NT - 16.11.1984, Blaðsíða 17

NT - 16.11.1984, Blaðsíða 17
Föstudagur 16. nóvember 1984 1 7 ■ Hér er það Bjami Jakobsson, formaður Iðju, sem ber fram hamingjuóskir. ■ (Fyrir ofan) Margir fulltrúar stéttarfé- laga, sem á undanförnum vikum höfðu haft langar setur á fundum með sáttasemjara, komu nú til að samgleðjast afmælisbarninu. Hér er Ómar Valdimarsson, formaður Blaðamannafélags Islands að óska Guðlaugi og kristínu konu hans til hamingju. ■ (Til vinstri) Séð yfir hluta af afmælis- gestunum, en þar var orðin þröng á þingi, eins og sjá má. Fremst í miðju sést Haraldur Steinþórsson ræða við Hauk Helgason og ekki er ólíklegt að þarna beri BSRB-mál á góma. ■ (Fyrir neðan) Jón Þorsteinsson og Jón Armann Héðinsson virðast vera að ræða alvarleg mál. Skyldi þau fjalla um formanns- kosningarnar í Alþýðuflokknum? ■ Guðlaugur Þorvaldsson og kona hans, Kristín Kristinsdóttir, taka á móti gestum. ■ Kristján Benediktsson, Svanlaug Ermenreksdóttir og Krístján Benjamínsson heilsa upp á Guðlaug og Kristínu. Kristjánarnir og Guðlaugur eru í sama badminton-hópnum (Fuglunum), sem hefur árum saman leikið badminton. NT-myndir: Robcrt Svipmyndir úr afmælisfagnaði Guðlaugs sáttasemjara ■ Þegar Guðlaugur Þor- valdsson, ríkissáttasemjari átti sextugsafmæli - þann 13. októ- ber sl. - stóð hann í ströngum fundahöldum með hinum ýmsu samningaaðilum í verk- fallinu. Honum gafst því engin stund þá til að gleðjast með fjölskyldu sinni, vinum og sam- starfsmönnum ítilefni afmælis- ins. En þegar hægðist um aftur lét Guðlaugur boð út ganga um að nú hefði hann ákveðið að efna til afmælisfagnaðar. Guðlaugur er vinmargur mað- ur og varð því mjög fjöl- mennt í afmælinu. Tala gesta var nærri 600 manns! Ljósmyndari NT var þarna staddur, og sjáum við hér nokkrar myndir sem hann smellti af - af afmælisbarninu, konu hans og ýmsum gestum. ■ Magnús Gunnarsson, frkv.stj. VSÍ og Snorri Jónsson, fyrrv. forseti ASI, ræða málin í rólegheitum.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.