög- reglan einnig neitað nokkr- um áhangendum Man. United að koma inní landið vegna óláta sem þeir voru með um borð í ferju sem flutti þá til Hollands. ■ Siguröur Gunnarsson, sem hér sést í leik með Víkingum gegn FH gæti lent gegn sínum gömlu félögum í Evrópukeppni bikarhafa með sínu nýja spánska liöi. Kristján Arason sem á myndinni er til varnar, mætir ásamt félögum sínum ungversku meisturunum Honved í Evrópukeppni meistaraliða. NT-mynd: Róbert Iþróttir Þjóðverjar í Evrópukeppninni: Sigruðu allir Frá CiuAmundi Karlvsyni fréttamanni NT í V-Þýskalandi: ■ Þýsku liðin náðu flest góð- um úrslitum í Evrópukeppnun- um í gærkvöld. Bayern Mún- chen vann stórsigur í Evrópu- keppni bikarhafa, og það gerði einnig HSV í UEFA-keppn- inni. Köln vann góðan útisigur á Standard Liege í UEFA- keppninni en Mönchenglad- bach á erfiðan róður framund- an í sömu keppni. Bayern var miklu betra, og uppskar sjálfsmark á 8. mín. Wohlfart bætti við, en Trakia frá Búlgaríu svaraði fyrir sig rétt fyrir hlé. Lattek þjálfari Bayern sá í hléi að við svo búið mátti ekki standa, skipti út tveimur varnarmönnum fyrir sóknarmenn, svo fimm leik- menn léku nú í sókninni. Þetta bar árangur, Michael Rummen- igge skoraði 3-1 og Wohlfart 4-1. „Þetta lá í loftinu, mótstaðan varengin", sagði þjálfari HSV, Ernst Happel, eftir leik HSV og CSKA Sofia. Mark McGee skoraði á 19. mín. og Van Heysen besti maður Bayern bætti viö öðru á 44. mín. með þrumuskoti af 30 metra færi beint upp í vinkilinn. Felix Magath skoraði á 60. mín. eftir frábæra sendingu frá Manny Kaltz, ogVan Heysen 4-0 á 90. mín. Köln vann heppnissigur í Liege, Standard veitti óvænta mótspyrnu vopnað áhuga- mönnum. Littbarski og Uwe Bein skoruðu. Gladbach hafði frumkvæði gegn Widzew Lodz, en Pólverj- arnir gáfust ekki upp. Uwe Rahn, og Criens skoruðu en Wraga svaraði. Herbst kom Anderlecht stóð sig vel Frá Kvyni Þór Finnbogasyni fréttamanni NT í Hollandi. ■ Anderlecht náði góðum árangri á útivelli gegn ítalska liðinu Fiorentina í UEFA- keppninni, jafntefli og heimaleikurinn eftir. Bever- en fékk aðeins eitt mark á sig í Gautaborg og á einnig góða möguleika í Evrópukeppni meistaraliða. Fortuna Sittard lagði mótherja Eyjamanna, Wisla Kraká 2-0 heima í Evrópukeppni bikarhaía, en Ajax náði ekki að tryggja góð úrslit gegn Bohemians frá Prag. Anderlecht byrjaði vel, en ítalirnir náðu tökum á leiknum og Socrates skoraði fallegt mark, undarlegt hve hann fékk mikið frjálsræði. Belgarnir jöfnuðu á 5. mín- útu s.h. Vanderbergh skoraði úr þvögu, og allur kraftur virtist úr ítölunum. Belgarnir áttu leikinn eftir þetta. 60 þúsund áhorfendur bauluðu á leikmenn Fiorentina, enda er Andrelecht komið með annan fótinn í þriðju umferð. Arnór Guðjohnsen lék ekki mcð liðinu. Gautaborg byrjaði vei, en gekk illa gegn sterkri vörn Beveren. Torbjörn Nilsson skoraði snemma í síðari hálf- lcik. Svíarnir voru mun betri og áttu sigurinn skilinn. Möguleikar Belganna verða að teljast meiri. Fortuna Sittard var bctra gegn Wisla Kraká, vann, 2-0. Það vakti nokkra athygli að Wisla stóð nær ekkert við í Hollandi, liðið flaugtil baka strax að leik loknum. Skýringin mun vera sú að einn leikmanna liðsins yfirgaf liðið eftir leikinn í Vest- mannaeyjum. Pólverjarnir munu ekki hafa viljað eiga á hættu að missa annan. Ajax ætlaði sér að vinna, lék með fjóra framherja og skoraði á 27. mínútu, Bosm- ann eftir aukaspyrnu. Tékk- arnir sóttu í sig veðrið í síðari hálfleik, skoruðu mark sem dæmt var af vegna rangstöðu. Þjálfari Ajax var vonsvikinn eftir leikinn og taldi mögu- leika Ajax á að komast áfram takmarkaða. Gladbach í 3-1, en Myslinski minnkaði muninn í lokin með miklu þrumuskoti. Úrslit EVRÓPLKEPPNI BIKARHAFA: Róma-Wrexham 2-0 Larissa-Servelle 2-1 Bralislava-Everton 0-1 Rapid Vín-Celtic 3-1 Moskva-Hamrun 5-0 Bayern-Trakia 4-1 Sillard-Wisla 2-0 Dresden-Melz 3-1 EVRÓPUKEPPNI FÉLAGSLIÐA UEFA: Sporting-Minsk 2-0 Leipzig-Sparlak 1-1 Craiova-Piraeus 1-0 Zeljeznicar-Sion 2-1 Rijeka-Real Madrid 3-1 Eindhoven-Man. United 0-0 Linz-Dundee Un. 1-2 QPR-Belgrad 6-2 Hamborg-Sofia 4-0 „Gladbach„-Widzew Lodz 3-2 Brugge-Toltenham 2-1 Standard-Köln 0-2 Ajax-Bohemians 1-0 Sl. Germain-Videolon 2-4 Inter Mílanó-Rangers 3-0 Fiorentina-Anderlecht 1-1 EVRÓPUKEPPNI MEISTARALIÐA: Berlin-Austria Vín 3-3 Sparta Prag-Lyngby 0-0 Panalhinaikos-Linfield 2-1 Gautaborg-Beveren 1-0 Liverpool-Bcnfica 3-1 Levski-Dncprope 3-1 J uventus-Grasshopper 2-0 Bordeaux-Búkarest 1-0 ■ Bent Christensen leikmaður dönsku meistaranna Lyngby stöðvar sókn þeirra Griga og Donk, leikmanna Sparta Prag. Leiknum lauk með 0-0 jafntefli, en leikið var í Tékkóslóvakíu. Símamy nd- POLFOTO Gott hjá enskum Frá Heimi Bergssyni fréttaritara NT í Eng- landi: ■ Ensku liðin komu nær öll vel út úr leikjum sínum í Evrópukeppnunum í gærkvöldi og standa vel að vígi fyrir seinni umferðina. Liverpool sigraði glæsilega (sjá bls. 27). QPR sigraði Partizan nokk- uð auðveldlega eftir að Mance hafði náð forystu fyrir Partizan með bylmingsskoti langt fyrir utan teig. Neill, bakvörður QPR, skoraði fallegt mark en var síðan rekinn af velli. Tottenham tapaði að vísu Ásgeir ekki gegn Wales ■ Ásgeir Sigurvinsson mun ekki leika með ís- lenska landsliðinu í knatt- spyrnu gegn Walesbúum í undankeppni Heimsmeist- arakeppninnar í Wales 14. nóvember næstkomandi. Ásgeir á þá að leika með Stuttgart gegn HSV í Búndeslígunni, og fær ekki frí. Aðrir leikmenn Islands í V-Þýskalandi eiga flestir að leika með liðum sínum sama kvöld, en líklegt er talið að þeir fáist lausir í lcikinn. Ásgeir Sigurvinsson. NT-mynd: Róberl. Evrópukeppnirnar í handknattleik: sínum leik í Belgíu og tapaði þar að aukiGlen Hoddle fyrir næsta leik en honum var vísað af velli fyrir að sparka boltan- um burt eftir að brot hafði verið dæmt. Hann hafði áður fengið gula spjaldið. Clive All- en skoraði mark Spurs. Mark- vörður Brugge Jensen skoraði seinna mark liðsins úr víti. Man. Utd. stóðst öll áhlaup Eindhoven frá Hollandi og hef- ur aðeins tapað einum leik á þessu keppnistímabili. Skemmtilegast var þó að horfa á Inter Mílanó mala Glas- gow Rangers. Rummenigge var í aðalhlutverki hjá ítölunum sem fóru á kostum. Rummen- igge skoraði eitt markanna sjálfur og lagði upp eitt. Þá skoraði hann frábært mark með hjólhestaspyrnu, sem var dæmt af af einhverjum ástæðum er ég ekki skil. Everton stendur vel að vígi tyrir heimaleik sinn. Paul Brace- well skoraði sigurmarkið strax eftir 5 mínútna leik. Wrexham stóð nokkuð í Róma frá Ítalíu en róðurinn verður erfiður í Wales. Þá stóð Dundee United sig vel í Aust- urríki þar sem Bannon tryggði þeim sigur rétt fyrir leikslok. Sem sagt Liverpool, Ever- ton, QPR, Man. Utd. Totten- ham og Dundee eiga öll góða möguleika á að komast áfram en skosku liðin Rangers og Celtic standa höllum fæti svo og Wrexham ítalir sterkir ■ ítölsku liðin í Evrópu- keppnunum komu nokkuð vel út í gærkvöldi. Roma sigraði Wrexham nokkuð auðveldlega með mörkum Cerezo og Pruzzo. Juventus kom líka sterkt út með sigri á Grasshopers frá Sviss. Mörk Juventus gerðu Vignola og Rossi með einnar mínútu millibili. Þá sýndi Inter Míl- anó sýningarleik gegn Rang- ers eins og skýrt er frá annars- staðar. Fiorentina náði þó aðeins jafntefli gegn Arnóri Guðjónsen og félögum hjá Anderlecht. Brassinn Socrat- es skoraði fyrir ítalina en Vandenbergh sá um að jafna fyrir Belgana. Af örðum leikjum er helst að segja að Bordeaux sigraði með marki Dieter Múllers en standa ekki nógu vel að vígi. Gautaborg sigraði Skagaban- ana Beveren með marki Nilsons. St. Germain tapaði illa á heimavelli þar sem Roc- heteau gerði bæði mörk þeirra. Real Madrid tapaði heldur illa í Júgóslavíu 3-1 og eina mark þeirra gerði Brass- inn Isidoro rétt fyrir leikslok. Metz frá Frakklandi sem sló Barcelona út í fyrstu umferð tapaði í A-Þýskalandi þrátt fyrir að ná forystu með sjálfs- marki Þjóðverjanna.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.