NT - 24.08.1985, Blaðsíða 1
NEWSSUMMARYINENGLISH ISEEP.7
Blússandi róman-
tík á heitu vatni
■ Myndi þig langa til aö
borða ijúffengan kvöldverð
með elskunni þinni á þaki
hitaveitugeymanna í Öskju-
hlíð og hafa útsýn yfir alla
borgina? Tæpast á þaki hita-
veitugeymanna í núverandi
ástandi en nú er ráðgert að
reisa nýja hitaveitugeyma í
hlíðinni og setja veitingahús
þar ofan á.
Borgarráð samþykkti á
fundi sínum í gær tillögu
Hitaveitu Reykjavíkur sem
felur í sér að endurbyggja
hitaveitugeymana sem munu
vera ónýtir. Geymarnir hafa
gegnt því hlutverki að geyma
varabirgðir af hitaveituvatni
sem gengið er á þegar heitt
vatn skortir í borginni.
Að sögn Sigurjóns Péturs-
sonar borgarfulltrúa Alþýðu-
bandalagsins er ekki búið að
afgreiða teikningarnar sem
liggja fyrir endanlega en á
þeim verður gert ráð fyrir
veitingahúsi ofan á nýju
geymunum.
Óneitanlega glæsilegt,
ekki satt?
Bankarnir:
Takmarkað
viðskiptavit
- og Iðnaðarbankinn sat að viðskiptunum
■ Því er haldið fram að íslend- farþega um borð. Bankarnir
ingar kunni ekki að notfæra sér brugðust illa við þessu kalli og
vaxandi ferðamannastraum til aðeins einn banki, Iðnaðar-
íslands. Eftirfarandi frásögn bankinn, brást við og setti upp
styður þessa fullyrðingu. þjónustu í skipinu í fyrradag.
Franska skemmtiferðaskipið Á þessum eina degi skipti
Mermoz kom til íslands í fyrra- Iðnaðarbankinn gjaldeyri fyrir
dag og lagði úr höfn til Dublin í 15 milljónir íslenskra króna.
gærkvöldi. Þess var farið á leit Þess má geta að bankinn tekur
við hérlenda banka að þeir 2% af þessari upphæð í þjón-
kæmu upp útibúi á skipinu, þ.e. ustugjald. Það eru 300 þúsund
að þeir byðu þá þjónustu að krónur.
skipta gjaldeyri rúmlega 300
Paul Watson hótar viðskiptaþvingunum:
Færeyingar láta sér
í léttu rúmi liggja
See Sheperd setur stefnuna á Orkneyjar
■ Skipstjórinn illvígi Paul
Watson sigldi skipi sínu See
Shepherd áleiðis frá Færeyjum
til Orkneyja í gær.
Skömmu fyrir brottförina
iýsti hann því yfir í færeyska
útvarpinu að úr því að færeyska
landstjómin vildi ekki gefa hon-
um skriflegt loforð um að fylgja
grindhvalaveiðikvóta sem Al-
þjóðahvalveiðiráðið mun lík-
lega mæla fyrir um Færeyingum
til handa út í æsar myndi hann
nú beita sér fyrir viðskiptahöml-
um á færeyskan fisk í Bretlandi.
Jan Múller á færeyska blaðinu
Sósíalurinn sagðist í samtali við
NT ekki gera ráð fyrir að Færey-
ingar óttuðust að tilburðir hans
til að gangast fyrir viðskipta-
hömlum á færeyskan fisk í
Bretlandi bæm árangur. Færey-
ingar gætu þvert á móti ekki
ímyndað sér að breskur al-
menningur tæki mark á manni
með slíka fortíð og Paul Watson
hefur sem m.a. siglt hefur eitt
skip í kaf og sprengt tvö í loft
upp. Ef tilburðir hans bæru hins
vegar árangur gæti það haft
alvarlegar afleiðingar í för með
sér fyrir efnahagslíf eyjaskeggja
því fiskur er aðalútflutningsvara
þeirra og markaðurinn í Bret-
landi er mjög mikilvægur og
kemur næst markaðnum í
Bandaríkjunum að stærð.
Mikil reiði ríkir hins vegar í
garð See Shepherd manna í
Færeyjum og blöð og útvarp
hafa keppst við að birta viðtöl
og greinar um Watson þar sem
ferill hans hefur verið rakinn og
m.a. hefur verið haft eftir
dönskum fulltrúa Grænfriðunga
Gylling Nielsen að Watson hafi
ekki yfirgefið samtökin eins og
hann heldur fram en þvert á
móti verið rekinn þar eð aðferð-
ir hans þóttu allt of ruddalegar.
Þjófar
settir
íhald
■ Fimm ungiingar á
aldrinum 14 til 16 ára
hafa játað á sig fjölda-
mörg innbrot á Stór-
Reykjavíkursvæðinu.
Þrír drengjanna eru 16
ára gamlir og voru þeir
forsprakkar í innbrotun-
um. Þeir fengu til liðs við
sig tvo drengi 14 og 15 ára.
Að sögn deildarstjóra hjá
RLR hafa drengirnir ver-
ið á kreiki meira og
minna síðan í júní.
■ Franska skemmtiferðaskiptið Mermoz kom til íslands í fyrradag og hélt úr höfn í gær, á leið til
Dublin. ísland er áfangastaður á þriggja vikna ferð skipsins um Norður-Atlantshafið, en það lagði
úr höfn frá Bergen þann 12. ágúst. Þess má geta að 22 farþegaskip hafa komið til landsins á þessu
ári. NT-mynd: Sverrir