NT - 24.08.1985, Qupperneq 3
w
Laugardagur 24. ágúst 1985
Miðlun sendir David Bowie
íslenskar blaðaúrklippur
Ef áhugasamur poppaðdá-
andi skrifar lesendabréf í blöðin
og krefst þess að David Bowie
komi til landsins og skemmti
gestum listahátíðar, fer bréfið
ekki aðeins í íslensku dagblöðin
heldur eru miklar líkur á því að
Bowie sjálfur renni augunum
yfir bréfið, þjónustufyrirtækið
Miðlun sér til þess.
Miðlun er aðili að alþjóða-
samtökum fyrirtækja sem veita
svipaða þjónustu og í gegnum
þau samtök hafa Miðlun verið
útveguð verkefni fyrir rífleg 100
erlenda aðila, sem fá sent allt
efni sem um þá er skrifað á
íslandi. Auk Davids Bowie má
nefna Mexikóforseta, Miguel
De La Madrid og stórblöðin
Stern og Financial Times. Allir
þessir aðilar fá send afrit af
þessari frétt fyrst nöfn þeirra
eru nefnd.
Upplýsingafyrirtækið Miðlun
hefur nýverið gert samning við
Blaðamannafélag ísland um
greiðslu á höfundarétti fyrir það
efni sem Miðlun klippir úr,
ljósritar og selur.
„Ég er ósköp feginn því að
búið er að gera þennan
samning, nú er létt af mér
samviskubiti sem ég er búinn að
hafa undanfarin 5 ár,“ sagði
Ámi Zophaníasson, eigandi
Utflutningur:
Islandsdagar
í Minnesota
■ Átta íslensk fyrirtæki munu
kynna vörur sínar og þjónustu á
íslenskum dögum (Icelandic
Daýs in Minnesota) sem haldnir
eru í borginni Minnesota í
Bandaríkjunum á morgun og
mánudag. Á sama tíma verður
opnuð sýning með gömlum og
til samanburðar nýjum ljós-
myndum frá íslandi í Science
safninu í Minneappolis St. Paul.
Kynning á vörum og þjónustu
íslenskra fyrirtækja fer svo fram
á Intemational Market Square í
Minneapolis. heiðursgestur á
kynningum þessum verður
Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra.
Fyrirtækin sem taka þátt í
kynningunum eru Coldwater
Seafood Corporation, Iceland
Seafood Corporation, Iceland
Waters Industries, Hilda hf.,
Álafoss, Flugleiðir, Ferða-
málaráð og Hafskip.
Hugmyndin að þessum ís-
landsdögum varð til fyrir 2 árum
þegar Perpich fylkisstjóri kom
hér við á ferð um Norðurlönd,
og stakk þá upp á sérstakri
íslandskynningu við ráðamenn
hér. Marshall Brement, fyrrv.
sendiherra, hefur einnig unnið
að þessu máli.
Ljósmyndasafnið var fengið
til að setja upp ljósmyndasýn-
ingu sem sýnir aðstæður á ís-
landi frá því fyrir og um alda-
mót, þ.e. á þeim tíma sem
straumur vesturfara frá íslandi
var hvað mestur. Til saman-
burðar verða nútímaljósmynd-
ir, teknar af bandarískum
ljósmyndara Gary Spencer, sem
tekið hefur mikið af myndum
hér á landi.
Á markaðskynningunni í
Minneapolis munu íslensku
fisksölufyrirtækin kynna fram-
leiðslu sína og standa fyrir veit-
ingum. Álafoss og Hilda munu
m.a. halda tískusýningar með
aðstoð stórverslunarinnar
Daytons. Flugleiðir og Ferða-
mannaráð kynna ísland sem
ferðamannaland, en Hafskip
kynnir gámaflutninga sína frá
Norðurlöndum.
■ Árni Zophaníasson sýnir Ómari Valdimarssyni formanni blaða-
mannafélagsins hluta af starfsemi Miðlunar. Með þeim á myndinni
er einn af starfsmönnum Miðlunar, Ágúst Tómasson lesari.
NT-mvnd: Róbert
Miðlunar á blaðamannafundi
sem boðað var til vegna samn-
ingsins. „Ég hef alltaf verið á
þeirri skoðun að blaðamenn
eigi höfundaréttinn af þessu
efni, það hefur hinsvegar tekið
langan tíma að komast að sam-
komulagi um hvernig greiðslun-
um yrði háttað.11
Ómar Valdimarsson, formað-
ur Blaðamannafélags íslands,
sagði að það hafi ekki verið fyrr
en gerðadómur féll um ljósrit-
anir í skólum, að blaðamannafé-
lagið fékk einhverja viðmiðun,
en nú hefur samningurinn verið
undirritaður og tryggir hann
Miðlun einkarétt á fjölföldun
blaðaefnis til ársloka 1987.
Ómar sagði það ráðast af hag-
kvæmnisástæðum að gerður var
samningur um einkarétt við eitt
fyrirtæki. Hann sagði Miðlun
þekkt og traust fyrirtæki sem
margir þekkja og það væri
óneitanlega betra að skipta við
það, en fleiri smærri fyrirtæki.
Miðlun er 5 ára gamalt fyrir-
tæki sem býður uppá úrklippur
sem límdar eru upp, ljósritaðar
og bundnar í möppur. Fyrirtæk-
ið býður uppá úrklippur flokk-
aðar í 35 efnisflokka.
Fyrirtækið býður einnig uppá
sérþjónustu sem er ætiuð þeim
sem ekki fá þörfum sínum full-
nægt með efnisflokkunum.
Pjónustan er fólgin í því að
klippt er út allt sem í blöðunum
birtist samkvæmt skilgreiningu
hvers viðskiptavinar.
Læknisins
að greiða
meðlagið
Karlsruhe-Reuter
■ Dómstóll í Vestur-Þýskalandi
úrskurðaði í gær að læknir, sem
mistókst að eyða fóstri, skyldi
kosta framfærslu bamsins.
í dómsorðunum sagði að þar
sem konan hefði farið fram á
fóstureyðingu vegna þess að hún
hefði ekki efni á að eignast barn,
væri það skylda læknisins að sjá um
framfærslu þess fyrstu sex mánuð-
ina. Eftir það á móðirin að sjá fyrir
sér og sínu.
^Húsnæðisstofnun rikisins
Forstöðumaður
Ullariðnaður Sambandsins á Akureyri óskar
eftir að ráða forstöðumann.
Nánari upplýsingar veitir Jón Sigurðsson í
síma 96-21900 eða starfsmannastjóri á Ak-
ureyri.
Umsóknarfrestur er til 30. sept. n.k.
SAMBAND ÍSL. SAM VINNUFÉtAGA
STARFSMANNAHALD
LINDARGÖTU 9A
Lagervinna
Verslunardeild Sambandsins óskar eftir að
ráða bæði karlmenn og kvenfólk í lagervinnu.
Nánari upplýsingar hjá lagerstjóra á
staðnum.
VERSLUNARDEILD
HOLTAGÓRÐUM'SÍMI 8 12 66
Skagfirðingar
Hið árlega héraðsmót framsóknarmanna í
Skagafirði verður haldið í Miðgarði laugardaginn
31. ágúst og hefst kl. 21. Ávarp flytur Haraldur
Ólafsson, alþingismaður. Páll Jóhannesson,
óperusöngvari syngur við undirleik Ólafs Vignis
Albertssonar. Signý Sæmundsdóttir syngur létt
Vínarlög við undirleik Þóru Fríðu Sæmundsdótt-
ur. Að skemmtiatriðum loknum leikur hin vinsæla
hljómsveit Geirmundar Valtýssonar fyrir dansi.
Undirbúningsnefnd
Kennarar -
Nokkra kennara vantar að Grunnskóla Fá-
skrúðsfjarðar. Nýlegt skólahús, góð vinnu-
aðstaða, mjög ódýrt húsnæði rétt við
skólann. Tilvalið fyrir hjón eða sambýlisfólk.
Talsverð yfirvinna ef óskað er. Upplýsingar
gefur skólastjóri í síma 97-5159.
Húsnæði óskast
Óska eftir 2ja til 3ja herbergja íbúð. Nánari
upplýsingar í síma 19200, Stefán. Eða í
síma 641034 eftir kl. 19.00 á kvöldin.
Auglýsing
um dráttarvexti
Af lánum, sem verðtryggð eru
með lánskjaravísitölu, eru reiknaðir
dráttarvextir á 15. degi frá
gjalddaga.
Af lánum, sem verðtryggð eru
með byggingarvísitölu, verða
framvegis reiknaðir dráttarvextir á
1. degi næsta mánaðar eftir
gjalddaga.
Reykjavík, 10. ágúst 1985.
c§3Húsnæðisstofnun ríkisins
Blómaskálinn er fluttur
að Nýbýlavegi 14
í nÚ og glœsileg húsakynni. Höfum allt til blómarœktunar, pottablóm, afskorin
blóm, skreytingar, krossa og kransa. Lítid inn um helgina og alla hina dagana til
ad smakka á berjum og fá kaffisopa og eitthvad gott. Krakkar fá blödrur og ?
Sértilboð
NÝTÍND
KRÆKIBER
Mjög hagstætt
verð
Opið alla daga kl. 10—22
^^lómaslicilinn
Nýbýlavegi 14, á horni Nýbýlavegar
og Auö brekku. Sími 40980.