NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 25.10.1984, Qupperneq 27

NT - 25.10.1984, Qupperneq 27
Evrópukeppni meistaraliða: Markaþyrstur Rush með þrjú á Anfield ■ Ian Rush, handhafi gull- skósins síðasta keppnistímabil, komst verulega á bragðið og kom félögum sínum í Liverpool eftirminnilega á sporið á Anfield Road í gærkvöld, er hann skoraði öll þrjú mörk Liverpool í glæsilegum 3-1 sigri gegn portúgölsku meisturunum Benfica, fyrri leik sínum í átta liða úrslitum Evrópukeppni meistaraliða í knattspyrnu. Rush sýndi að hann er hættu- legasti framlínumaður Evrópu, lék þarna aðeins sinn annan heila leik síðan hann náði sér eftir meiðsli sem hafa haldið honum frá keppni í allt haust. Afleiðingin var glæstur sigur Liverpool, sem aðeins hefur tekist að vinna tvo leiki af ellefu í ensku deildinni í haust. En fleira kom til sem kom Liverpool verulega í gang. Mark Lawrenson hafði verið færður fram á miðjuna, og bætti þar úr því auma ástandi þar sem enginn hefur stöðvað andstæðinginn né hirt bolta upp á síðkastið hjá liðinu. Hann braust upp völlinn inn á víta- teiginn mínútu fyrir leikhlé, gaf á John Wark sem skaut framhjá, en viti menn, þar kom Rush svífandi og skoraði af rúmlega metra færi. Benfica jafnaði í upphafi síð- ari hálfleiks, er varnarmaður- inn Diamantino náði bolta sem Gary Gillespie, sem lék mið- varðarstöðu Lawrensons, missti bolta frá sér, og skoraði. Eftir þetta komst Liverpool, inn í leikinn, Craig Johnston nýkominn frá Ástralíu þar sem hann hefur verið í haust til að fylgjast með dóttur sinni þrosk- ast í móðurkviði og fæðast, tætti upp kantinn hvað eftir annað og reif sundur vörn Ben- fica. Johnston hafði komið inn á í hálfleik fyrir John Wark, og sannaði sig, gaf tvisvar mjög góðar sendingar á Ronnie Whelan sem skaut langt framhjá í bæði skiptin. Ian Rush var kominn á bragðið, hungraður eftir langvarandi meiðsli og markaleysi, fylgdi báðum skotum Whelans vel og skoraði eins og honum er ein- um lagið. Liðin: Liverpool: Grobbela- ar, Neal, Gillespie, Hansen, Kennedy, Lee, Wark (John- ston 45. mín.), Lawrenson, Handbolti: ÍR ekki lengur með kvennalið ■ íþróttafélag Reykjavíkur, sem hefur verið í fremstu röð íslenskra félaga um árabil í handknattleik kvenna, sendi ekki lið til leiks í fyrstu deild kvenna í handknattleik í haus,. Mannfæð er borið við, enda hafa leikmenn liðsins dreifst á hin félögin í 1. deild kvenna í sumar og haust. Helstu burðarásar liðsins, stór nöfn í íslenska landsliðinu, Erla Rafnsdóttir og Ingunn Bernódusdóttir héldu til liðs við Fram. Þangað fór einnig Ásta B. Sveinsdóttir sem einnig hefur leikið í landsliðinu. Krist- ín Arnþórsdóttir og Katrín Fre- driksen gengu til liðs við Val, og Þorgerður Gunnarsdóttir gekk til liðs við FH. Flestar aðrar hættu, eða leika enn með 2. aldursflokki félagsins. ■ Erla Rafnsdóttir gekk til liðs við Fram, og ásamt henni Ingunn Bemódusdóttir. Þær munu væntanlega reynast Fram góður liðstyrkur. NT-mynd: Róbert Whelan, Dalglish og Rush. Benfica: Bento, Pietra, 01- iveira, Alvaro, Samuel (Bastos Lopez 57. mín), Carlos Man- uel, Sheu, Manniche, Luis, Wando, Diamantino (Toze 70. mín.). Ingunn á batavegi ■ Ingunn Bernódus- dóttir landsliðskona í handknattleik er nú á batavegi eftir slæm meiðsli sem hún hlaut á landsliðsæfíngu seint í sumar. Ingunn fór úr ökklalið og sleit allmörg liðbönd. Ingunn hefur verið í gifsi og á hækjum fram- undir þetta, en mun nú vera að stíga sín fyrstu skref á meidda fætinum. Helsingör of sterkt ■ Fram lék báða leiki sína í Evrópukeppni meistaraliða í handknatt- leik kvenna gegn Hels- ingör í Danmörku fyrir skömmu. Helsingör sigr- aði í fyrri leiknum 21-15, og í þeim síðari 21-17. Fram er þar með úr leik í keppninni. Fram taplaust ■ Nokkrir leikir hafa farið fram í 1. deild kvenna í handknattleik undanfarið. NT er kunn- ugt um eftirfarandi úrslit: Fram-Þór Ak . . 38-11 FH-Þór Ak . . . 31-11 ÍA-Fram...... 14-37 Fram-Valur . . . 23-19 Framarar hafa leikið þrjá leiki, og unnið þá alla. ■ Það stóð ekki steinn yfír steini í vörn Benfíca eftir að Ian Rush komst á bragðið. Með góðri aðstoð félaga sinna skoraði hann þrjú falleg mörk sem eru líkleg til að duga Liverpool í síðari leiknum gegn Benfíca sem verður í næsta mánuði í Lissabon. Blak: Víkingur með í 1. deildinni ■ Reynir Árskógsströnd af- þakkaði að áliðnu sumri fyrstu- deildarsæti það sem félagið hafði áunnið sér á síðasta kepp- nistímabili á íslandsmótinu í blaki. Borið var við mannfæð og peningaleysi. Það kom því í hlut liðsins sem féll í fyrra, Víkings Reykjavík og liðsins sem varð í 2. sæti í annarri deild, KA á Akureyri, að leika um 1. deildarsætið og sigruðu Víkingar örugglega í leiknum. Fyrstudeildarreynsla Vík- inga varþeim dýrmæt gegn KA og unnu þeir góðan sigur, 3-0, 15-3, 15-13 og 15-1. fannarri hrinu var ieikurinn í járnum, hinir ungu leikmenn KA þeytt- ust um öll gólf og björguðu boltum, en Víkingar mörðu sigur. Fyrsta og síðasta hrina voru ekkert mál fyrir Víkinga. Leikmenn beggja liða voru jafn- ir að getu, og erfitt að taka einstaka menn út úr. Þó kom Björgólfur Jóhannsson mjög á óvart í liði Víkinga, en liann lék stöðu uppspilara og prím- usmótors mest allan leikinn í veikindum landsliðs uppspilar- ans Arngríms Þorgrímssonar. Björgólfur lék af öryggi og festu, og leiddi Víkinga þannig til sigurs. Leikurinn var í Haga- skóla um síðustu helgi. Víking- ar leika því áfram í 1. deild karla í vetur. Auk þeirra leika þar Þróttur, ÍS, HK og Fram. VANTAR'l LOFTRÆSTI- KERFI I GRIPAHUSIÐ? Eigum fyrirliggjandi BRUVIK loftræstikerfi fyrir allar gerðir gripahúsa. Gott verð - Góð greiðslukjör Við mcelum með BRJJVIK og það gera bœndur líka. E swrm G/obusr LÁGMÚLI 5, SÍMI 81555

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.