NT - 24.08.1985, Page 7
KL'
Laugardagur 24. ágúst 1985
V-Þýskaland:
W RE
Yf irmaður gagnnjósna t 1
flýr til A-Þýskalands
Áhrif flóttans: Starf leyniþjónustunnar í rúst
’NEWS IN BRIEF-i
REUTER 23rd AUGUST
BONN - The West
German govemment said
the defection to East
Berlin of one of its top
jj- spv-hunters, Hans Joac-
g him Tiedge, would inflict
§ huge damage on its intell-
^ igence operations. Secur-
JJJ ity experts said the ram-
^ ifications of his defection
U| would be felt far beyond
^ West Germany’s
borders.
■ Martin Bangemann - fyrst
hvarf einkaritari hans, þá annar
einkaritari og hersendisveinn og
nú er yfirmaður gagnnjósna-
deildarinnar flúinn til A-Þýska-
lands.
Bonn-Austur-Bertín-Reuter
■ Stjómvöld í Austur-Þýskalandi tilkynntu í gær að hans Joachim
Tiedge, deildarstjóra gagnnjósnaþjónustu V-Þýskalands, hefði beðið
um hæli í landinu sem pólitískur flóttamaður.
í fréttum frá A-Þýskalandi var ekki minnst á það hvort að Tiedge
hefði verið njósnari, aðeins sagt að verið væri að kanna mál hans.
Stóru njósnamálin
■ Flótti Hans Joachim Ti-
edge, deildastjóra í gagn-
njósnaþjónustunni, er enn
eitt áfallið sem vestur-þýska
leyniþjónustan verður fyrir.
Hér á eftir fylgir upptalning
á öðrum helstu njósnamálum
í landinu:
Júlí 1954 - Otto John, yfir-
maður gagnnjósnaþjónustu
V-Þýskalands, flýr yfir til
A-Þýskalands og stjórnvöld
Ear í landi skýra frá því að
ann hafi beðið um hæli sem
pólitískur flóttamaður. John
kom aftur vestur 18 mánuð-
um síðar og var þá hnepptur í
fjögurra ára fangelsi. Hann
sagði að sér hefði verið rænt.
Nóvember 1961 - Heinz
Felfe, háttsettur embættis-
maður innan v-þýsku leyni-
þjónustunnar er dæmdur í 14
ára fangelsi fyrir njósnir í
þágu Sovétríkjanna.
Apríl 1974 -Gúnter Guil-
laume, persónulegur ráðgjafi
Willy Brandt, kanslara, er
handtekinn ásamt konu
sinni. Þau voru bæði a-þýskir
njósnarar. Brandt sagði af
sér embætti vegna þessa.
Guillaume var dæmur í 13
ára fangelsi ári síðar en var
látinn laus 1981 og sendur til
A-Þýskalands í skiptum fyrir
aðra njósnara.
Janúar 1979 - Werner
Stiller, liðsforingi í a-þýsku
leyniþjónustunni flýr til
Vestur-Þýskalands. 1 fram-
haldi af því voru margir
a-þýskir njósnarar í landinu
handteknir.
Marz 1979 - Ursel Lorenz-
en, ritari v-þýsku
sendinefndarinnar í aðal-
stöðvum NATO í Brússel,
flýr austur yfir landamærin.
Hún hafði starfað hjá NATO
í 12 ár og var einn sex
háttsettra einkaritara sem
Stiller hafði bent á sem lík-
lega njósnara. Þrír aðrir
náðu að flýja land.
Ágúst 1985 - Mikil leit er
gerð að einkariturunum
Sonju Lúnberg og Ursulu
Richter eftir að þær hverfa
sporlaust. Lúnberg hafði ver-
ið einkaritari Martin Bange-
mann, efnahagsráðherra, í
12 ár. Richter er talin hafa
verið aðalmanneskjan í víð-
tæku a-þýsku njósnaneti.
Hersendisveinn nokkur er
einnig talinn hafa verið
njósnari, en finnst ekki þrátt
fyrir víðtæka leit.
Það sem nefnist í daglegu tali
v-þýska leyniþjónustan er í raun-
inni þrjár stofnanir þ.e. leyni-
þjónustan sjálf sem lýtur kanslar-
anum, gagnnjósnaþjónustan er
lýtur innanríkisráðherranum, og
leyniþjónusta hersins er lýtur
vamarmálaráðherranum. Hans
Tiedge var deildarstjóri innan
gagnnjósnaþjónustunnar, og
stjómaði aðgerðum gegn njósn-
um A-Þjóðverja. Það er því
óþarft að fjölyrða um alvöm
þessa máls, enda var hann þriðji
æðsti yfírmaður stofnunarinnar.
Tiedge hefur starfað fyrir
gagnnjósnaþjónustuna í 19 ár,
hann hefur unnið náið með öðr-
um leyniþjónustum í V-Þýska-
landi svo ámm skiptir. Hann
hafði þann orðstír að vera einn
fremsti sérfræðingur V-Þjóðverja
í að eiga við njósnara frá ná-
grannanum í austri.
Fjarskipti:
Samræming lykillinn að
upplýsingaþjóðfélaginu
Boston-Reutcr
■ Stærstu símafyrirtæki heims
vinna nú að því að samræma
hina ýmsu staðla í fjarskipta-
málum og vonast til að ganga
frá samkomulagi þar að lútandi
á næstunni. Samræmingin
mundi hafa í för með sér róttæk-
ar breytingar á fjarskiptum í
heiminum og forráðamenn
fyrirtækjanna telja hana vera
lykilinn að upplýsingaþjóðfélagi
framtíðarinnar.
Kerfið byggir á stafrænum
merkjum, eins og þeim sem
tölvur nota, enda mun kerfið
vera grundvallað á geysiöflug-
um og hraðvirkum tölvum.
Gert er ráð fyrir að í stað
venjulegs talsíma komi svokall-
aður myndsími í hvert hús, en
þeir verða allir mjög einfaldir
að gerð. Stefnt er að því að
notendur þurfi ekki að kuniia
neitt annað en að ýta á takka til
að notfæra sér símann.
Með myndsímanum verður
hægt að hringja í kjötbúðina og
velja nautalundir fyrir kvöldið,
„fara“ í bankann og tala við
vini sína og sýna þeim myndir
úr sumarfríinu.
En myndsímarnir munu ekki
eingöngu koma neytendum að
góðu gagni. Framleiðendur ein-
inga í síma- og fjarskiptatæki
bíða spenntir eftir að stóru fyrir-
tækin hefjist handa við uppsetn-
ingu kerfisins, því víst er að
margir stórir molar munu
hrökkva af borðum þeirra.
Þannig er t.d. talið að þau muni
kaupa örflögur fyrir allt af 1,2
milljarðar bandaríkjadollara
(jafnvirði um 45 milljarða kr.)
af ýmsum smærri fyrirtækjum.
Eftir 3-5 ár gæti kerfið verið
komið upp í helstu stórborgum
heimsins, en það mun líða
a.m.k. áratugur þar til al-
menningur mun geta nótfært
sér hina nýja tækni á heimilum
sínum.
Ef Tiedge leysir frá skjóðunni
í A-Þýskalandi, og lætur ekkert.
ósagt, er óhætt að fullyrða að
hann getur lagt bæði njósnir og
gagnnjósnir landa sinna í rúst.
Það er mjög sennilegt að upp-
Ijóstranir hans geti einnig haft,
alvarleg áhrif á störf vestrænna j
kollega hans, enda kvaðst ráðs-1
kona hans eitt sinn hafa séð
erlend leyndarskjöl á víð og dreif
í húsi hans, er hún var spurð
frétta. Af þessum sökum hefur
vaknað ótti um að Tiedge kunni,
að hafa verið „moldvarpa" svo
árum skiptir þ.e. útsendari er
kom sér í gagnlega stöðu, en
margir vilja draga það í efa. Alla
vega er ljóst að áhrifanna af
flótta Tiedges mun gæta lengi.
Enginn veit hversu margir liðs-
manna A-Þjóðverja munu sleppa
úr greipum V-Þjóðverja, eða
hversu margir njósnara Vestur-
landa austantjalds munu hverfa.
Stjómin í A-Berlín státar þegar
af því að hafa handtekið 168
v-þýska njósnara á undanfömum
18 mánuðum.
■ Hringt upp á gamla
móðinn. Þegar nýja kerflð
verður tekíð upp munu símnot-
endur geta heyrt og séð viðmæl-
endur sína.
Þjófurinn
skildi eftir
passamynd
Frankfurt-Reuter
■ Hann var seinheppinn þjóf-
urinn sem braust inn í ljósmynd-
avörubúðina og stal þaðan
nokrum forláta myndavélum. í
æsingnum varð honum á að
skilja eftir í búðinni passamynd-
ir af sjálfum sér, og neyddist því
til að gefa sig fram við lögregl-
una. Lögreglan hefði víst ekki
heldur verið lengi að handtaka
hann, með svona góða lýsingu á
honum í höndunum.
Nýja Sjáland:
Stjórn jafnaðarmanna
snarlækkar tekjuskatt
lllt er að vera
blankur brúðgumi
Weliington-Reuter
■ Ríkisstjóm Verkamanna-
flokksins á Nýja Sjálandi hefur
ákveðið að lækka „óréttlátan
tekjuskatt“ um að meðaltali
tuttugu prósent á næsta ári.
Roger Douglas fjármálaráð-
herra Nýja Sjálands segir að
tekjutapi ríkissjóðs vegna
skattalækkunarinnar verði mætt
með því að taka upp tíu prósent
almennan virðisaukaskatt á vör-
ur og þjónustu. En um leið
verður söluskattur af ýmsum
vömm líka lagður niður eða
lækkaður.
Fjármálaráðherrann sagði að
Wellington-Reuter
■ Ný-Sjálendingnum Des-
mond Green fannst ómögulegt
að byrja hjónaband sitt með
tvær hendur tómar, svo að
tveimur klukkustundum fyrir
brúðkaupið rændi hann
pósthús. Þegar hann svo sagði
sinni heittelskuðu frá ráninu,
vildi hún ekkert með hann hafa
og hætti við að giftast honum.
Brúðguminn tilvonandi hafði
jafnvirði rúmra 42 þúsunda
króna upp úr ráninu. Hann
beindi leikfangabyssu að starfs-
manni pósthússins og hvíslaði
að honum að láta sig hafa pen-
ingana. Svo fagmannalega fór
Green að, að þeir sem biðu í
röðinni fyrir aftan hann eftir að
fá afgreiðslu höfðu ekki minnstu
hugmynd um að vopnað rán
stæði yfir.
Green var dæmdur í tveggja
og hálfs árs fangelsi eftir að hafa
játað á sig brotið.
flestir Nýsjálendingar væru sam-
mála um að tekjuskatturinn
væri óréttlátur og lækkun hans
væri mikið réttlætismál. Til að
létta undir með stórum fjöl-
skyldum láglaunafólks og draga
úr áhrifum virðisaukaskattsins
á afkomu þeirra verða teknar
upp fjölskyldubætur sem
tryggja fjölskyldum með eitt
barn sem svarar 5000 ísl. kr. í
lágmarkstekjur á mánuði.
Eftir skattabreytinguna verð-
ur tekjuskattur í lægsta skatt-
þrepinu 15% í stað 20% áður og
tekjuskattur í hæsta skattþrep-
inu lækkar úr 66% í 48%.
Atvinnuleysi á Nýja Sjálandi
hefur minnkað mikið undir
stjórn Verkamannaflokksins.
Atvinnuleysi mældist aðeins
3,6% í júní á þessu ári en
4,9% í sama mánuði fyrrr ári.
MOSCOW - Sovief me-
dia said the U.S. was
apparently trying to
derail November’s sup-
erpower summit and acc-
used the Central Intellig-
ence Agency (CIA) of
being behind Washing-
ton’s charges that a dang-
erous chemical had been
S used on its diplomats
OC here. U.S. offícials said
they had evidence to
$ back their charges.
9; VANDENBERG Air
Force Base, California -
The United States test
fíred an MX nuclear mis-
sile from an underground
silo for the first time,
sending the unarmed
missile streaking on a
4,100 mile flight over the
Pacifíc.
JOHANNESBURG -
South African anti-apart-
heid leader Alan Boes-
Ul ak announced plans for a
S mass March next week to
^ the prison of black natio-
—» nalist leader Nelson
^ Mandela and asked the
5 authorities to avoid what
% he termed provocation.
COLOMBO - Sri
Lanka’s parliament ex-
tended a national state of
emergency for another
month after the govern-
1 ment warned that Tamil
I guerrillas were planning
I ^ að major offensive.
UNITED NATIONS -
Libyan Leader Muammar
Gaddafí will make his first
trip to the United States,
probably in October, for
JJj the 40th anniversary sess-
^ ion of the U.N. General
OQ Assembly.
ys
TUNIS - Tunisia accused
| Libya of threatening force
in a dispute over worker
expulsions and decided
to recall its ambassador
for consultations.
•
LONDON - The Guinn-
ess brewing firm won
I control of Arthur Bell,
I the largest independent
Scotch whisky company,
1 after a fíercely-contested
| takeover bid.
•
MAINS, West Germany
I - A former cellarman at
j West Germay’s biggest
I wine merchant has con-
fessed to mixing German
wines, sold as top-class
| vintages, with adulterated
, Austrian wines.
newsinbrief]