NT - 24.08.1985, Blaðsíða 14
Laugardagur 24. ágúst 1985 14
Minning
Systraminning
Sigríður, Fanney og
Þórdís Pétursdætur
Sigríður fædd 25. mars 1905
Dáin 12. júlí 1985
Fanney fædd 18. apríl 1910
Dáín 21. apríl 1981
Þórdís fædd 23. des. 1914
Dáin 9. maí 1985
Systurnar á þrjátíu og sex, Sigríð-
ur, Þórdís, og Fanney, voru snar
þáttur í mannlífinu á Barðavoginum
í Reykjavík um 30 ára skeið. Húsin
við þá götu byggðust um og eftir
1950 neðan við voru lengst af móar,
kjörið leiksvæði hinna yngri enda
einangraði Langholtsvegurinn með
mikilli umferð sinni götuna nokkuð
frá öðrum hlutum Vogahverfisins.
Gatan var stutt, aðeins 12-14 hús voru
þar lengi vel og eigendur þeirra á
svipuðum aldri. Því tókust góð kynni
og gagnkvæm aðstoð veitt.
Það var rausnargarður á númer 36.
Saumaverkstæði var í kjallaranum og
þar var nokkur hópur kvenna að
störfum undir stjórn Siggu. Utan við
húsið stóð yfirleitt krafmikill jeppi,
sem Dísa ók á ferðum systranna um
öræfin sem erlendis. Hún vann í
verslun þeirra systra, og greip í sitt-
hvað á heimili og á saumastofunni.
Fanney hinsvegar vann í miðasölu
Þjóðleikhússins frá stofnun og fyrir
mörgum voru viðskiptin við hana
fyrsti þátturinn í góðri leikhúsför.
Mikill lífskraftur einkenndi þær
systur. Þær bjuggu við góð efni og
veittu sér utanlandsferðir áður en það
varð alvanalegt og fóru jafnvel til
fjarlægustu landa. Þær voru því gjarn-
an sólbrúnar, ævinlega vel klæddar,
glaðar voru þær og glæsilegar þegar
þær komu á mannamót. Það sópaði að
þeim á hestbaki, en hesta áttu þær
góða, enda sveitakonur í hjarta þrátt
fyrir langa dvöl á mölinni. Þær voru
glaðastar allra þegar þær fóru í sunnu-
aagsgöngur með krakkana í grennd-
inni niður í Gelgjutanga eða inn að
Kleppi. Þær veittu gestum sínum vel,
jafnt þeim yngri sem eldri. Reyndar
var það alltaf nágrönnunum hulin
ráðgáta að svo greindar og gerðarlegar
konur skyldu ekki hafa notið ham-
ingju hjónabandsins. Þess í stað lifðu
þær fjölbreyttu og litríku lífi í farvegi
sem þær höfðu valið sér, eða hafði
valist þeim, samstilltar og samrýmd-
ar.
Þær systur voru börn Péturs Hjálm-
týssonar og konu hans Helgu Þórðar-
dóttur. Þær fæddust í byrjun þessarar
aldar vestur í Dölum og ólust þar upp
með foreldrum sínum og einkabróður
sínum Hjálmtý, sem látinn er fyrir
allmörgum árum. Kjörin voru erfið á
Skógarströndinni þar sem fjölskyldan
bjó síðast og því tóku þau þátt í
þjóðflutningunum hérlendis til
Reykjavíkur. Árið 1936 var öll fjöl-
skyldan komin til bæjarins, bjó á
Ránargötu 21 og var tekið til hendi.
Með þeim systkinum bjó metnaður til
mennta, þrátt fyrir lítil efni og þau
eldri studdu hin yngri. Fanney hafði
hlotið nokkra fötlun eftir erfiðan
sjúkdóm í æsku. Þótti nauðsynlegt að
hún kæmist í skóla til þess að geta
betur mætt aðstæðum lífsins. En efni
skorti. Þá réði Sigga sig til eld-
húsverka og ræstinga á Héraðsskólan-
um á Laugarvatni og launin voru
dvalarkostnaður Fanneyjar þar í tvo
vetur. Sigga fékk að sitja í tímum í
frístundum og það nýttist henni vel.
Hún varð sögukona og fróð um
marga hluti. Hún fór síðan til náms í
fataiðn til Danmerkur, Dísa fór til
Svíþjóðar á skóla og Fanney dvaldist
um skeið í Bandaríkjunum. Öll sú
reynsla jók útsýn þeirra systra og
lífshæfni.
Þau systkin settu upp saumastofu
og verslunina Nonni í Reykjavík. Þar
voru saumuð og seld matrósaföt sem
smásveinar klæddust til spari. Syst-
kinin áttu þar samstillt tök. Sigga
sneið, Dísa pressaði, Hjálmtýr ann-
aðist fjárreiður og Fanney fléttaði
hinar margbrotnu snúrur sem tengdu
flauturnar nauðsynlegu, sem voru
hrellir á heimilum um árabil. En
þarna voru líka á boðstólum ferming-
arföt úr sifjoti og gabardíni, vandaðar
kvendragtir svo eitthvað sé nefnt og
á síðari árum framleiddu þau mikið
af dúnsængum. Þeim hélst vel á
starfsstúlkum og margar þeirra urðu
heimilisvinir.
Mikil skil urðu í lífi þeirra systra,
þegar þær tóku Helgu bróðurdóttur
sína til fósturs 4 ára gamla og 4 árum
síðar Bjarna, sem þá var 17 mánaða
gamall. Þá var Sigga komin undir
fimmtugt, hinar systurnar að vísu
yngri en feikileg breyting hefur það
verið í lífsmunstri þeirra að fá tvö
börn inn á svo fastmótað heimili.
Dísa tók að sér að sinna börnunum
fyrst og fremst en hlutverkaskiptingin
var skýr milli systranna og saman
tókust þær á við þetta verkefni sem
færði þeim nýja reynslu, nýja gleði og
lífsfullnægju.
Heimili þeirra var fallegt, því
smekkur þeirra brást ekki. Fínleiki
Fanneyjar, hugmyndaríki Siggu og
grænir fingur Dísu juku á fjölbreytni
og fegurð heimilisins. Það voru bjartir
litir í veglegu húsi þeirra bæði á
munum og málverkum, litríkastir
voru þó persónuleikarnir sem þar
bjuggu hver með sínum stíl og svip.
Skugga bar að sjálfsögðu yfir líf
þeirra sem annarra. Dísa varð fyrir
verulegu heilsutjóni árið 1968, Fann-
ey var aldrei heilsusterk og Sigga var
hreyfihömluð allmörg síðustu árin.
En víl og vol var ekki að finna í
orðabók þeirra systra. Þær tókust á
við heilsubilun með sömu von, kjarki
og lífskrafti sem þær gengu að öðrum
verkefnum. Dísa fékk nokkurn bata
og þær lærðu að lifa við þær aðstæður
sem þeim voru búnar hverju sinni og
njóta sín.
Þegar Fanney lést fyrir fjórum
árum, lagðist depurð yfir Siggu og
Dísu enda orðnar fullorðnar konur.
Heilsuleysið jókst, þær voru samtímis
á sjúkrahúsum á stundum og létust
báðar í sumar með tveggja mánaða
millibili.
Helga og Bjarni hafa goldið systr-
unum fóstrið með mikilli umhyggju
og elskusemi. Bjami hefur alla tíð búið
í húsi systranna nú síðast með fjöl-
skyldu sinni, og gefur það auga leið
hvílíkur stuðningur og öryggi það var
þeim, ekki síst á síðustu árum. Helga
og börn hennar hafa verið miklir
sólargeislar í líf þeirra systra, enda
tíðir gestir í húsi þeirra.
Og nú eru þær allar horfnar héðan,
systurnar á þrjátíu og sex. í minning-
unni sjáum við þær í sólskinsbirtu við
hvítmálað glæsilegt húsið, síungar
konur sem vörpuðu glans yfir um-
hverfið með gjörfuleika sínum, lífs-
krafti og hjartanlegri gestrisni
Það er þakkarefni að hafa kynnst
og notið nágrennis svo ágætra
kvenna, og lærdómsríkt verður það
öllum, hvernig þær tókust á við
aðstæður lífsins, bæði í blíðu og
stríðu, þannig að líf þeirra varð
fjölbreytt, skemmtileg og til eflingar
þeim sem með þeim gengu.
Nú er breyttur Barðavogur.
Ibúarnir eru flestir hinir sömu en
þeir hafa elst, gatan er malbikuð en
börn eru engin að leik, enda má telja
þau á fingrum sér, og móarnir góðu
orðnir af glæsigörðum og iðnaðar-
svæðum.
Kynslóðir koma, kynslóðir fara, en
við sem kynntumst systrunum á
Barðavogi 36 minnumst þeirra í þökk
og viðringu og biðjum þeim blessunar
Guðs.
Grannar.
Þórdís Pétursdóttir
Margbreyttir straumar lífsins líða,
Ijós er þó staðreynd samt,
kallinu veður hver að hlýða,
háir og lágir jafnt.
Vorglaðar raddir dvína og dofna,
dauðinn er nálgast enn.
Gott er samt þreyttum og sjúkum
að sofna
sáttur við Guð og menn.
Látinn er Ásgeir Jónsson frá
Tröliatungu í Kirkjubólshreppi,
fæddur 7. október 1899.
Hann verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju mánudaginn 26. þ.m. kl.
13.30.
Foreldrar Ásgeirs voru Jón Jónsson
og Halldóra Jónsdóttir og ólst hann
upp í stórum systkinahóp. Hann var
af þeirri aldamótakynslóð sem hefur
borið samfélag okkar í gegnum stór-
stígar breytingar í bættri afkomu og
lifnaðarháttum.
Vorið 1921 er Ásgeir einn af 27
búfræðingum sem ljúka námi í
Bændaskólanum á Hvanneyri. Rétt
er hægt að ímynda sér það andrúms-
loft sem ríkt hefur með þeim skóla-
sveinum á Hvanneyri þetta vor. Þeir
stóðu þá frammi fyrir byltingu í
möguleikum til ræktunar og uppbygg-
ingar í sveitum landsins.
Þetta varð Ásgeiri hvatning til þess
að auka enn þekkingu sína, og svala
opnum huga og vinnandi hönd. Hann
fer í Lýðskóla í Danmörk og starfar
þar við ræktunartilraunir.
Eftir heimkomuna er hann við
störf hjá Búnaðarfélagi íslands,
aðallega við tilraunir í ræktun.
Á miðj'u ári 1936 ræðst hann til
starfa hjá Sambandi íslenskra
samvinnufélaga við kaup og sölu á
landbúnaðarvélum og starfar þar í
rúmlega þrjátíu ár.
Það var gott fyrir mig sem þessar
línur skrifa að koma inn í Sambandið
haustið 1961 og fá að vinna með
Ásgeiri Jónssyni. Ástundun, reglu-
semi og velvild ríkti um úrlausn allra
verkefna í höndum Ásgeirs. Búvéla-
verslunin óx hratt á þessum árum og
kallaði á sífellt starf við útvegun véla,
varahluta og viðgerðir.
Ásgeir þekkti mjög vel til þarfa
bænda og var óþreytandi í erilsömu
starfi sínu.
Þegar hann svo árið 1966 ákvað að
hverfa frá þessum störfum sakir
Stundirnar liðnu birtu bera,
brosir hver minning skær.
Nú virðist dauft og dapurt vera,
dáin er vina kær.
Göfgi andans og hugarhlýju
hennar við fengum reynt.
Fölskvalaus kynni að fornu og nýju
fölna og gleymast seint.
Öldur strendurnar stöðugt sverfa,
standa svo forlög skráð.
Vinirnir koma, heilsa, hverfa,
hörð eru skaparáð.
Vonar, trúar og kærleikskraftur
kyrrir þó sorgarhúm.
Gott mun að hittast og heilsast aftur
handan við tíma og rúm.
Kveðja frá Hönnu og Jóhannesi
Benjamínsson
Sigríður Pétursdóttir
/ heimsins funa frosti og reyk
má friður sjaldan njóta.
En stráið smátt og öflug eik
í örlaganna hildarleik
þó hvíld að lokum hljóta.
Við þökkum fyrir allt og eitt
og öll þín góðu kynni.
Þú horfin ert og allt er breytt,
til enda lífsins ganga þreytt,
þó geymist margt í minni.
Nú skiljast leiðir, lokast sund,
er lýkur ævidegi.
Að eiga von um endurfund,
er efst í huga á kveðjustund,
svo dvína tár og tregi.
Við finnum og við fögnum því,
er fylgir sumar vetri,
Við sofnum burt frá súld og gný
og sælt mun þá að vakna á ný
í heimi hlýrri og betri.
Hanna og Jóhannes Benjamínsson.
aldurs var hans lengi saknað af okkur
samstarfsfólkinu og viðskiptavinum.
Árin á eftir starfaði hann lengi sem
þingvörður í Alþingi og hefur þar
sem annars staðar reynst traustur
liðsmaður, enda heilsuhraustur, létt-
ur í hreyfingum, glaðv^r, háttvís og
sérstakt snyrtimenni.
Þegar hann dró sig í hlé frá löngum
starfsdegi naut hann kyrrláts ævi-
kvölds með eftirlifandi konu sinni,
Símoníu Sigurbergsdóttur.
Hún bjó honum fallegt heimili að
Laugateigi 23, hér í borg. Þar var
Ásgeir umvafinn hlýju og gleði í
kyrrlátu heimilislífi.
Sonur þeirra er Halldór húsasmið-
ur kvæntur Sigríði Maríu Jónsdóttur
og eiga þau tvíburasyni, Ásgeir
Símon og Jón Einar, nú tíu ára.
Margar munu þær vera hamingju-
og gleðistundirnar sem afi og amma
hafa átt með þessari ungu og myndar-
legu fjölskyldu.
Á sínum yngri árum mun Ásgeir
hafa lagt sérstaka rækt við íþróttir og
útilíf. Hann keppti með róðrarsveit
Ármanns og stundaði göngu og skíða-
ferðir.
Meðal annars gekk hann með fé-
lögum sínum yfir Sprengisand og í
gegnum starf sitt og útilíf gjörþekkti
hann land og þjóð og skildi því betur
þarfir þess og möguleika.
Ásgeir hélt góðri heilsu alla ævi en
þó dapraðist honum sjón bagalega nú
síðustu árin, þótt hann léti lítið á því
bera. Hann varð því nú undir það
síðasta að leggja niðursínar reglulegu
útivistarferðir en naut umönnunar
sinnar góðu konu;
Nú þegar leiðir skilja er margs að
minnast og margs að þakka. Minning-
arnar eru bjartar og hlýjar.
Við hjónin viljum þakka fyrir þá
vináttu og tryggð sem við höfum
notið hjá Ásgeiri og Símoníu nú
þegar Ásgeir er kvaddur. Blessuð sé
minning hans.
LENGIÐ SUMARIÐ
með hausttilboði okkar
Ef sólin
er með oss
ylur í
hjartanu býr.
Á sólbaðsstofu
Ástu B. Vilhjálms
er sólartíminn
næstum því frír.
£Ó/)
*
X/.*
Verið velkomin. Avallt heitt á könnunni.
Við leggjum ríka áherslu á ráðgjöf
og starfsfólk okkar er ávallt reiðu-
búið til að leiðbeina þér.
Visa- og kreditkortaþjónusta
SÓLBAÐSTOFA
ÁSTU B. VILHJÁLMS
GRETTISGÖTU 18
SÍMI28705
AsgeirJónsson
fyrrverandi deildarstjóri
Gunnar Gunnarsson.