NT - 24.08.1985, Síða 5
I
Laugardagur 24. ágúst 1985 5
r ¥= rétti ir
Fata-spil hf.:
Heimilislegt
fyrirtæki
■ Heimasaumaður fatnaður
hefur ekki þótt tískuvara, en á
síðustu tímum hefur orðið mikil
breyting þar á, en ekki hafa allir
tíma né tækifæri til að draga
fram saumavél og sníðablöð.
Við lifum á tímum hraðans,
það er mikið unnið og þægilegt
þykir að ganga inní næstu versl-
un og kaupa þar verksmiðju-
saumaða flík, þó hún kosti
óneitanlega meira en heima-
saumuð.
En nú hefur blaðinu verið
snúið við og hægt er að ganga
inn í búð í Reykjavík og kaupa
„heimasaumaða" flík, eða láta
fimar konur sauma á sig eftir
máli. Fyrirtækið heitir Fata-spil
hf. og er sameignarfyrirtæki 10
kvenna sem allar ahafa áhuga á
prjóna- og saumaskap.
Smáauglýsing
Upphafsmaður að Fata-spili
er Alda Norðfjörð. „Pað má
eiginlega segja að þetta hafi
byrjað heima við eldhúsborðið.
Ég sauma mikið og var farinn
að selja lítillega þegar mér flaug
í hug að gaman væri að ná
sambandi við aðrar konur sem
sýsla við saumaskap heima hjá
sér. Pað var úr að ég setti
auglýsingu í blöðin þar sem ég
óskaði eftir því að komast í
samband við áhugakonur um
sauma og prjónaskap. Það voru
■ Hér sitja þær við sauma, Erna og Alda. Auk módelsaums og viðgerða bjóða þær uppá leiðsögn við saumaskap. Ef einhver er að
sauma sér buxur eða pils og lendir í vandræðum er óhætt að leita til þeirra og fá aðstoð.
■ Málin tekin af einum viðskiptavini Fata-spils hf. A myndinni
sést einnig hluti barnafata og sængurgjafa sem Fata-spil býður uppá
NT-myndir: Kóberf
um 50 konur sem svöruðu aug-
lýsingunni og fyrst í stað höfð-
um við samband símleiðis og
skiptumst á hugmyndum og
upplýsingum. Síðan var ákveðið
að stofna einhverskonar félag
og auglýstur var fundur þar sem
15 konur mættu. Uppúr því var
fyrirtækið Fata-spil stofnað,
með 10 áhugasömum konurn."
f sumar var framleiðsla
kvennanna seld á útimarkaðn-
um Lækjartorgi, en þegar líða
tók á sumarið tímdu þær ekki
að taka sér frí allan veturinn svo
þær komu sér upp húsi undir
framleiðslu sína þann 1. ágúst
síðastliðinn.
Sérhæfing
Tvær af þessum tíu konum,
þær Alda Norðfjörð og Erna
Ragnarsd. vinna allan daginn í
Fata-spili. Hinar átta vinna
heima, og senda sína fram-
leiðslu til fyrirtækisins. Mikil
sérhæfing er hjá Fata-spili, ein
konan er með prjónavél, önnur
handprjónar, þriðja saumar
skyrtur, fjórða saumar ein-
göngu úr gallaefnum og svo
mætti lengi telja.
Sérfræðingur Fata-spils í að
sauma eftir máli er Erna Ragn-
arsdóttir. Hún sagði allskonar
fólk nýta sér þjónustuna, ekkert
frekar fólk sem notaði yfirstærð-
ir eða á einhvern annan hátt
afbrigðileg snið. Þær kaupa öll
efni í heildsölu og eru með
lágmarks-álagningu og geta því
selt sína vöru um það bil 40%
ódýrari en gengur og gerist.
Erna nefndi sem dæmi að hún
hafi fyrir skömmu saumað brúð-
arkjól, sem kostaði 3.000
krónur, meðan sambærilegir
kjólar voru seldir á 12-15.000 í
verslunum.
Samviskan
„Við saumum sjálfar öll okk-
ar föt, kaupum helst ekkert
nema nærföt og skó,“ sagði
Erna og Alda bætti því við að
álagningin í verslununum væri
rhikil, allt að 130% vegna hárrar
húsaleigu. Hún sagði að þær
réðu ekki við að kaupa í þessum
dýru verslunum og hefðu heldur
ekki samvisku í að leggja svona
mikið á vöruna. Hún sagði það
líka skila sér vel, því mikil sala
hefur verið í barnafötum og
sængurgjöfum hjá Fata-spili og
eftir að þær opnuðu aðstöðuna
í Miðstræti 3 A hafa þær í stórum
stíl tekið að sér viðgerðir á
fötum, módelsaum og breyting-
ar á fötum. Eða eins og Alda
orðaði það: „Það eru ófáir
klæðaskáparnir sem við höfum
flikkað uppá.“
Stúdentaleikhúsið
á hringferð með rokk-söngleikinn
i i i i i ii i
EKKÓ -
U
eftir Cláes Aiidérssoh, þýðing: Ólafur Haukur Síníonarson,
l l J l l l
ónlist: Ragnhildur Gísladóttir,
Akranes.........................28. ágús
Grundarfjörður..................29. ágúst
Stykkishólmur...................30. ágúst
Búðardalur .....................31.ágúst
Patreksfjörður................... 2. sept.
Þingeyri......................... 3. sept.
Boiungarvík ..................... 4. sept.
Hnífsdalur....................... 5. sept.
Hvammstangi ..................... 6. sept,
eikstjórn: Andrés Sigurvinsson
Blönduós......................... 8. sept.
Sauðárkrókur .................... 9. sept.
Siglufjörður.....................10. sept.
Ólafsfjörður.....................11. sept.
Dalvík...........................12. sept.
Akureyri...................13. og 14. sept.
Aðaldalur........................15. sept.
Húsavík..........................16. sept.
Þórshöfn ........................17. sept.
Vopnafjörður.......................18. sept
Borgarfj. eystri ..................19. sept
Egilsstaðir........................20. sept,
Neskaupstaður..................... 21. sept,
Reyðarfjörður......................22. sept,
Höfn...............................23. sept,
Vík ...............................24. sept,
Hvolsvöllur .......................25. sept,
Selfoss............................26. sept