NT - 13.12.1984, Page 24
Norskir ráðherrar
syng ja með T utu
„Lítil eftirsjá í svertingjum?“ spyr hann
n Desmond Tutu, biskup frá
Suður-Afríku, vann hugi og
hjörtu Norðmanna þá daga
sem hann dvaldi í Osló til að
taka við friðarverðlaunum
Nóbels. Tutu er nú kominn til
Svíþjóðar, fullur af lífsþrótti
þrátt fyrir að hann hafi síðustu
vikuna átt viðræður við Reag-
an forseta í Hvíta húsinu, Ólaf
Noregskonung, norska ráð-
herra og kirkjumenn, fyrir
utan þann eril sem fylgir verð-
launaafhendingunni.
Tutu, fjölskylda hans og
fylgdarlið hefur farið um með
gleði, söng og dansi - þótt
hann sé líka ómyrkur í máli
um kynþáttaaðskilnaðar-
stefnu stjórnarinnar í Pretóríu.
A blaðamannafundi skömmu
cftir komuna til Osló tók Tutu
og fólk hans upp á því að
syngja og dansa öllum að óvör-
um.
Pegar tilkynnt hafði verið
um sprengjuhótunina sem
truflaði verðlaunaafhending-
una í hátíðarsal háskólans í
Osló fór stórmennið sem þar
var viðstatt út á tröppur há-
skólans. Par fékk Tutu norska
ráðherra, sem eru þekktir fyrir
annað en léttúð, til að syngja
með sér baráttusálminn „We
Shall Overcome".
Norska stjórnin hefur enda
heitið því að reyna að beita sér
fyrir víðtæku alþjóðlegu versl-
unarbanni á Suður-Afríku, en
það gengur í berhögg við nú-
verandi stefnu Reagan-stjórn-
arinnar í þessurn heimshluta.
Þó gætir nokkurs tvískinnungs
þegar Norðmenn mótmæla að-
skilnaðarstefnunni. Norskskip
halda uppi miklum flutningum
til og frá Suður-Afríku og
gagnrýndi Tutu það í viðræð-
um sínum við norska ráða-
menn. Þeir munu hafa lofað að
ráða þar einhverja bót á.
{ nóbelsfyrirlestri sínum
ræddi Tutu nokkuð um frétta-
flutning vestrænna fjölmiðla
frá Suður-Afríku. Hann vakti
athygli á því hversu mikið
vestræn blöð hefðu fjallað um
morðið á pólska klerkinum
Jerzy Popieluszko á sama tíma
og þau hefðu litla athygli veitt
ógnarlegum atburðum sem
voru að gerast í Suður-Afríku.
„Er verið að gefa í skyn
nokkuð sem ég vil ekki leggja
trúnað á, að það sé lítil eftirsjá
í okkur svertingjunum," sagði
Tutu. „Ég gleðst yfir því að
dauði eins manns getur vakið
svona mikinn harm. En á sama
tíma og presturinn finns látinn
drepur lögreglan í Suður-Afr-
íku 24 svertingja sem tóku þátt
í mótmælum og 6000 aðrir eru
reknir úr vinnu fyrir sömu
sakir. Þá megum við þakka
fyrir að fá jafnmikla umfjöll-
un."
Eþíópíulag breskra poppara
komið á topp vinsældalista
London-Keutcr
■ Fyrir skömmu sögöurn við
hér á síðunum frá því framtaki
heimsfrægra breskra popptón-
listarmanna að koma saman í
hljóðveri og taka upp lag til
stuðnings við bágstatt fólk á
hungursvæðum í Eþíópíu.
Poppararnir komu saman undir
nafnin „Band Aid" (orðaleikur
sem því miður er gjörsamlega
óþýðanlegur) og sungu lag sem
heitir „Do They Know It's
Christmas?"
Lagið er eftir þá Bob Geldorf
úr Boomtown Rats og Midge
Ure úr Ultravox, en hvorki
meira né minna en fjörutíu
stórpopparar lögðu hönd á
plóginn. Þar á meðal voru Boy
George og Culture Club, Sting,
Phil Collins og meðlimir úr
hljómsveitunum Duran Duran,
Kool and the Gang, Spandau
Ballet, U2 og Wham.
Og ekki hafa þeir unnið fyrir
gýg. Nú er lagið komið í efsta
sæti breska vinsældalistans og
er Ijóst að þetta er mest
selda litla platan frá upphafi
vega í Bretlandi á svo skömm-
um tíma. Fyrstu vikuna sem
hún staldraði við í verslunum
seldist hún í 600 þúsund eintök-
um. í fyrradag kom platan á
markað í Bandaríkjunum og
þar hefur hún verið pressuð í
sex milljón eintökum.
Þeir sem standa að gerð
plötunnar gefa allir vinnu sína
og vonast til þess að hagnaður-
inn af henni verði meira en tvær
milljónir sterlingspunda. Hljóm-
plötuverslanir í Bretlandi fá
engan ágóða af sölu plötunnar.
Margaret Thatcher hefur lof-
að popptónlistarmennina fyrir
framtak þeirra, en samt hefur
sjórn hennar hafnað beiðni um
að platan verði undanþegin
söluskatti.
Fimmtudagur 13. desember 1984 24
Sviptur þinghelgi
vegna mafíutengsla
■ Yfirvöld í Napólí hafa farið þess á leit að ítalski þingmaðurinn
Enzo Tortora, sem situr á Evrópuþinginu, mæti við réttarhöld í
borginni í janúarmánuöi vegna gruns um að hann hafi óeðlileg
tengsl við mafíuna í Napólí. Tortora neitar öllum sakargiftum, en
samt ákvað Evrópuþingið á mánudaginn að svipta hann þinghelgi
svo hann geti staðið fyrir máli sínu í Napólí. Tortora sést hér bera
af sér ákærurnar í ræðustól á Evrópuþinginu. simamynd-POLKOTO
Frakkar heiðra
Graham Greene
■ Rithöfundurinn ástsæli,
Graham Greene, sem varð átt-
ræður fyrir tveimur mánuðum,
hlaut fyrr í vikunni sérstaka
viðurkenningu frönsku stjórn-
arinnar fyrir bókmenntastörf
sín. Það er kannski einhvers
konar uppbót fyrir nóbelsverð-
launin, sem margir höfðu vonaö
að Greene fengi í ár.
Það var Jack Lang, hinn vin-
sæli menningarmálaráðherra
Frakka, sem gerði Graham
Green að meðlimi í „reglu lista
og bókmennta? í ávarpi sínu
lofaði hann Greene fyrir að
hafa alltaf tekið mikinn og ákaf-
an þátt í vandamálum samtíðar-
innar og ræddi sérstaklega um
ferðir Greenes um Indókína,
Afríku og Suður-Ameríku og
þær bækur hans sem gerast í
þessum fjarlægu heimshlutum.
Hann ræddi sérstaklega um
bók Greenes „Mátturinn og
dýrðin", sem kom út 1940 og
hefur veriö þýdd á íslensku.
Hann sagði að bókin hefði stuðl-
að að því að „kaþólska kirkjan
hefði opnað sig fyrir umheimin-
um. fyrir meiri mannúð og ein-
staklingsfrelsi."
Greene þakkaði fyrir sig á
frönsku og afsakaði sig fyrir að
tala með hreim sem væri enn
verri en hreiniur sjálfs
Churchills. Hann sagðist vart
mega mæla fyrir gleði og þakk-
aði Lang fyrir að hafa veitt
þessa viðurkenningu „rithöf-
undi sem var sektaður fyrir eina
af bókum sínum, litla bók, í
Frakklandi."
Fyrir nokkrum árum skrifaði
Graham Grcene lítið kver, sem
hann kallaði „J'accuse" (Ég
ákæri) í höfuðið á frægri grein
sem hleypti upp Dreyfus-mál-
inu. Þar bar hann þungar ásak-
anir á áhrifamenn í Nice fyrir
brask og undirheimastarfsemi.
í fyrra ákvað dómstóll í París að
Greene skyldi greiða verktaka
einum 30 þúsund franka í skaða-
bætur vegna bókarinnar.
Fyrr á þessu ári kom enn ein
bók frá hendi GrahamsGreene.
Hún fjallar um kynni hans af
Omar heitnum Torrijos hers-
höfðingja, sem stjórnaði Pa-
nama frá 1968-’8l.
Sm^RT
Veitum alla hársnyrtiþjónustu
• DÖMU . HERRA OG BARNAKLIPPINGAR
• DÚMU- OG HERRAPERMANENT
• LITANIR - STRÍPULITANIR - NÆRINGARKÚRAR
NÆG BÍLASTÆÐI
SMART
Nýbýlavegi 22 - Kópavogi
Sími 46422.
Stefnt að tölvuvæð-
ingu sovéskra skóla
Moxkva-Reuter
■ Sovétmenn hafa nú tölu-
verðar áhyggjur af því hvað þeir
hafa dregist mikið aftur úr vest-
rænum ríkjum í tölvunotkun í
skólum.
Menntamálaráðherra Sovét-
ríkjanna, Mikhail Prokofyev,
segir að við lok þessa áratugar
muni flestir sovéskir nemendur
hafa tækifæri til að læra að nota
tölvur og gera tölvuforrit.
Sovéskir sérfræðingar segja að
rafeindafyrirtæki í Sovétríkjun-
um séu nú að undirbúa fjöldafr-
amleiðslu á smátölvunni Agat,
sem getur notað sama hugbúnað
og bandarísku Apple-tölvurnar.